Bændablaðið - 11.04.2013, Side 42

Bændablaðið - 11.04.2013, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 Íslensk hönnun Einar Vignir Skarphéðinsson er fæddur og uppalinn á Patreksfirði og býr þar í dag ásamt eiginkonu sinni Helgu Gísladóttur. Hann er húsasmiður að mennt, lauk nýverið smíðakennaranámi fyrir grunn- og framhaldsskóla og er nú smíðakennari við Grunnskóla Vesturbyggðar. Handverkið á hug hans allan og nýtir hann hverja stund til að vinna í því. Upphaf: Ég hef verið í handverki frá árinu 1991, í rúm 20 ár. Barnaleikföng áttu hug minn allan til að byrja með en svo fór ég á námskeið í trérennismíði, varð hugfanginn af þeirri list og hef aðallega verið í því síðan. Ég er einn af stofnfélögum í Trérennismíðafélagi Íslands sem var stofnað árið 1994. Innblástur: Ég fæ hugmyndir úr umhverfinu og náttúrunni sem ég er alinn upp við, fjörunni, fjöllunum og sjónum, en ég notast nær eingöngu við efnivið úr náttúrunni. Þá hef ég smíðað náttúruleikföng eða bíla úr viði þar sem ég nota enga málningu, lakk, lím eða nagla og skrúfur, aðeins viðinn og matarolíu sem ég ber á bílana. Einnig hef ég prófað mig áfram í gleri, kopar, messing, pappír, plexígleri, mósaík, silfri og fleiru. Efniviður: Þeir hlutir sem ég renni aðallega eru skálar, kertastjakar, pennar, bréfa- hnífar og margt fleira. Þá sinni ég ýmsum sérverkefnum og pöntunum. Íslenski viðurinn er mér hugleikinn og þá helst lerki, birki og reynir þótt það sé líka gaman að prófa fram- andi og spennandi viðartegundir. Ég hef tínt rekavið á Ströndum og renni úr honum en hann kemur mjög skemmtilega út þegar hann er ormétinn og skreyttur frá nátt- úrunnar hendi. Slíkur viður kemur frá Síberíu og getur verið mörg ár í hafísnum í Norður-Íshafinu þar til hann kemur til Íslands. Þá tekur við annað eins í þurrkunarferlinu en götin í viðnum koma eftir orm- inn sem étur sig í gegnum viðinn. Hann heitir latneska nafninu Laredo. Vinsælastir eru þó pennarnir sem ég renni og set í lurk eða trjágrein með krækjum og lömum og þá er hægt að brenna fallega nafn viðkomandi eiganda inn í lokið á lurknum. Ég kom fyrstur með þessa hugmynd og var til margra ára sá eini hér landi sem seldi pennana þannig. Þeir hafa verið keyptir í útskriftargjafir, stórafmæli, fermingar, við starfslok og fleira. Fram undan: Munir eftir mig hafa farið út um víðan heim og á marga framandi staði, sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef tekið þátt í fjölda handverkssýninga bæði á Ísafirði og í Reykjavík, þar á meðal Handverkssýningunni í Perlunni sem var tileinkuð Vestfjörðum, hand- verkssýningum í Laugardals höllinni og atvinnuþróunarsýningum á Ísa- firði. Einnig hef ég hannað og smíð- að frá upphafi verðlauna gripinn á heimildarmynda hátíðina Skjaldborg sem haldin er á Patreksfirði ár hvert um hvítasunnuna. Sá gripur heitir eftir mér og er kallaður „Einarinn“ svo það er mjög gefandi og skemmti- legt að fá að takast á við mörg fjöl- breytt verkefni. /ehg Varð hugfanginn af trérennismíði Pennar og lyklakippur úr smiðju Einars hafa verið mjög vinsæl. Sýnishorn af verkum Einars. Glæsilegur kistill sem smiðurinn útbjó af hagleik. Aðalstarf Einars er smíðakennsla í Grunnskóla Vesturbyggðar og hefur og smíðað verðlaunagripinn á heimildarmyndahátíðina Skjaldborg um hvítasunnuna og heitir gripurinn eftir honum, „Einarinn“. vinna með viðartegundir og hefur

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.