Bændablaðið - 11.04.2013, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013
Hvað á að gefa kúnum
næsta vetur?
Á liðnum vetri hafa ráðunautar
gert NorFor-fóðuráætlanir fyrir
mjólkurkýr fyrir hátt í hundrað
bú. Hér eru vangaveltur um
fóður og fóðuröflun í framhaldi
af þeirri vinnu.
Þegar bændur skipuleggja
gróffóðuröflun sína fyrir komandi
ár og ákveða hvað skal rækta til
sláttar í sumar er mikilvægt að það
fóður sem vænta má að verði til
næsta haust og vetur passi saman
til gjafa. Túnin geta verið ólík, t.d.
hvað aldur ræktunar og gróður-
far varðar og þarf áburðargjöf og
sláttutími að vera í samræmi við
til hvaða nota uppskeran er ætluð.
Fóðrun og fóðuráætlanagerð
fyrir mjólkurkýr hefur reynst
hvað best með hey sem hefur háan
meltanleika (um og yfir 70%), gott
orkugildi (yfir 0,8 FEm/kg þe) og
með próteingildi á bilinu 140-180
g hráprótein/kg þe. Trénisinnihald
hefur víðaverið of hátt þar sem
of seint er slegið. Almennt er
mælt með að innihald meltanlegs
trénis (NDF) sé á bilinu 480-520
g/kg þe í góðu kúaheyi, og að
ómeltanlegt tréni (iNDF) sé ekki
hærra en 120 g/kg NDF því það
getur komið niður á orkuinnihaldi
heyjanna. Sláttutími hefur mikið
að segja um orku- og próteingildi
heyjanna og trénisinnihald, en þó
verður að sjálfsögðu að feta hinn
gullna meðalveg milli magns og
gæða uppskeru. Þá hefur veðurfar
á vorin einnig mikil áhrif s.s. á
ómeltanlegt tréni (iNDF) en í þurr-
um, köldum vorum er hættara við
að grösin fari snemma í kynvöxt,
þ.e. setji punt. Þá verður hlutfall
stöngla hátt á kostnað blaða og
hlutfall iNDF því hærra. Það sama
má segja með steinefnin sem eru
mikilvæg fyrir gripina okkar, en
það hefur áður verið rakið í grein
hér í Bændablaðinu. Skynsamleg
notkun á köfnunarefnisáburði og
góð nýting búfjáráburðar getur
haft úrslitaáhrif á hvort heyin
verði próteinrík og þá má ekki
gleyma mikilvægi brennisteins í
próteinmyndun grasa. Hér á landi
getur verið skortur á brennisteini
í jarðvegi, einkum á þurrviðra-
sömum svæðum þar sem jarðvegur
er ólífrænn, s.s. sandar og melar.
Þá skiptir tegund plantna einnig
máli þar sem belgjurtir og smárar
innihalda jafnan minna tréni en
grös þó hinsvegar sé ómeltanlegi
hluti trénisins hlutfallslega hærri
í belgjurtum og smárum en í
grösum.
Þegar heimaöfluðu fóðri er
raðað saman í fóðuráætlun er
gott að gera sér grein fyrir heildar-
magni heyja af hverri tegund og
heildarmagni af heimaöfluðu eða
aðkeyptu, íslensku korni. Þá þarf
að skoða hvenær helsti burðartími
er hjá kúnum þannig að hægt sé að
gera sér í hugarlund hvenær mesta
þörfin er fyrir besta gróffóðrið.
Víða er rúllum eða stórböggum
raðað í stæður eftir sláttutíma eða
gæðum svo að hægt sé að nálgast
hverja tegund fyrir sig eftir því
sem það hentar.
Margir rækta korn til fóðurs
með ágætis árangri, bæði hvað
uppskeru og gæði varðar. Korn
(bygg og hveiti) inniheldur mikið
af sterkju sem brotnar hratt niður
í vömb en tiltölulega lítið af
hrápróteini, algengt að það sé
11-13%. PBV-gildi kornsins er
því neikvætt, oft um og undir -30
g PBV/kg þe. Því þurfa hey sem
gefin eru með korni að innihalda
meðal magn hrápróteins eða meira
og hafa jákvætt PBV-gildi. Hægt
er að vega lág AAT- og PBV-
gildi korns upp með próteinríkum
kjarnfóðurblöndum en undirstaðan
þarf alltaf að vera gott gróffóður
ef gefa á mikið korn.
