Læknablaðið - 01.06.1960, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ
87
Hallgrímur Björnsson læknir
hefur frá upphafi verið aðstoð-
arlæknir við allar aðgerðir, en
Torfi Bjarnason héraðslæknir
hér síðan 1956 annazt röntgen-
myndatökur og sjúkraliúslækn-
isstörf í forföllum. Síðan 1958
hafa starfað sem 2. aðstoðar-
læknir: Bragi Nielsson, Niku-
lás Sigfússon og Daníel Guðna-
son.
Ráðsmaður hefur frá upphafi
verið Bjarni Theódór Guð-
mundsson, en ráðskona lengst
af Guðljjörg Árnadóttir. Yfir-
lijúkrunarkona var fyrst Jónína
Bjarnadóttir, en Sigurlín Gunn-
arsdóttir hefur gegnt því starfi
síðan 1956.
Að jafnaði starfa f jórar hjúkr-
unarkonur og tveir lijúkrunar-
nemar hér, en alls er starfsfólk
venjulega 25 manns. Eru þar á
meðal tvær ljósmæður, því að
að jafnaði fæða nú 130—150
konur í sjúkrahúsinu ár hvert.
Framtíðarhorfur.
Flestir sjúklinganna myndu á
sjúkrahúsum með deildaskipt-
ingu fara á liandlækninga- eða
fæðingar- og kvensjúkdóma-
deildir. Hefur verið lögð áherzla
á, að hægt sé að rannsaka og
gera allar algengari aðgerðir,
sem lieyra þar undir. Eru að
jafnaði gerðar milli 300 og 400
aðgerðir á skurðstofu ár hvert.
Framtíðarvonir okkar hér eru
þess vegua þær, að einnig sé
hægl að fá betri skilyrði fyrir
meðferð lyflækningasjúklinga.
Yæri stærsta spor í þá átt að
geta stækkað sjúkrahúsið, svo
að unnt yrði að veita þeim sjúkl-
ingum sjúkrahúsvist, sem á
þyrftu að halda. Sköpuðust þá
um leið skilyrði til deildaskipt-
ingar, og vafalaust drægist þetta
ekki mjög lengi, ef sjúkrahúsið
fengi réttindi fjórðungssjúkra-
liúss.
------•------
Frá lœknuiH:
Halldór Arinbjarnar læknir hefur
hinn 18. marz 1960 fengið leyfi til
að mega starfa sem sérfræðingur
í handlækningum. Halldór hefur
verið aðstoðarlæknir við hand-
læknisdeild Landspítealans frá 1.
jan. 1960.
Leifur Björnsson cand. med. hef-
ur hinn 18. marz 1960 fengið leyfi
til þess að mega stunda almenn-
ar lækningar hér á landi.
Hannes Finnbogason, héraðslækn-
ir á Patreksfirði, hefur verið skip-
aður héraðslæknir í Blönduóshér-
aði frá 1. júní 1960 að telja.
Garðar Þ. Guðujónsson, héraðs-
læknir í Hólmavíkurhéraði, hefur
fengið lausn frá embætti frá 1. maí
1960 að telja.
Magnús Þorsteinsson cand. med.
et chir., hefur hinn 22. apríl 1960
fengið leyfi til að stunda almennar
lækningar hér á landi. Sama dag
var honum einnig veitt leyfi til þess
að starfa sem sérfræðingur i barna-
sjúkdómum.
Guðmundur Bjarnason cand. med.
et chir. hefur hinn 25. apríl 1960
fengið leyfi til þess að stunda al-
mennar lækningar hér á landi.