Bændablaðið - 11.04.2013, Page 18

Bændablaðið - 11.04.2013, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 Á aðalfundi Samtaka ungra bænda sem fram fór á Egilsstöðum 16. mars síðastliðinn var Jóhanna María Sigmundsdóttir frá Látrum í Mjóafirði kjörin formaður. Tók Jóhanna þar með við stjórnartaumunum af Helga Hauki Haukssyni, sem gegnt hafði formennsku frá stofnun Samtakanna. Af því tilefni tók Bændablaðið Jóhönnu tali og ræddi við hana um stefnu samtakanna og framtíðina í búskap og félagsmálum. Jóhanna er fædd 28. júní 1991 í Reykjavík en er uppalin að Látrum í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp, þar sem hún býr enn. Foreldrar hennar, þau Sigmundur Hagalín Sigmundsson og Jóhanna María Karlsdóttir, reka þar sitt bú með kýr, kindur og hross en Jóhanna er einnig þátttakandi í sauðfjárbúskapnum. Jóhanna er búfræðingur frá Hvanneyri og útskrifaðist þaðan 1. júní síðastliðinn. Jóhanna segist hafa kynnst Samtökum ungra bænda í gegnum netið árið 2010 og kynnti sér félagsskapinn. „Strax þá skráði ég mig í samtökin og þegar ég var síðan við nám á Hvanneyri var ég kosin í stjórn Félags ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á aðalfundi Samtaka ungra bænda í fyrra var ég síðan kosin í stjórn og ákvað síðan að láta slag standa og gefa kost á mér í formennskuna nú á síðasta aðalfundi.“ Jóhanna segir að frá stofnun hafi mestur tími samtakanna farið í uppbyggingar og kynningarstarf, meðal annars við stofnun landshluta- félaga. Það starf sé nú að mestu að baki og hægt að snúa sér að öðrum brýnum verkefnum. „Mesta uppbyggingin er búin núna. Við höfum verið í miklu kynningarstarfi meðal ungra bænda fram að þessu og fengið mjög marga til liðs við okkur. Nú er að myndast svigrúm til að vinna enn meira að okkar hagsmunamálum og verða sýnilegri út á við. Þessi samtök eiga enn mikið inni. Við höfum verið að vinna að því að móta okkar stefnuskrá, um hvað við viljum vinna að og hvar hagsmunir okkar, ungra bænda, liggja. Við höfum jafnframt farið af stað með verkefni sem gengur út á heimsóknir í framhaldsskóla til að kynna landbúnað í heild sinni og aðkomu ungs fólks að landbúnaði. Þetta verkefni er tiltölulega nýtt af nálinni en hefur gengið mjög vel fram að þessu. Það er mikill áhugi á þessu hjá framhaldsskólunum, ég verð mjög vör við það.“ Hafa áhyggjur af stöðu búfræðináms Jóhanna segir að áherslumál ungra bænda séu mörg og fjölþætt en fyrst og fremst séu það möguleikar ungs fólks í landbúnaði, nýliðun og menntun sem brenni á félags mönnum. „Eins og kom glögglega fram á aðalfundinum okkar á dögunum þá er það framtíð ungs fólks sem brennur á okkur, sama hvar innan landbúnaðargeirans það vill starfa. Það getur verið að það vilji verða bændur, búfræðingar eða vinna annars staðar innan geirans. Fólk hefur jafnframt áhyggjur af stöðu búfræðinámsins, þeir sem eru útskrifaðir frá Hvanneyri eða eru þar í námi leggja þunga áherslu á við stöndum traustan vörð um námið og öll svið þess. Svo viljum við auðvitað bara hafa sem mest áhrif á umræðuna. Allt sem er í gangi innan landbúnaðarins kemur okkur líka við, ekki síður en þeim sem eldri eru.