Í ljósi þess að víða um norðan
og austanvert landið hafa tún
verið svelluð um langan tíma
má búast við að endurræktun
túna og ræktun grænfóðurs verði
umfangsmikil á þeim svæðum.
Hentugar tegundir grænfóðurs til
beitar fyrir mjólkurkýr eru rýgresi
og vetrarrepja en þessar tegundir
gefa mikla og lystuga uppskeru.
Getur verið ágætt að blanda þeim
saman. Til sláttar er uppskera
grænfóðurs oftast
með lágu þurrefni enda
erfitt að þurrka það.
Það er því óheppilegt
að grænfóður verði
uppistaðan í fóðri
mjólkurkúa. Ef
vandað er til verka
getur rýgresi verkast
vel í rúllum og gefið
gott fóður, eitt sér eða
í blöndu með öðrum
tegundum. Til að fá
meira þurrefni getur
hentað að rækta í
heilsæði bygg eða
hafra með rýgresi og
vetrarrepju til rúllu-
eða stæðuverkunar.
Uppskera af slíkri
blöndu getur verið
mjög mikil og bæði
orku- og próteinrík ef
vel tekst til. Mikilvægt
er að kappkosta
hreinlæti við alla fóðurverkun og
útiloka jarðvegsmengun í rúllur og
heystæði. Notkun íblöndunarefna
hjálpar til að tryggja rétta verkun
og koma í veg fyrir óæskilega
gerjun á borð við smjörsýrugerjun.
Nokkur mikilvæg atriði:
Taka heysýni í samráði við
ráðunaut. Hirðingarsýni geta
hentað ef þurrefni er komið
upp fyrir 45% annars skal taka
verkað sýni. Mikilvægt er að
vanda til verka við sýnatöku og
fara eftir ráðleggingum.
Réttur áburðartími, rétt magn
og samsetning áburðar.
Hafa í túnunum grastegundir
sem skila góðri uppskeru hvað
varðar magn, gæði og lystug-
leika.
Vanda val á sláttutíma,
heyverkun og plöstun á heyi.
Velja baggastæðum úti góða
staðsetningu varðandi aðgengi
að þeim og að áhrif veðurs verði
sem minnst. Verja stæðurnar
fyrir skepnum og skipuleggja
þær þannig að auðvelt sé að velja
hentugt hey hverju sinni.
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
Ráðunautur í fóðrun hjá
Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins
Eiríkur Loftsson
Ráðunautur í fóðrun hjá
Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins
Jóna Þórunn
Ragnarsdóttir
Eiríkur Loftsson
Uppruni og búseta: Fæddur á
Húsavík og að mestu uppalinn
þar. Nú búsettur í Litlu-Brekku
Hörgársveit.
Menntun og fyrri störf:
Búfræðingur frá Hvanneyri, stúdent
frá VMA og Landbrugstekniker
frá Danmörku. Starfaði áður sem
framvæmdastjóri Búgarðs á Akureyri
og þar áður sem forstöðumaður
fóðuriðnaðar KS í Skagafirði.
Nafn: Berglind Ósk Óðinsdóttir.
Starfsheiti: Starfsmannastjóri.
Starfsstöð: Hvanneyri.
Uppruni og búseta: Fædd og uppal-
in á Hauganesi við Eyjafjörð þar
sem hún skottaðist um í fiskhúsinu
eða niður á bryggju. Núna búsett á
Hvanneyri með Sigtryggi Veigari
Herbertssyni og tveim drengjum 10
og 2 ára.
Menntun og fyrri störf: Lauk stúd-
entsprófi frá Verkmenntaskólanum
á Akureyri árið 2000, kenndi í
grunnskóla þrjá vetur en fór svo í
Búvísindadeildina á Hvanneyri.
Kláraði þar fyrst BSc próf, fór svo
í skiptinám til Noregs og kláraði í
kjölfarið MSc próf í fóðurfræði. Vann
sem ráðunautur hjá Bændasamtökum
Íslands frá útskrift að stofnun RML.
Kem til með að halda tengingu við
fóðurfræðina með því að taka þátt í
starfi faghóps um fóðrun.
