Bændablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 20134
Fréttir
Opið hús í Garðyrkjuskólanum
Að venju verður opið hús í
Garðyrkjuskólanum – Starfsstöð
Landbúnaðarháskóla Íslands – á
sumardaginn fyrsta, 25. apríl.
Opna húsið hefst kl. 10 og
lýkur kl. 18. Garðyrkjuskólinn er
á Reykjum, rétt hjá sundlauginni í
Hveragerði. Heimsókn að Reykjum
er fastur liður í hátíðarhöldum hjá
mörgum á sumardaginn fyrsta.
Bændur í Borgarfirði eystra hafa
flestir látið telja fóstur í ám sínum
frá því fyrst var boðið upp á þá
nýbreytni, fyrir réttum áratug.
Fyrstu árin létu sumir einungis
telja í gemlingum, en nú í vetur létu
allir fjáreigendur í sveitinni telja í
ám sínum öllum. Fjáreigendurnir
eru fjórtán, en fjórir þeirra með
fáar kindur. Talið var í 2.668 ám og
476 gemlingum og niðurstaðan er
sú að í Borgarfirði eiga að fæðast
5.577 lömb í vor.
Frjósemin virðist eilítið minni en
verið hefur síðustu árin og geldar ær
með fleira móti, eða 3,2% ánna. Að
meðaltali töldust vera 1,89 lifandi
fóstur í hverri á og 1,95 í hverri á
með lambi. Í gemlingum eru að
meðaltali 1,12 lifandi fóstur og 1,29
í gemlingi með lambi.
Á bænum Hofströnd, þar sem eru
ríflega 100 ær, eru að meðaltali 2,24
fóstur í hverri á, en á Framnesi, þar
sem nú eru aðeins 11 ær, er frjósemin
langmest, með 30 fóstur eða 2,7 í
hverri á. Frá því um fjárskipti hefur
Skúli Andrésson bóndi á Framnesi
haft fátt fé en afurðagott. Síðastliðið
ár skiluðu ær hans að meðaltali 42,4
kg kjöts hver og lömbin einstaklega
fitulítil miðað við þyngd. Skúli er
að verða hálfníræður og á síðasta
hausti fluttu þau Framneshjón til
vetrardvalar í Egilsstaði og eftirlétu
syni og tengdasyni sínum að annast
ærnar. Skömmu fyrir fósturtalningu
kom Skúli í heimsókn og þótti
ærnar heldur léttar á sér. Óttaðist
hann að piltunum hefði brugðist
búskaparlistin, þótt sá síðarnefndi
væri búfræðingur, en annað kom á
daginn þegar talið var.
Gunnar Björnsson, bóndi
í Sandfellshaga, hefur annast
talninguna. Eftir fyrstu tvö árin,
þar sem eilítið var um skekkjur í
talningu, hefur talningin reynst afar
örugg þótt einstaka frávik komi
fyrir, helst þannig að fleiri reynist
þrílembdar en talningin segir. Að
sögn Gunnars hefur hann ekki
áður talið í hverri einustu á í álíka
fjármargri sveit og þessari.
Frá upphafi talningar hefur
Andrés bóndi í Njarðvík annast
allt skipulag hennar af mikilli
nákvæmni. Bæði bændur og Gunnar
vita tímasetningu á hverjum bæ
upp á hár, og nú orðið er matseðill
talningarmanna með í skipulaginu,
svo ekki komi upp hjá þeim leiði yfir
einhæfu fæði.
Það voru Þorsteinn Kristjánsson,
bóndi á Jökulsá Borgarfirði eystra og
Andrés Hjaltason, bóndi í Njarðvík
sem tóku þennan pistil saman.
Bændur í Borgarfirði eystri eiga
von á 5.577 lömbum í vor
– Gunnar Björnsson gerði fósturtalningu á hverri einustu á í sveitinni
Norðmaðurinn Christian Anton
Smeds haug, doktor í umhverfis-
fræðum, heldur fróðlegan fyrir-
lestur á hádegisfundi Bænda-
samtakanna í Bænda höllinni
mánu daginn 15. apríl næst-
komandi. Umfjöllunarefni hans á
fundinum snýr meðal annars að
náttúrulegum aðstæðum landa til
framleiðslu búvara og mikilvægi
alþjóðlegrar landbúnaðarstefnu.
„Það sem ég mun fjalla um og
velta upp er spurningin um það
af hverju það sé mikilvægt að
leggja meiri áherslu á alþjóðlega
landbúnaðar stefnu í nútímasamfélagi
og til framtíðar. Einnig finnst mér
mikilvægt að þjóðir heimsins velti
því fyrir sér hversu arðbært það
er út frá framleiðsluaðstæðum að
framleiða matvæli í hverju landi
fyrir sig. Þegar allt kemur til alls
eru það veðurguðirnir og aðstæður
í umhverfinu sem fá svo miklu
ráðið um uppskeru hvers tíma. Það
er mikill munur milli landa þegar
kemur að náttúrulegum aðstæðum og
slíka hluti er hægt að bæta í gegnum
landbúnaðarstefnu. Á okkar tímum,
þar sem miklar verðsveiflur eru á
alþjóðlegum matvælamörkuðum og
ráðamenn velta því fyrir sér hvort
heimurinn geti framleitt nægan mat,
til að mynda vegna loftslagsbreytinga
og annarra þátta, er sérstaklega
mikilvægt að standa vörð um
landbúnaðarframleiðslu í hverjum
heimshluta,“ segir Christian, en í
fyrra kom út endurbætt útgáfa af
bók hans „Hvernig á að brauðfæða
heiminn á 21. öldinni“, þar sem
hann bætti við kafla um hlutverk
landbúnaðar í umhverfisáföllum.
