Bændablaðið - 11.04.2013, Síða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013
Á Hvannabrekku búa Steinþór
Björnsson og Auðbjörg Elísa
Stefánsdóttir ásamt börnum
sínum. Svo eru þau svo heppin
að eiga sveitarómaga sem
heitir Stefán Ingólfsson (pabbi
Auðbjargar).
Býli? Hvannabrekka.
Staðsett í sveit? Berufirði í
Djúpavogshreppi.
Ábúendur? Steinþór Björnsson
og Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir
ásamt börnum sínum.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Börnin eru Guðný Þóra (17 ára), Ína
Kathinka (13 ára), Guðrún Lilja (9
ára), Anna Jóna (7 ára), Stefán Valur
(3 ára) og Karólína Björt (2 ára).
Stærð jarðar? Tæpir 800 ha.
Gerð bús? Mjólkurframleiðsla og
kjötframleiðsla.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
erum með 31 mjólkandi kú og um
200 geldneyti á ýmsum aldri.
Einnig 24 kindur, 50 hænur, 11
endur, fimm kanínur, einn hund
og svo norskan skógarkött sem
heitir Göltur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hér á bæ byrjar dagurinn
snemma, klukkan 05. Þá eru
mjaltir og svo er að koma
börnunum í skólabílinn og í
framhaldi af því er farið að sinna
geldneytum og fiðurfénaði.
Sinnum svo ýmsum störfum fram
að hádegi. Eftir mat er farið að
sinna kúnum og fjósverkum og
fram að kvöldmjöltum er ýmsum
bústörfum sinnt. Kvöldmjaltir eru
klukkan fimm. Þegar mjöltum og
fjósverkum er lokið er farið að sinna
börnum og koma þeim í háttinn.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Okkur finnst flestallt
skemmtilegt en konunni finnst
leiðinlegast að moka út úr
hænsnakofanum.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Með svipuðu sniði og
vonandi með meiri kornrækt.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Höfum svo
sem enga skoðun á því.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni? Það
er erfitt að spá í það.
Hvar teljið þið helstu tækifærin
í útflutningi íslenskra búvara?
Að koma íslenskum vörum á
markaði sem geta greitt hátt verð
fyrir gæðavöru.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Lýsi og mjólk.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Hakk, spaghettí og
alvöru kartöflumús.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það var þegar við tókum
mjaltabásinn í notkun.
Á metsölulista bóksala um þessar
mundir er lífsstíls- og uppskrifta-
bókin Lág kolvetna lífsstílinn eftir
líkamsræktarþjálfarann og heilsu-
ráðgjafann Gunnar Má Sigfússon.
Þar kynnir hann út á hvað lág kol-
vetna lífsstílinn gengur og vitnar
þar í fjölda rannsókna. Í bókinni
eru síðan uppskriftir til þriggja
vikna fyrir þá sem vilja prófa en
þær eru hver annarri girnilegri,
innihalda fá hráefni og eru fljótlegt
að matreiða þær.
Sunnudagspítsan
Botninn
› 3 egg
› 200 g rjómaostur
› 2 dl möndlumjöl
› 1 msk. Husk trefjar
› 2 dl rifinn ostur
› Smá salt
Sósan
› ½ dós maukaðir tómatar
› 2 hvítlauksrif, pressuð
› 2 msk. lífræn ólífuolía
› 1 msk. oregano
› Salt
› pipar
Aðferð:
Hrærið saman eggjum og rjómaosti.
Blandið síðan hinu hráefninu saman
við. Fletjið út á smjörpappír og bakið
í 15 mínútur við 180 °C.
Hrærið innihaldi sósunnar vel saman.
Setjið sósuna á þegar búið er að
forbaka botninn og álegg að vild.
Setjið aftur inn í ofn í 10-15 mínútur
við 180 °C. Þegar pítsan kemur út
úr ofninum, setjið klettasalat, ferska
basilíku og ólífuolíu yfir.
Súkkulaðikaka
› 100 g smjör
› 70 g 70% súkkulaði
› 2 egg
› 2 tsk. vanilluduft eða vanilludropar
› 2 tsk. tilbúið kaffi
› 1 dl rjómi
› 1 g stevia-sætuefni
Aðferð:
Bræðið smjör og súkkulaði saman
á lágum hita. Bætið síðan rjóma út
í. Þeytið hinu hráefninu saman með
handþeytara, smyrjið eldfast mót og
bakið við 200 °C í 6-8 mínútur.
/ehg
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
MATARKRÓKURINN
Lægra innihald kolvetna
og meiri fita
Hvannabrekka