Bændablaðið - 11.04.2013, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013
Skiptir sáðmagn máli?
Nú líður að því að bændur fara
huga að sáningu byggs. Þeir vita að
sáðkorn og áburður eru með stærstu
kostnaðarliðum í kornræktinni en
eru jafnframt miklir áhrifavaldar á
uppskeru, kornþroska og veðurþol.
Almennt um áhrif köfnunarefnis
Áhrif af stærð og samsetningu
áburðarskammta hafa nokkuð verið
rannsökuð hér á landi. Bændur
verða að hafa í huga náttúrulega
frjósemi landsins þegar ákveða
skal áburðarmagn, sér í lagi magn
köfnunarefnis. Of mikið köfnunarefni
ýtir undir grænvöxt sem eykur hættu
á legu með tilheyrandi uppskerutapi
enda dregur úr strástyrk þegar stráin
verða hærri og bera þung öx. Einnig
dregur það úr kornfyllingu en þegar
stráin leggjast tefst flutningur efna
upp í ax, liggjandi korn þornar seint
og verður óhjákvæmilega blautara
en það sem stendur og meira tapast
ofan í svörð. Hér á landi hefur verið
mælt með að köfnunarefnisskammtar
séu á bilinu 30-100 kg N/ha. Stærstu
skammtarnir eiga vel við þar sem
frjósemi er mjög lítil t.d. í sandi en þeir
minnstu á mjög frjósamri framræstri
mýri. Mælt hefur verið með að bera
um 20-30 kg P/ha og 40-60 kg K/ha.
Bændur geta leitað sér leiðbeininga
um heppilega áburðaskammta á korn
í handbók bænda, á bóndi.is eða hjá
ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins.
Áhrif ólíkra sáðmagnsskammta
Minni og færri athuganir hafa verið
gerðar á kjörsáðmagni. Ráðlegt
sáðmagn er yfirleitt álitið vera
um 180-200 kg/ha. Réttast væri
að gefa upp sáðmagn sem fjölda
plantna á flatarmálseiningu en vegna
hentugleika í framkvæmd er það alltaf
gefið upp í kílógrömm á hektara (kg/
ha). Sáðmagn í kg/ha er háð þeim
fjölda plantna á fermetra sem óskað er
eftir, þúsundkornaþyngd sáðkornsins
og spírunarhæfni þess. Lítið mál er að
reikna þetta með jöfnu.
kg/ha = (plöntur á m
2 × þúsundkornaþungi
í g)
spírun í %
Sáðmagn er að sjálfsögðu háð yrkjum,
þannig verða bændur að taka tillit til
þess að tvíraða yrki geta af sér fleiri
stöngla en sexraða yrki. Kornþyngd í
sexraða yrkjum er einnig oftast minni.
Því þurfa sexraða yrkin heldur stærri
sáðmagnsskammta. Keypt sáðkorn
á að standast staðla um lágmarks
þúsundkornaþyngd og spírunarhlutfall
en þeir þættir geta líka verið
breytilegir milli yrkja. Keypt sáðkorn
á að standast 90% spírun í prófi en
búast má við að 80% af spírunarhæfu
korni komist upp á akri við þokkalegar
aðstæður. Einnig verður að taka
tillit til umhverfisaðstæðna eins og
frjósemi, veðurfars og raka, þannig er
ekki ráðlegt að sá stórum skömmtum
í þurrum jarðvegi. Fleiri plöntur
þurfa meiri raka og auka þar enn á
þurrkstress.
Þekkt er bæði erlendis og hérlendis
að aukið sáðmagn í a.m.k. 300 kg/
ha getur aukið uppskeru en slíkir
skammtar eru sjaldan hagkvæmir.
Uppskeruaukning skýrist af fleiri
stönglum á flatarmálseiningu vegna
fleiri plantna. Samt getur verið að
fjöldi sprota sem vex af hverri plöntu
fækki en samt sem áður fjölgar þeim
kornum sem vaxa á flatarmálseiningu.
Það er þó ekki allt unnið því stærri
skammtar leiða iðulega til minni
kornfyllingar, verri strástyrks og þar
af leiðandi meiri legu. Meira sáðmagn
má samt nýta sér í frjósömum jarðvegi
því það gæti aukið líkur á að ná þroska
innan tímamarka og minnka leguhættu
þar sem næringarefnin dreifast á fleiri
plöntur. Jafnframt hefur veirð álitið
að með stærri sáðskömmtum miðað
við frjósemi megi koma í veg fyrir
að seinþroska sprotar nái að mynda
blöð og öx þar sem meiri samkeppni
milli plantna valdi því að blöð verði
stærri og ná sneggri vexti snemma á
vaxtarskeiðinu.
