Bændablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 67
67Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013
Elísabet Helga Jónsdóttir er
12 ára gömul og nemandi við
Grunnskólann í Sandgerði. Í skól-
anum eru smíði og frímínútur í
uppáhaldi en fyrir utan skóla æfir
hún sig og spilar á þverflautu.
Nafn: Elísabet Helga Jónsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Sandgerði.
Skóli: Grunnskólinn í Sandgerði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Smíði og frímínútur.
Hvað er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur, því þeir eru svo góðir.
Uppáhaldsmatur? Grjónagrautur.
Uppáhaldshljómsveit? Ásgeir
Trausti er besti söngvarinn. Þannig
að það er hann og hljómsveitin sem
er með honum.
Uppáhaldskvikmynd? Mýrin. Því
hún er spennandi og tekin smá upp
í Sandgerði.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
fór í þvottahúsið hjá afa og sagði:
Mamma, sjáðu afi er að gera í sig.
Æfir þú íþróttir, eða spilar þú á
hljóðfæri? Ég spila á þverflautu.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Mér finnst ekkert
sérstaklega gaman í tölvu. Vil frekar
vera úti að leika.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Hárgreiðslukona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég klifraði upp í
bát og þá kom maður alveg brjálaður
og hótaði að hringja í lögregluna. Við
hlupum þá í burtu heim til ömmu
vinkonu minnar.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að laga til í herberginu
mínu. Mér finnst líka náttúrufræði
og sund ekkert svakalega skemmti-
legt. /ehg
Hátíðarkragi
PRJÓNAHORNIÐ
Nú standa yfir fermingar og síðan
taka brúðkaupin við. Víða er það
svo að við hittum sama fólkið aftur
og aftur við þessar athafnir og
ekki er hægt að kaupa kjól í hvert
skipti. Þá er gott að eiga kraga eða
einhverja fylgihluti sem breyta
kjólnum. Þennan kraga er auðvelt
að hekla á einni kvöldstund.
Efni:
Whistler frá garn.is svart með silfurþræði,
1 dokka eða silfurlitað en whistler er líka til í
tveimur rauðum litum, grænu, fjólubláu og
bleiku.
Heklunál nr. 4 og svo ein falleg tala.
Við getum haft kragann víðan og líka upp í háls
þannig að við gefum upp lykkjufjölda fyrir tvær
stærðir.
Byrjað er að fitja upp með 130 (110) loft-
lykkjum.
1. umf. Heklið nú fastalykkju í hverja loftlykkju
nema byrjið í 6 loftlykkju frá nálinni til að mynda
hnappagat. Það getur líka verið 7 eða 8 loftlykkja
eftir því hvað þið viljið hafa töluna stóra. Ef þið
hafið flotta skrautlega tölu sem puntar má hún
alveg sjást vel. Snúið við og heklið 1 loftlykkju.
2. umf. Heklið nú 1 fastalykkju í hverja fastalykkju
út umferð, snúið á sama hátt og áður.
3. umf. Heklið 1 fastalykkju í næstu 8 l og síðan
#2 fastalykkjur í næstu l og 9 fastalykkjur í næstu
9 l# endurtakið # til # endið með 2 fastal.í eina
fastalykkju og eina út umferðina. Snúið við.
4. umf. Heklið 1 fastal. í næstu 8 l.# 2 fastalykkjur
í næstu fastalykkju, síðan eina í næstu 10 l #
endurtakið # til #2 fastal í næstu fastal. og eina
i hverja l út umferð. Snúið við.
5. umf. Heklið 1 fastal. í næstu 8 l. # 2 fastalykkjur
í næstu l og eina fastal í hverja fastal í næstu 11
l. endurtakið # til # endið með 2 fastal. í næstu l
og eina í hverja l út umferðina. Snúið við. Reynið
að láta útaukninguna standast á á milli umferða.
Snúið við.
6. umf. Heklið nú 3 loftl. , hoppið yfir 4 fyrstu
fastal., 1 stuðull í næstu fastalykkju, 3 loftlykkur,
1 stuðull í sömu fastalykkju # hoppið yfir 4
fastalykkjur, heklið 1 stuðul í næstu fastal., 3
loftlykkjur, 1 stuðull í sömu fastalykkju # endur-
takið # til # þar til umferðin er á enda, endið með
1 stuðli í síðustu fastal. Snúið við.
