Læknablaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 58
78
LÆKNABLAÐIÐ
meningoencephalitis væri að
ræða.
1 flestum yfirlitum um rönt-
genrannsóknir á miðtaugakerfi
eru fylgikvillar taldir 9—10%,
allt talið (Bull). Aðgerðirnar
hér verða því að leljast fremur
fylgikvillalitlar, eða ca. 3%.
Rétt er að geta þess, að ein-
stöku sjúklingar, m. a. konan,
sem lamaðist, hafa verið rann-
sakaðir í svæfingu. Reglan er
þó að gera rannsóknirnar í stað-
devfingu, eins og að framan
hefur verið lýst, nema sjúkling-
ur sé úr liófi ósamvinnuþýður.
Margir sjúklinga þeirra, sem
gerð var arteriografia á, voru
með neurologisk einkenni, sem
bentu til thrombosis cerebri. I
töflu 6 eru greindir 6 sjúkling-
ar með occlusio eða athermoma-
tosis, en margir sjúklingar
með eðlilegt carotisartériogram
verða að teljast hafa verið með
insufficientia cerebrovascularis,
enda þótt sjúkdómsmyndin hafi
hent á thrombosis. Athyglisverð-
ur er sjúklingur nr. (500 50, sem
hafði meningeoma. Sjúkrasaga
lians benti mjög ákveðið til in-
sufficientia cerehrovascularis. í
nýlegu \rfirliti frá Mavo Cli-
nics, þar sem tekin voru sam-
an einkenni sjúklinga með me-
ningeoma, kom i Ijós, að um
14% þeirra höfðu einmitt ver-
ið álitnir vera með insufficientia
cerehrovascularis.
Sjúklingur nr. 58718 er einn-
ig athyglisvert dæmi um, að
heilaæðarannsókn getur gjör-
hreytt hinni klínisku sjúkdöms-
greiningu.
Hjá nokkrum sjúklingum í
efri aldursflokkum var röntgen-
rannsókn eðlileg, enda þótt þeir
væru með öll einkenni um hae-
morrhagia suhararclmoidealis.
Telja verður hlutverk röntgen-
rannsóknarinnar mikilvægt við
greiningu á haemorrhagia sub-
ararchnoidealis með skurðtæk-
um aneurysmata frá hinum.þar
sem ekki sést neitt aneurysma
og því tilgangslaust að senda
til aðgerðar. í þeim tilfellum er
lvfjameðferð ávallt notuð.
Útdráttur.
Gerð er grein fyrir röntgen-
rannsóknum á miðtaugakerfi,
gerðum við röntgendeild Land-
spítalans á 18 mánaða tímabili.
Gerðar voru 120 rannsóknir á
99 sjúklingum. Rannsóknar-
tækni er stidtlega lýst. Árangri
rannsóknanna er lýst með fjór-
um töflum og nokkru nánar
gerð grein fvrir afdrifum 15
sjúklinga.
S U M M A R Y.
Survey of 120 Neuroradiological
Examinations at The Roentgen
Dep:t. University Hospital, Reykja-
vík.
Ninety-nine patients were exa-
mined for various C.N.S. disorders
during an 18 months’ period. Fif-
teen cases are more fully discus-
sed. Complications rated 3 per
cent, including one 'hemiparesis
after examination under general