“ Jóhönnu finnst sem aðeins hafi skort á að hlustað sé á raddir ungs fólks sem er að hasla sér völl í landbúnaði og stundum sé ekki horft til þeirra hagsmuna. „Það er mín skoðun já. Við höfum orðið aðeins útundan í þeirri umræðu en það er þó alltaf að verða meiri vakning í þeim efnum. Við heyrum það alveg hjá fólki. Samtök ungra bænda voru að sumu leyti litin ákveðnu hornauga fyrst en í dag er fólk almennt farið að taka undir með okkur.“ Starf samtakanna skilar sér Á síðasta búnaðarþingi fjölgaði un- gum bændum verulega í hópi þing- fulltrúa. Sumir þessara ungu bænda hafa einmitt starfað með Samtökum ungra bænda. Jóhanna er sannfærð mikið að segja. „Já, ég vil meina það. Við höfum auðvitað hjálpað okkar félagsmönnum að verða sýnilegri, hvort sem er í sinni heimasveit eða á landsvísu. Við veitum þeim tækifæri til að láta rödd sína heyrast. Mér þótti afar ánægjulegt að ungu fólki á búnaðarþingi skyldi fjölga með þessum hætti, fólk sem hefur starfað með okkar samtökum og eru okkar málsvarar.“ Jóhanna segir að þeirri spurningu hafi ítrekað verið velt upp hvort Samtök ungra bænda ættu að stíga skrefið til fulls innan félagskerfis bænda og sækja um aðild að Bændasamtökum Íslands. Hún þvertekur alls ekki fyrir það en segir að áður en nokkur slík ákvörðun yrði tekin þurfi samtökin að klára ákveðna stefnumótunarvinnu. „Það hefur verið mikið rætt og ég hef fengið þessa spurningu oft, um hvort að við ætlum ekki að sækja um aðild að Bændasamtökunum. Ég segi að það strandi á því að okkur finnst í rauninni við í ekki vera búin að klára að marka okkur stefnu. Við erum í raun ekki búin að marka heildarstefnu fyrir Samtök ungra bænda og getum þar af leiðandi ekki útvíkkað okkar starfsemi enn frekar, á meðan við vitum ekki fyrir fullt og fast hvert við viljum fara með félagsskapinn eða hvaða stefnu við ætlum að taka. Sú vinna er hins vegar hafin, hefur staðið frá því á aðalfundi á síðasta ári og nú á síðasta aðalfundi voru kynnt drög að heildarstefnu samtakanna. Þar kom fram skýr vilji fulltrúa til að vinna enn frekar að stefnumörkun samtakanna. Við munum vinna áfram að málinu fram að næsta aðalfundi og leggja það fyrir þá á nýjan leik.“ Góður félagsskapur Það er mikils virði fyrir ungt fólk í landbúnaði að eiga heildarsamtök sem vinna að hagsmunum þess, segir Jóhanna. Ekki síður er mikilvægt að kynnast fólki víðs vegar að af landinu og geta borið saman bækur sínar við það. „Það er ótrúlega mikils virði. Ég hef til að mynda kynnst mörgum af mínum bestu vinum í dag í gegnum þessi samtök. Ef ég ætlaði að keyra hringinn núna og heimsækja alla sem ég þekkti þyrfti ég að taka ansi langan tíma í það. Ég hef þó alla vega gistingu. Þetta er mikill félagsskapur sem maður fær út úr þessu. Það er líka mjög gagnlegt að geta rætt hlutina við marga sem eru í svipuðum sporum og maður sjálfur er, kannski í mismunandi landshlutum og fá hugmyndir um hvernig þeir gera hlutina. Við höfum verið að vinna að því að koma á fót vettvangi þar sem ungt fólk í landbúnaði getur skipst á skoðunum. Hann er enn sem komið er á Facebook- síðu, hvað sem síðar verður, en þar eru aðskiljanlegustu hlutir ræddir. Þar er velt upp spurningum eins og hver hæðin á fjárhúskjallara á að vera, hvaða kornafbrigði hafa reynst best og í raun allt milli himins og jarðar.