„Árið 2008 voru miklir þurrkar
í Ástralíu, tveimur árum síðar
geisuðu þurrkar í Sovétríkjunum
og árið 2011 gerðist slíkt hið sama
í Bandaríkjunum. Þetta er stöðug
áminning um hversu óöruggar
aðstæður eru og hversu stutt getur
verið í skort. Þegar svona mikið
óöryggi er á alþjóðavettvangi verða
þjóðir að vera sjálfbærar um matvæli,
hafa varrúðarráðstafanir og stefnu
um framleiðslu matvæla.“
/ehg
Christian Anton Smedshaug með hádegisfyrirlestur mánudaginn 15. apríl:
Stefna um matvælaframleiðslu mikilvæg
Rándýr fær viðurkenningu
Loðdýrabúið Rándýr ehf.
á Grenivík hlaut nýverið
viðurkenningu Kopenhagen
Fur fyrir skinn sín en þau voru
valin úr 136 skinnabúntum frá
Íslandi. Rándýr er í eigu hjónanna
Tómasar Jóhannessonar og
Bergdísar Kristinsdóttur og er
elsta starfandi loðdýrabú á Íslandi.
Áður hét það Grávara og fékk
1.717 minka frá Noregi árið 1970.
Rándýr ehf. hefur átt búið síðan
1995. Upphaflegir eigendur voru
Tómas og Frímann Kristjánsson
en fyrir þrem árum eignaðist
Bergdís hlut Frímanns. Á búinu
eru nú rúmlega 2.000 líflæður
og er skinnaframleiðslan 9.000-
9.500 skinn á ári. Þau eru seld hjá
Kopenhagen Fur í Danmörku sem
er stærsta skinnauppboðshús í heimi.
Skúli Andrésson, bóndi á Framnesi
Sumardaginn fyrsta verður
haldinn hátíðlegur Skeifudagur
Grana á Mið-Fossum í Andakíl,
sem er hestamiðstöð LbhÍ.
Grani er hestamannafélag nem-
enda við Landbúnaðarháskóla
Íslands. Þennan dag sýna nem endur
í hrossarækt við LbhÍ afrakstur
vetrarstarfsins í reið mennsku og
frumtamningum.
Reiðkennari nemenda í vetur er
Heimir Gunnarsson.
Skeifudagur Grana á Mið-Fossum
Lífland og Fóðurblandan
lækka verð á kjarnfóðri
Verðskrá á fóðri frá Líflandi
lækkaði um 5% 25. mars og
Fóðurblandan tilkynnti síðan
lækkun hjá sér í kjölfarið 2. apríl
síðastliðinn.
Í tilkynningu Líflands kom
fram að lækkunin væri á flestum
fóðurtegundum frá fyrri verðlista og
næmi hún allt að fimm prósentum.
Lækkunin er þó mismunandi eftir
tegundum. Ástæða verðbreytinga er
sögð lækkun á heimsmarkaðsverði
hráefna til fóðurgerðar. Lífland hefur
einnig tekið í sölu nýja tegund af
kúafóðri sem hefur fengið nafnið
Hagnyt. Um tvær blöndur er að
ræða sem henta vel fyrir bændur
með bygggjöf.
Hjá Fóðurblöndunni lækkaði
verð á fóðri um allt að 5% þann
2. apríl. Þar er lækkunin einnig
mismunandi eftir tegundum. Ástæða
lækkunarinnar hjá Fóðurblöndunni
er líkt og hjá Líflandi sögð styrking
íslensku krónunnar og lækkun á
hráefnum til fóðurgerðar erlendis.
Mynd / Grýtubakkahreppur
Undirbúningur 21. Handverks-
hátíðar í Eyjafjarðarsveit er
hafinn, en hún verður haldin
dagana 9.-12. ágúst. Í fyrra
skreyttu kvenfélagskonur í
Eyjafjarðarsveit traktor með
prjónlesi en í ár fá kýr á bænum
Hvassafelli að njóta góðs af
dugnaði kvenfélagskvennanna.
Þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á fyrstu flíkurnar.
Kýrnar verða á beit á
hátíðarsvæðinu í sumar til marks
um að handverki eru engar skorður
settar. Í fyrra leiddi þetta uppátæki
kvenfélagskvennanna til þess að
hrundið var af stað samkeppni
um best prýdda póstkassa
Eyjafjarðarsveitar. Samkeppnin
fékk verðskuldaða athygli og var það
Brjóstkassinn á Sléttu sem bar sigur
úr býtum. Í ár verður samkeppnin
endurtekin og spennandi að sjá upp
á hverju íbúar sveitarinnar finna.
Búast má við um 100 sýnendum
og 17.000 heimsóknum. Þegar
hefur borist fjöldi umsókna en
umsóknarfresturinn rennur út 15. apríl
næstkomandi. Umsóknareyðublað
og nánari upplýsingar má finna á
www.handverkshatid.is
Handverkshátíð í Eyjafjarðarsveit 2013:
Prjónles, kýr og kvenfélög