Tilraun á Möðruvöllum 2011
Tilraun var gerð á Möðruvöllum
sumarið 2011. Þar voru borin saman
tvö yrki sem algeng eru í ræktun hér
á landi. Annars vegar Judit, sem er
sexraða og hinsvegar Kría, sem er
tvíraða. Könnuð voru áhrif þriggja
misstórra köfnunarefnisskammta
(40 – 80 – 120 kg N/ha) og þriggja
misstórra sáðmagnsskammta (105
– 210 – 315 kg/ha sem samsvarar
200 – 400 – 600 sáðkorn/m2) á
uppskeruþætti, strástyrk og legu.
Verkefnið var hluti af lokaverkefni
til BS prófs við Landbúnaðarháskóla
Íslands og var styrkt af verkefna- og
rannsóknarsjóði Fljótsdalshrepps og
Landsbanka Íslands.
Þroski
Eins og búist hafði við var Krían
þroskameira yrki en Judit. Áhrif
af vaxandi sáðmagni lágu þó ekki
ljós fyrir. Þannig breyttist gildi rúm-
þyngdar og þurrefnishlutfalls lítið.
Aukið sáðmagn hafði þó greinileg
áhrif á þúsundkornaþunga í sexraða
yrkinu Judit þannig að það dró úr
honum. Þannig reyndist þúsund-
kornaþyngd að meðaltali vera 35
grömm þegar sáðmagn var 105 kg/
ha en 31 grömm þegar sáðmagn var
315 kg/ha. Mælingar á þroska eru
eflaust vanmetnar, en meiri þroski og
kornfylling gefa betri afurð til fóðurs,
sáðkornframleiðslu og maltgerðar.
Uppskera
Í tilrauninni á Möðruvöllum gaf
Judit mun meiri uppskeru í tonnum
þurrefnis á hektara en Kría. Aukið
sáðmagn er líklegt að bæta við korn-
uppskeru í Judit (mynd 1) en ekki
fannst marktæk aukning í uppskeru
Kríu. Þannig varð uppskeruaukning
hjá Judit að meðaltali um 1 tonn þe./
ha við að auka sáðmagn úr 105 kg/
ha í 210 kg/ha. Frekari aukning jók
heldur við uppskeru en aldrei svo að
það réttlætti sáningu 315 kg/ha.
Þéttleiki og kornfjöldi
Eins og önnur tvíraða yrki reynist
Krían gefa af sér mun fleiri sprota á
hverja plöntu og flatarmálseiningu
en sexraða yrkið Judit, en þó sér-
staklega við lægsta sáðskammtinn
(mynd 2). Aftur á móti ætti það að
koma kornræktarmönnum lítið á
óvart að Judit gefi af sér fleiri korn á
flatarmálseiningu (mynd 3) og á hvert
ax. Það er ágætt að hafa þennan mun
á tvíraða og sexraða yrkjum í huga
því uppskera er samsett af margfeldi
fjölda axa á flatarmálseiningu, fjölda
korna í axi og þyngd einstakra korna.
Í eldri rannsóknum hefur það
komið fram að aukið sáðmagn auki
heildarfjölda stöngla auk þess að
hafa neikvæð áhrif á fjölda korna
í hverju axi. Einnig var áhugavert
að sjá að þar sem stönglarnir voru
flestir á fermetra voru fæst korn á
fermetra. Þetta var mjög skýrt hjá
Kríu. Fylgnigreining sýndi að aukin
sprotamyndun af hverju sáðkorni dró
úr myndun korna á axi og fermetra.
Þó er fjölgun sáðkorna sem dregur
úr fjölda stönglamyndunar af hverju
sáðkorni samt líkleg til að auka
uppskeru. Þetta bendir til þess að
talsvert hafi verið af seinsprottnum
hliðarsprotum í tilraunareitunum sem
ekki hafi náð að mynda ax og þroska
fræ. Hætt er við að slíkir geldstönglar
keppi við þá stöngla sem bera ax
og hafi af þeim næringarefni. Það
að fjöldi korna í hverju axi breytist
lítið við aukið sáðmagn gæti bent til
þess einmitt að aukið sáðmagn dragi
úr myndun seinsprottinna stöngla og
kornuppskera deilist á færri stöngla.
Stórir sáðmagnsskammtar hljóta
að njóta sín betur þar sem frjósemi
og aðgengi er nægjanlegt að
köfnunar efni. Hjá Judit virtust stærri
sáðmagnsskammtar skila töluverðum
uppskeruauka í heildarkornfjölda
umfram lítið sáðmagn þar sem
framboð köfnunarefnis var ríkulegt
í jarðvegi.
