Læknablaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ
51
menntaskóla, en síðan urðum
við að mestu samferða í gegn-
um háskólanám, og leiðir okk-
ar lágu oft saman á lífsleiðinni
síðar meir. Hann var röskur
námsmaður og þótti góður próf-
maður. Hann var hrókur alls
fagnaðar í vinahóp, glaður og
léttur, lagviss og ljóðelskur og
söngmaður góður.
Hann var fríður sýnum, með
hærri mönnum, karlmannlegur
og skörulegur í framgöngu.
En hið athyglisverðasta i fari
Brynjúlfs var hin sérkennilega
frásagnargáfa lians. Hann kunni
ógrynni af sögum og sögnum,
var vel máli farinn og hafði
yndi af að segja frá og gat gætt
hina einföldustu frásögn lífi og
dramatískum hlæ, sem hreif
áheyrendur. Hann hafði einnig
áhuga á fornfræðagrúski og
safnaði gömlum lækningatækj-
um, íslenzkum. Síðarmeir vakti
hann máls á þessu áhugamáli
sínu á læknafundi og Ijauðst til
að gefa safn sitt sem vísi að
stærra safni lækningatækja, er
læknafélögin kæniu sér upp.
Ivom hann um leið fram með
þá hugmynd, að æskilegt væri,
að læknafélögin eignuðust Nes-
stofu á Seltjarnarnesi, þar sem
þetta safn vrði geymt og önnur
starfsemi félaganna gæti átt sér
samastað. Mátti í þessum áhuga-
málum Brynjúlfs og sérgáfu
glöggt sjá hina sterku ættar-
fvlgju þeirra langfeðga, forfeðra
hans.
Allt þetta tengdi hann sterk-
um böndum við það hezta í is-
lenzkri sveitamenningu,og hafði
hann þegar á unga aldri sýnt
það með brautryðjendastarfi í
ungmennafélagi heimahyggðar
sinnar.
Það var því engin tilviljun,
að Brynjúlfur helgaði sig lækn-
isþjónustu í sveitahéruðum; til
þess hafði hann til að hera nauð-
synlega bjartsýni og ósérhlífni
— og hugsjón. Hann hjó sig vel
undir héraðslæknisstarfið og
fylgdist jafnan vel með í vísind-
um læknisfræðinnar og var
fljótur að taka upp gagnlegar
nýjungar á því sviði.
Þegar Brynjúlfur var skipað-
ur fyrsti héraðslæknir í hinu
örtvaxandi bæjarfélagi Kópa-
vogi, hlöstu við ný viðfangsefni.
Það þurfti að láta í té daglega
læknisþjónustu og hvggja alla
heilhrigðisþjónustu upp frá
grunni. Hann gekk ótrauður að
þessu verki og aflaði sér sér-
menntunar í því skyni á sumar-
námskeiðum Sameinuðu þjóð-
anna, sem haldin hafa verið i
Gautahorg undanfarin ár.
Brynjúlfur var í taxtanefnd
Læknafélags íslands og rann-
sakaði það mál frá grunni og
ritaði um það skilmerkilega
grein í Læknahlaðið.
Hann tók smám saman meiri
og meiri þátt í félagsmálum,
jafnframt því sem á hann hlóðst
vaxandi læknisþjónusta, hæði
sem embættis- og starfandi