7. umf. Heklið nú 3 loftlykkjur, en í hvern boga
eru nú heklaðir 2 stuðar 4 loftlykkjur og 2 stuðlar
endurtekið út umferðina, endað með 1 stuðli í
3. loftlykkju í byrjun fyrri umferðar. Snúið við.
8. umf. Heklið 3 loftlykkjur , núna eru heklaðir 3
stuðlar, 4 loftlykkjur og 3 stuðlar í hvern boga út
umferðina, endað með 1 stuðli í 3 loftl í byrjun
fyrri umferðar. Snúið við.
9. umf. Heklið nú 4 stuðla í loftlykkjubogann
frá fyrri umferð, fitjið upp 3 loftlykkjur, stingið
heklunálinni gegnum fyrstu loftlykkjuna,
dragið bandið í gegn og dragið svo bandið
gegnum báðar lykkjurnar heklið síðan 4 stuðla,
1 fastalykkju í næsta boga, endurtakið þetta út
umferðina og endið með því að tengja síðustu
4 stuðlana við stuðlana í umferðinni á undan.
Dragið bandið í gegnum síðustu lykkjuna og
gangið frá endanum. Saumið töluna í.
Góða skemmtun.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Útivera skemmtilegri en tölvustundir
Ný hannyrðabók:
Fjölbreytt og fall-
egt sokkaprjón
Ekkert lát virðist á útgáfu
hannyrðabóka enda viðfangs-
efnið mjög vinsælt. Hlýir fætur
– Sokkauppskriftir er komin
út hjá Bókaútgáfunni Sölku en
hönnuðir sokkanna eru Ágústa
Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk
Harðardóttir.
Í bókinni eru 54 uppskriftir að
sokkum af mismunandi stærðum
og gerðum fyrir börn og full orðna.
Hér eru sokkar sem auð velt er að
prjóna, bæði háir og lágir, einbanda
og tvíbanda, allt frá sokkum til að
nota í göngu ferðir til fínlegri sokka í
bæjarferðina við stutt pils. Sérstakur
kafli er með einföldum uppskriftum
auk þess em ítarlegar leiðbeiningar
eru um sokka prjón. Einnig eru upp-
skriftir fyrir þá sem eru lengra komn-
ir og jafnvel þá sem vilja spreyta sig
á eigin hönnun. Gefnar eru al menn ar
leið bein ingar um sokka prjón bæði ef
fylgt er upp skriftum til hins ýtrasta
eða ef menn vilja nýta sér hug mynd-
irnar til að út færa sína eigin sokka.
Bókin er prýdd líflegum myndum og
aðgengilegum teikningum sem gera
fjölbreytt sokkaprjón að leik einum.
4 2
8 5
1 9 7 4
2 6 4
3 8
7 4 9
6 8 4 1
7 2
3 5
7 8
2 6 9 7
1 4
5 2 1
2 5 6
8 7 9
4
3 8 6
1 8 4 2 6
8 7 1
4 3
4 3 1 7
5 9 2
9 4 5
6 9 1
92 1
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er af
sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er
lengst til vinstri er léttust og sú til hægri
þyngst en sú í miðjunni þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautir á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
9
7
Elísabet Helga ætlar að verða hár-
greiðslukona þegar hún verður stór.
Kápa nýju hannyrðabókarinnar Hlýir
fætur.
Eignatorg kynnir til sölu:
Lögbýlið Skeiðflöt í Mýrdal
Jörðin er talin vera 102 ha,
þ.a. um 37 ha ræktað land
og annað land að mestu
leyti vel gróið.
Á jörðinni stendur 320
fm íbúðarhús á tveimur
hæðum með innbyggðum
bílskúr ásamt ágætum úti-
húsum.
Jörðin stendur í stuttu ökufæri frá Vík í Mýrdal (um 13 km) og stað-
setning hennar býður upp á mikla möguleika í ferðaþjónustu, hesta-
mennsku o.fl.
Eitt af einkennum staðarins er fagurgræn Esperanto stjarna sem mörk-
uð er í krappa hæð við bæinn og sem borið hefur verið á í nærri 45 ár.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-
sali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b
105 Reykjavík
Sími: 510 3500
eignatorg@eignatorg.is