Lega, strástyrkur og hæð
Judit er hættara við legu en Kríu
(mynd 4) enda töluvert hávaxnara
yrki. Þannig verður þungamiðjan
sem hlýst af axinu hærri og plöntunni
hættara við „veltu“ ef svo má segja.
Aukið sáðmagn eykur hættu á legu
einkum hjá Judit. Þannig var lega
mun meiri þar sem sáðmagn var
315 kg/ha frá 105 kg/ha. Aukning á
legu frá 105 kg/ha í 210 kg/ha er ekki
marktæk en á mörkunum að vera það,
svo orsakasamhengið er nokkuð skýrt
(mynd 4). Þó er það þannig að magn
köfnunarefnis er afgerandi þáttur á
aukna legu af ræktunarþáttum.
Stærri sáðmagnsskammtar drógu
úr stönglaþyngd hjá báðum yrkjum
milli minnsta og mesta sáðmagns
(mynd 5). Það er því vísbending
um minna byggingarefni á lengdar-
einingu og minni eðlisþyngd strás.
Mæling á stönglaþyngd er ný af nál-
inni í íslenskum byggrannsóknum.
Stönglaþyngd er mæling á þyngd
strás á ákveðinni lengd þess, mælt
sem milligrömm á sentimetra (mg/
cm). Þetta er einföld aðferð til að
meta brotþolsstyrk óbeint og fann
Ingvar Björnsson í sínu mastersverk-
efni góða fylgni milli þess hlutfalls og
mælinga á brotþolsstyrk. Hins vegar
verður að viðurkennast að ekki fannst
marktæk fylgni milli stönglaþyngdar
og legu í þessari rannsókn en samt er
vart hægt að útiloka orsakasamhengi
þarna á milli.
Áhrif af köfnunarefni og sáðmagni
á leguhættu eru ólík. Köfnunarefni
eykur leguhættu með því að stráin
verða hærri með hærri þungamiðju
en aukið sáðmagn dregur úr styrk-
leika strásins. Það hefur samt líka
sýnt sig í erlendum rannsóknum að
lítið sáðmagn getur einnig aukið legu-
hættu. Þá fjölgar plantan stönglum af
hverju sáðkorni og rótarkerfið verður
ekki nægjanlegt akkeri til festa svo
umfangmikla plöntu í slagveðrum.
Ályktanir
Uppskeruaukning sem varð við
fyrstu styrkleikaaukningu í sáðmagni
stendur undir auknum kostnaði hjá
báðum yrkjum. Byggið nær viðun-
andi þroska og styrk en það dregur
úr því þegar aukið var við sáðmagnið
frekar. Það gildir að meðalhófið er
farsælast. Niðurstöðurnar benda til
að ráðlegt sáðmagn sé breytilegt fyrir
þessi yrki. Uppskerulega er meiri
akkúr í að auka sáðmagn hjá Judit
fremur en Kríu. Það er vegna þess
að sexraða yrki eins og Judit myndar
færri stöngla á hverja plöntu en tví-
raða yrki. Það gæti því verið hagur
í því að hafa sáðmagn hjá sexraða-
yrki um eða meira en 400 plöntur/
m2 (u.þ.b. 210 kg/ha) en hámarks
sáðskammtur hjá tvíraðayrki sam-
kvæmt þessum niðurstöðum ætti vera
að hámarki 400 plöntur/m2 (u.þ.b.
200 kg/ha) og helst minna til að fá
sem hagkvæmasta uppskeru.
Draga má þá ályktun að kjör-
sáðmagn sé háð framboði köfnunar-
efnis. Minna sáðmagn kom betur út
þar sem var lítið magn köfnunar-
efnis en stærri sáðmagnsskammtar
komu betur út þar sem var meira
köfnunarefni. Meðferðir, þar sem
saman fór minnsta áburðarmagn og
miðsáðmagn, miðáburðarmagn og
mesta sáðmagn, mesta áburðarmagn
og miðsáðmagn, komu best út upp-
skerulega. Ekki kom vel út að hafa
mikinn áburð þar sem var lítið sáð-
magn. Skynsamlegt gæti verið í frjó-
sömu landi að auka við sáðmagnið til
að ná þroska innan tímamarka og fá
góða uppskeru.
Niðurstaðan er að sáðmagn hefur
mikil áhrif á gæði uppskerunnar og
árangur kornræktarinnar en um leið
er mikilvægt að taka tillit til annarra
þátta eins og hér hefur verið rakið,
þegar ákveða skal heppilegasta sáð-
magnið.
Ritgerðina má nálgast í heild sinni
á www.skemman.is
Egill Gunnarsson,
Þóroddur Sveinsson og
Jónatan Hermannsson
Landbúnaðarháskóla Íslands
Egill Gunnarsson