Bændablaðið - 11.04.2013, Page 57

Bændablaðið - 11.04.2013, Page 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 s.s. klaufskurðarbásum, fötum og stígvélum og slíku. Alltaf er rétt að minna á smitgát þegar farið er á milli búa og sér í lagi með búnað eða fatnað sem hefur komist í snertingu við skít. Þá var farið afar vel yfir útbreiðslu Schmallenberg-vírussins í Evrópu, en vírus þessi flyst með flugum og veldur vansköpun ef kýr eða ær smitast á vissu stigi meðgöngunnar. Kosturinn við þennan vírus er þó sá að dýrin mynda skjótt mótefni og fer sjúkdómurinn því hratt yfir og ætti ekki að valda miklum usla aftur. Hitt erindið var einnig afar áhugavert, en það fjallaði um notkun sauðfjár til þess að halda gróðri niðri á grænum svæðum í byggð með beit. Þó nokkuð er um það að sveitarfélög kaupi slíka þjónustu af sauðfjárbændum. Nokkuð misjöfn reynsla er þó af þessu kerfi í Danmörku og virðast a.m.k. enn sem komið er ekki margir sauðfjárbændur bera mikið úr býtum. Almennt Síðasta málstofan var svo almenns eðlis, þ.e. með erindum sem erfitt var að setja í einn flokk. Þarna mátti hlýða á mörg góð erindi, s.s. „Lifðu lífinu í jafnvægi“ sem Solvejg Høj flutti, en hún er félagsráðgjafi og hefur sérhæft sig í að aðstoða bændur sem eiga í erfiðleikum í einkalífinu. Að hennar sögn er það mun algengara en fólk heldur að óhamingja sé til staðar, oft vegna álags sem fylgir því að vera í búskap og það sér í lagi hjá mökum bændanna. Hún nálgaðist erindi sitt á einkar áhugaverðan hátt, m.a. með því að skipta allsstaðar út orðinu „kú“ í hefðbundnum glærum fóðurráðgjafa með „kona“ og náði óskiptri athygli kúabændanna fyrir vikið. Önnur fín erindi voru flutt á málstofunni og snéru þau að ráðgjöfum bændanna, hvernig þeir geti m.a. bætt sig í framkomu. Veki efnið hér fyrir neðan áhuga má nálgast öll erindin (flest á dönsku, sum á ensku) á heimasíðu fagþingsins: www. kvaegkongres.dk. Neðst á síðunni eru marglitir kassar sem standa fyrir hverja málstofu sem hér hefur verið lýst, sem og í fyrri samantektinni. Snorri Sigurðsson Nautagriparæktarsviði Þekkingar seturs land búnaðarins í Danmörku. sns@vfl.dk Innmatur stórgripa er oft vannýttur og endar hreinlega oft sem gæludýrafóður. Sé hann rétt meðhöndlaður þykir þetta herramannsmatur í sumum löndum. Hér má sjá framleiðsluferilinn sem svo endar með niðurskornum smábitum sem nýttir eru m.a. í sérstaka súpu. Þessi vara er seld á um 4,5 evrur pr. kíló út úr búð eða um 700 kr./kg. Weidemann smávélar létta þér verkin Dalvegi 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Nýtið ykkur hagstætt gengi og gerið góð kaup í Weidemann smávélum Weidemann 1140CX30 • 25 hestafla • Lyftigeta 798 kg í beinni stöðu • Keyrsla áfram/aftur á bak með rofa í stjórnstöng Verð kr. 3.290.000,- án vsk. (kr. 4.128.950,- m/vsk.) Weidemann 1240CX35 • 35 hestafla • Lyftigeta 1151 kg í beinni stöðu • Keyrsla áfram/aftur á bak með rofa í stjórnstöng Verð kr. 3.860.000,- án vsk. (kr. 4.844.300,- m/vsk.) Weidemann 1160CX30 • 35 hestafla • Lyftigeta 995 kg í beinni stöðu • Keyrsla áfram/aftur á bak með rofa í stjórnstöng Verð kr. 3.540.000,- án vsk. (kr. 4.442.700,- m/vsk.) Eigum til afgreiðslu með stuttum fyrirvara GIRÐINGAR EFNI husa.is HLUTI AF BYGMA ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI SÍÐAN 1956 MIKIÐ ÚRVAL FRÁBÆRT VERÐ Erum að fá í hús! F A GM ANN A KLÚBBU R NÚ LÍKA FYRIR BÆNDUR! ERTU BÚINN AÐ SKRÁ ÞIG?

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.