Nafn: Gunnar Guðmundsson.
Starfsheiti: Verkefnisstjóri
þekkingar yfirfærslu og erlendra
samskipta.
Starfsstöð: Borgarfjörður (Hestur
/ Hvanneyri).
Uppruni og búseta: Fæddur á
Kirkjubóli í Dýrafirði 13. apríl 1948
og uppalinn þar. Kvæntur Gíslínu
Lóu Kristinsdóttur, ljósmóður.
Þau búa á Akranesi og eiga þrjár
uppkomnar dætur.
Menntun og fyrri störf: Próf frá
Samvinnuskólanum á Bifröst, 1969,
búfræðingur frá Bændaskólanum á
Hvanneyri 1970, búfræðikandidat
frá Framhaldsdeild Bændaskólans
á Hvanneyri 1973, Dr. Scient
próf í fóðurfræði jórturdýra frá
Norges Landbrukshögskole
að Ási í Noregi 1979. Bú- og
tilraunastjóri á tilraunabúi
Búnaðarsambands Suðurlands
og Rala í Laugardælum í Flóa
1980-1986, fóðurráðunautur hjá
Búnaðarfélagi Íslands 1986-1989.
Forstöðumaður kjötafurðasviðs
Kaupfélags Borgfirðinga 1990-
1994, nautgriparæktarráðunautur
hjá Búnaðarfélagi Íslands, síðar
Bændasamtökum Íslands 1994-
1999 og sviðsstjóri ráðgjafarsviðs
BÍ frá 2000 til ársloka 2012.
Hefur tekið þátt í ýmsum félags-
og nefndastörfum innan og utan
landbúnaðarins. Fulltrúi í stjórn
NorFór - félags um starfrækslu
norræna fóðurmatskerfisins fyrir
nautgripi.
Nafn: Helga Halldórsdóttir.
Starfsheiti: Verkefnisstjóri þróunar
og samskipta hjá RML.
Starfsstöð: Hvanneyri.
Uppruni og búseta: Fædd
1962 og uppalin á Minni-Borg í
Miklaholtshreppi, Snæfellsnesi. Hefur
búið í Borgarnesi frá árinu 1981. Gift
Gunnari Jónssyni og eiga þau þrjú
uppkomin börn.
Menntun og fyrri störf:
Leiðsögumaður frá EHÍ, Diploma í
opinberri stjórnun og stjórnsýslu frá
EHÍ, stúdent frá FVA. Starfsmaður
á skrifstofu BV frá 1998 og
skrifstofustjóri BV frá 2006 til loka
árs 2012. Rekur með fjölskyldunni
ferðaþjónustufyrirtækið Egils
Guesthouse í Borgarnesi.
Nafn: Sigrún Brynja Ingimundar-
dóttir.
Starfsheiti: Skrifstofumaður.
Starfsstöð: Sauðárkrókur.
Uppruni og búseta: Er frá Ketu
í Hegranesi, Skagafirði. Búsett á
Sauðárkróki. Gift Símoni Baldri
Skarphéðinssyni og eiga þau þrjú börn
og sex barnabörn.
Menntun og fyrri störf: Hóf
skólagöngu í barnaskóla Rípurhrepps
og svo í Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Vann að mestu við verslunarstörf,
þar af í níu ár í eigin verslun. Hjá
Leiðbeiningamiðstöðinni ehf. frá
2001.
Nafn: Oddný Kristín Guðmundsdóttir.
Starfsheiti: Skrifstofumaður.
Starfsstöð: Hvanneyri.
Uppruni og búseta: Fædd í
Borgarnesi og uppalin á Hvanneyri
frá sjö ára aldri en er einnig ættuð úr
Vatnsdal. Búsett á Hvanneyri, er gift
Borgari Páli Bragasyni og eiga þau
tvö börn.
Menntun og fyrri störf: Stúdent
frá Fjölbrautarskóla Vesturlands á
Akranesi 1993. Viðskiptafræðingur
frá Bifröst 2004. Hefur starfað við
ýmislegt í gegnum tíðina, m.a. við
skrifstofustörf, ferðaþjónustu og störf
tengd landbúnaði. Starfaði sl. 9 ár hjá
Búnaðarsamtökum Vesturlands.