“ Talsmenn hinna dreifðu byggða Samtök ungra bænda snúa ekki bara að landbúnaði segir Jóhanna heldur einnig að málefnum landsbyggðarin- nar. „Við höfum rætt byggðamál mjög mikið innan okkar raða og við viljum að það sé stutt við dreifðari byggðir landsins. Það þarf að vera grunnþjó- nusta um allt land til að hægt sé að halda landinu í byggð. Bændur þurfa að leita læknis og senda börnin sín í skóla eins og aðrir íbúar þess lands. Ég bý á svæði sem hefur orðið ver- ulega útundan og um síðustu jól sátum við í myrkri, tölvulaus og símalaus. Maður velti óhjákvæmi- lega fyrir sér hvort árið væri virki- lega 2013. Þetta er því auðvitað málefni sem við látum okkur varða og setjum fram þá kröfu að fólk á lands byggðinni njóti eðlilegrar og traustrar grunnþjónustu.“ Á síðasta búnaðarþingi var í fyrsta skipti kosin stjórn Bændasamtakanna þar sem konur eru í meirihluta. Jóhanna segir að það skipti miklu máli fyrir konur í landbúnaði að eiga fyrirmyndir af þessu tagi. „Að sjálfsögðu. Ég hefði líklega drifið mig fyrr á Hvanneyri til að mynda, hefði ég áttað mig á því hversu mikill fjöldi kvenna væri þar við nám. Það er erfitt að að stíga ein fram og afar mikilvægt að bæði kynin komi að stefnumörkun og ákvarðanatöku. Alveg eins og það eru mismunandi sjónarmið milli landshluta hvað varðar landbúnaðinn þá eru mismunandi sjónarmið milli kynjanna. Þegar ég útskrifaðist sem búfræðingur vorum við 28 í útskriftarárgangnum. Af því vorum við átta stelpur og ég held að þetta sýni kannski hlutfallið innan landbúnaðargeirans, af þeim sem eru virk í félagsmálum til dæmis. Þetta voru hins vegar alt mjög sterkar konur og það skiptir auðvitað máli.“ Jóhanna María situr í fjórða sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ef horft er til skoðanakannana er afar líklegt að það sæti þýði varaþingmennsku, hið minnsta. Jóhanna segir að framtíðin sé þó að verða bóndi. „Ég hef alltaf verið viðloðandi búskapinn heima og það blundaði alltaf í mér að fara í bændaskólann og verða svo bara bóndi og húsmóðir í sveit. Núna tek ég smá krók, stoppa aðeins við í félagsmálum, en það er stóri draumurinn að geta verið bóndi . Helst vildi ég búa með bæði kýr og kindur en ég hef þó alla tíð verið meiri sauðfjárkona. Lengst af var ég mikill heimalningur, einkum áður en ég fór á Hvanneyri. Það kom ekkert annað til greina en að verða bóndi heima og ég átti erfitt með að horfa út fyrir þann ramma. Í dag dreymir mig hins vegar alveg jafn mikið um að verða bóndi á Suðurlandi eða Norðurlandi eins og heima á Látrum,“ segir Jóhanna. /fr Mikilvægt fyrir ungt fólk í landbúnaði að eiga Samtök ungra bænda: Nýr formaður segir nauðsynlegt að konur í landbúnaði hafi fyrirmyndir að horfa til Samtök ungra bænda Samtök ungra bænda voru stofnuð 23. október 2009 í Dalabúð í Búðardal. Fjórar landshlutadeildir starfa innan samtakanna; á Norðurlandi, Suðurlandi, Austurlandi og á Vesturlandi og Vestfjörðum. Tilgangur samtakanna er að sameina unga bændur um hags- munamál og vinna að framgangi þeirra. Félagar í Samtökum ungra bænda eru nú um 300 talsins. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.