Læknablaðið - 01.06.1963, Page 77
LÆKNABLAÐIÐ
93
við Pál Kolka um að rita sögu
félagsins í tilefni af 50 ára af-
mæli þess. Hefur Páll nú hafið
þetta starf og aflað allmikilla
gagna og mun liafa að mestu
lokið við að semja hinn almenna
inngang að félagsmálasögu ís-
lenzkra lækna. Gert er ráð fvr-
ir, að máli þessu miði það vel
nú, að handrit verði tilhúið lil
prentunar næsta haust.
Samkvæmi.
Hinn 18. nóvember 1962 huðu
læknar varnarliðsins í Keflavík
Læknafélagi Reykjavíkur til
síðdegisdrykkju, „cocktail-
party“, í samkomusal yfir-
manna varnarliðsins. Tóku þátt
í hoði þessu 60—70 læknar
ásamt konum sínum, og þótti
þátttakcndum ferðin liinn mesti
mannfagnaður.
11. janúar var haldin hin ár-
lega jólatrésskemmtun L. R.
Var hún haldin á Hótel Borg
og mjög vel sótt og þótti tak-
ast hið bezta.
2. marz var haldin ársíiátíð
L. R. Var hún einnig haldin að
Hótel Borg og var fjölsótt að
vanda. Hófinu stjórnaði for-
maður Læknafélagsins, en Öm-
ar Ragnarsson flutti skemmti-
þátt, og nemendur úr dansskóla
Hermanns Ragnars höfðu þar
danssýningu. Hófið fór fram
með ágætum og þótti hin bezta
skemmtun.
Eftirlit og upplýsingar
um stöður lækna.
Með lögunum, sem samþvkkt
voru um samningsrétt opin-
herra starfsmanna í apríl 1962,
skapast ýmis ný viðhorf varð-
andi launakjör og starfsaðstöðu
lækna. Einn þáttur í þessu máli
er sá, að Læknafélag Reykjavík-
ur þarf að taka upp nánara eft-
irlit og meiri upplýsingastarf-
semi í samhandi við stöður þær,
sem auglýstar eru lausar fyrir
lækna.
Launamunur verður meiri í
framtíðinni en nú er, og skap-
ar það að sjálfsögðu freistingu
opinherra aðila til þess aðstofna
stöður í lágum floklcum og gera
tilraun til þess að ná mönnum
inn í þau störf með meiri
menntun en samsvarar launa-
greiðslum. Hefur jafnvel örlað
á slíku að undanförnu og er þörf
aðgæzlu á þessu sviði.
Þetta mál var tekið upp í árs-
byrjun 1963, og 13. janúar var
öllum félagsmönnum ritað bréf
varðandi stöðu, sem auglýst
hafði veriðvið Slysavarðstofuna.
26. janúar var öllum læknum
í félaginu einnig ritað hréf varð-
andi stöður, sem auglýstar
höfðu verið við Kleppsspítalann.
Ekki er ólíklegt, að nauðsynlegt
reynist að koma á fót fastri
nefnd til að hafa eftirlit og um-
sjón með þessum málum.
Framhald í nœsta hefti.