Læknablaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ
81
Smári og Guðmundur Björns-
son.
1. apríl var gengið frá samn-
ingum þeim við sjúkrasamlög
og Tryggingastofnun, sem verið
höfðu á döfinni frá því á önd-
verðu sumri 1961, og er skýrt
frá upphafi þessa máls og gangi
fram til lokastigs þess í árs-
skýrslu félagsins fyrir árið 1961.
Verður hér aðeins drepið á
nokkrar megin hreytingar, sem
samningar þessir fela í sér.
Að þessu sinni voru gerðir
þrír samningar við Sjúkrasam-
lag Reykjavíkur: 1) Samning-
ur fvrir lieimilislækna, 2) samn-
ingur fyrir sérfræðilæknishjálp
og 3) samkomulag fyrir læknis-
lijálp í sjúkrahúsum. Var samn-
ingagerð þessi að nokkru leyti
sniðin eftir danskri fyrirmvnd,
eins og áður hefur verið skýrt
frá.
Hér er um að ræða grund-
vallarbreytingu, sem felur í sér
möguleika til þess, að heimilis-
læknar annars vegar og sérfræð-
ingar hins vegar geti, sem tveir
aðskildir hópar, ráðið þeim
samningum, sem mestu varða
fyrir þeirra kjör. Einnig er með
breytingu þessari stefnt að því
að koma á fullkomnari verka-
skiptingu og hetri starfsaðstöðu
hjá læknum. Þá er og talið, að
með þessari aðferð verði unnt
að semja um nægilega háar
greiðslur til bess að hvort um
sig, heimilislæknisstörf eða sér-
fræðistörf, geti orðið hfvænlegt
án þess að blanda þurfi þessu
tvennu saman og annar liópur-
inn styðjist við hinn.
I samningi heimilislækna eru
nánari ákvæði um þróun verka-
skiptinga, og mun hún taka
nokkur ár. Er gert ráð fyrir,
að samningarnir verði endur-
skoðaðir með hliðsjón af þeirri
reynslu, sem fæst af hinu nýja
fvrirkomulagi. Er að finna í
samningnum ákvæði um þann
fjölda sjúkrasamlagssjúklinga,
sem menn geta haft á skrá hjá
sér og jafnframt orðið aðilar
að sérfræðisamningnum. Fari
menn upp fvrir þessi ákvæði,
geta þeir ekki orðið aðilar að
sérfræðisamningi.
Þá var í sanmingi þessum
gerð veruleg hreyting á vinnu-
tíma lækna, þannig að fimm
daga vikunnar stvttist hann um
eina klst. og á laugardögum um
fimm ldst., en auk þess 'hefur
tími sá, er læknum er skylt að
taka á móti vitjanaheiðnum,
verið stvttur um fimm klst. alla
daga vikunnar, kvöldvakt var
lengd um eina klst., nema á
laugardögum var lnin lengd um
fimm klst. Neyðarvakt var tek-
in upp aðra daga frá kl. 13—17.
Grundvallarbreytingar voru
gerðar á ákvörðun fastagjalds,
þannig að nú greiðir samlagið
fvrir 95% allra íbúa miðað við
þjóðskrá. Nokkrar breytingar
voru gerðar á skvldum lækna
varðandi símaviðtalstíma og
kvöldviðtalstíma. Þá voru gerð-