Læknablaðið - 01.09.1963, Qupperneq 32
108
LÆKNABLAÐIÐ
Þessari fréttatilkynningu svaraði
stjórn L. R. með eftirfarandi at-
hugasemd 7. nóv. 1962:
„Þann 3. nóv. s.l. birti rikisstjórn-
in tölulegt yfirlit yfir launagreiðsl-
ur úr ríkissjóði til fastráðinna
sjúkrahúslækna. Eftirfarandi atriði
fréttatilkynningar þessarar þurfa
einkum athugunar við:
a. Gersamlega skortir allar upp-
lýsingar um vinnutíma læknanna.
b. Engin sundurliðun er á greiðsl-
unum.
c. Ekki er þess getið, hverjar
mánaðartekjur viðkomandi lækna
þurfi að vera, til þess að þeir njóti
svipaðra ævitekna og aðrar stéttir.
d. Minnzt er á praxis læknanna,
en þess er eigi getið, hvernig hann
hefur breytzt og með hvaða hætti
hann er nú.
e. Ekki er getið um tilboð Lækna-
félags Reykjavíkur, sem rætt var
fram til 13. april 1962, og ekkert
minnzt á þau rök, sem það tilboð
byggist á.
f. Mikill munur er á launagreiðsl-
um til lækna í samsvarandi stöðum.
Engar fullnægjandi skýringar eru
á þessum mun.
g. Getið er um tilboð, sem komið
mun hafa fram hjá læknum, eftir
að deilunni við L. R. lauk, en ekki
minnzt á tilboð rikisstjórnarinnar.
Upplýsingar fréttatilkynningar-
innar eru því mjög einhliða og
næsta óskiljanlegar fyrir þá, sem
ekki gerþekkja málið. Er því sýnt,
að án frekari skýringa nær nefnd
fréttatilkynning ekki þeim tilgangi
að upplýsa málið, og getur auðveld-
lega valdið misskilningi.
(Um a. og b.):
Sundurliðun á vinnutíma og launum sjúkrahúslœkna.
Vinnutími
klst. á mán.
Dagvinna ............. 152
Gæzluvaktir........... 150—180
Helgidagsvaktir allt að 10
Bílastyrkur ..................
Aðst.yfirl.
Greiðslur
kr. á mán.
8.755.00
2.216.00
Engar
1.000.00
Deildarl. Aðstoðarl.
Greiðslur Greiðslur
kr. á mán. kr. á mán.
8.090.00 6.982.00
2.216.00 1.551.00
Engar Engar
1.000.00 750.00
Samtals .... 327 11.971.00 11.306.00 9.283.00
Sé aðstoðarlæknir jafnframt dós-
ent við læknadeildina, hækka launin
um kr. 3.312.00, en starfstíminn leng-
ist um 48 klst. á mán. (þar með
talinn undirbúningstími undir
kennsluna). Sé deildarlæknir jafn-
framt lektor við læknadeildina, fær
hann kr. 1.890.00 viðbótarlaun, en
mánaðarvinna eykst um 32 klst. Að-
stoðarlæknar annast yfirleitt ekki
kennslu við Háskólann, og sumir
þeirra taka engar gæzluvaktir.
Tölur þær, sem að ofan getur,
eru miðaðar við greiðslur í apríl
1962, en siðan hafa aliar launa-
greiðslur hækkað um 11,28%, en
bílastyrkur haldizt óbreyttur.
(Um c.):
Mánaðarlaun, sem veita œvitekjur
til jafns við strœtisvagnastjóra.
Samkvæmt útreikningum, sem
gerðir voru í nóvember 1961, þurfa
mánaðarlaun deildarlækna fyrir
venjulega dagvinnu að vera 13—15
þús. kr. og auk þess tekjur, sem
svara bifreiðakostnaði, en laun að-
stoðaryfirlækna 15—17 þús. kr. á