Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1960, Side 39

Læknablaðið - 01.06.1960, Side 39
L Æ K N A B L A Ð I Ð 69 trum anatomico-chirurgicum og síðan arftaka þess, Kirurgisk Akademis, sem slotaði ekki fyrr en 1838, að það var sameinað læknadeildinni. Hér við má svo bæta einni hrellingunni enn fyrir lækna- deildina. Þegar hinn fyrsti al- menni spítali tók til starfa í Kaupmannahöfn 1757, Friðriks- spítali, þá urðu starfsmenn og nemar Theatrum læknar hans, en nemar og læknar læknadeild- ar fengu þar engan aðgang fyrst í stað. Meðan þessu fór fram hjá Ivryger, stóð háskólinn enn uppi rúinn að lieita öllum kennslu- tækjum í læknisfræði. Það var ekki fvrr en 1740, að Dethard- ing tókst að koma á laggirnar likskurðarstofu og smáherbergi fyrir væntanlega náttúrugripi, og varð hann að leggja fé til þess úi' eigin vasa, en fékk það þó endurgreitt síðar. Þá var jafnframt ákveðið, að háskólinn ætti að fá annaðhvert lík á móti Tlieatrum anatomico-chirurgi- cum, en þar með var ekki allt fengið, því að enn þá vantaði prosektor til aðstoðar Bucli- wald, sem var anatomiu-kenn- arinn. Hann sótti því um að fá helming þeirrar uppliæðar (400 rd.), sem stofnun Krvgers hafði til þessara nota, til að launa prosektor, en fékk það svar, að S. Kryger myndi lána honum mann, þegar með þyrfti. Þetta hoð mun þó Buclnvald ekki hafa þegið, af skiljanlegum ástæðum, og því mun hafa verið lítið um líkskurð hjá honum. Það verður því ekki sagt, að kennslustofnunin hafi verið glæsileg, sem Bjarni Pálsson settist í, en um læknanámið seg- ir i ævisögu lians, að jústisráð Detharding liafi verið „fyrsti lærari Bjarna í Læknis-list, upp- örfaði hann eins og faðir, og kom honum til að offra sig all- ann Læknis-gyðjunni Hvgienu, en deyði af hrotfalli, þann 23ja Octóhr. 1747 (á að vera 19. okt.); og þráði ætíð Bjarni hann mjög“ (33.—34. bls.). Hér er ekki nánar tekið fram, hvað De- tharding kenndi, en kennslu- skrárnar fyrir árin 1738—’44 eru samhljóða um kennslu lians, svo að gera má ráð fvrir, að hún liafi verið óbreytt 1747, en í kennsluskránum segir um hana: „Hora 11 Quæ ad Medi- cinæ dogmata capienda et ad seientiam naturalem sihi com- parandam facere poterunt puh- lice et privatim Auditoribus isthoc sitientibus instillare porro sedulus erit.“ (Panum 1880, 63. bls.). Þó að Dönum liafi ekki þótt mikið til Detliardings koma sem vísindamanns, þá var hann dug- legur og samvizkusamur kenn- ari, og Bjarni hefur sýnilega liænzt að honum. En varla er gerandi ráð fyrir, að liann hafi haft mikil áhrif á lækniskunn- áttu Bjarna svo skamma hrið

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.