Læknablaðið - 01.09.1963, Qupperneq 56
122
LÆKNABLAÐTf)
(jfu&mundur dJhoroddii
Alda 1*111 iniiing Guðmiindar
Magnússonar prófes§or§.
Erindi þetta var flutt á læknaþingi L. í. 27. júlí 1963.
Hinn 25. sept. í liaust er lið-
in ein öld frá fæðingu Guð-
mundar Magnússonar prófess-
ors, og hefur stjórn L. I. þótt
tilhlýðilegt að minnast þess að
nokkru hér á fundinum. Dr.
Óskar Þórðarson fór þess á leit
við mig, að ég tæki að mér að
minnast fyrirrennara míns, og
skal það nú gert, þótt frekar
sé af vilja en mætti, því að ef
vel ætti að vera, þá yrði það
ærið verkefni að gera lífi og
starfi Guðmundar prófessors
veruleg skil.
Guðnmndur Magnússon var
fæddur í Ilolti á Ásum í Húna-
vatnssýslu 25. sept. 18(53. Faðir
lians var Magnús Pétursson,
hóndi þar og orðinn aldraður
maður, þegar sonurinn fæddist.
Magnús var fæddur 1789 og því
orðinn 74 ára. Hann mun hafa
verið gildur bóndi og þá enn
vel ern, því að eftir fæðingu
sonarins lifir hann enn í meir
en 23 ár, deyr 17. febr. 1887.
Guðnmndur lét svo um mælt,
þegar heilsu lians sjálfs var far-
ið að hnigna á sextugsaldri,
að það væri ekki von, að harin
entist betur, gamals manns
harn. Hvað sem um það er, þá
er þó víst, að vel hefur verið
til hans lagt. Móðir Guðmundar
var Ingibjörg Guðnmndsdóttir,
Ólafssonar bónda á Vindhæli á
Skagaströnd. Hún var þá orð-
in 41 árs, fædd 5. sept. 1822. Hún
dó 21. marz 1899. Ingibjörg var
systir Davíðs prófasts á Hofi,
föður Ólafs grasafræðings og
þjóðsagnafræðings, og voru þeir
Guðnmndur og Ólafur því
syslkinasvnir.
Guðmundur Magnússon var
settur til mennta og varð stú-
dent 1883, með I. ágætiseinkunn,
og mun það liafa verið sjald-
gæft í þá daga. En livað átli
nú að gera, hvað átti að taka
fvrir?
Aður fvrr jafngilti stúdents-
menntun því að læra til prests
og var þess vegna oft nefnd því
nafni, en nú var Prestaskólinn
tekinn til starfa fyrir hálfum
l'jórða áratug. Guðfræðimennl-
un þar tók þó ekki nema tvö
ár, og fóru því margir stúdent-
ar þá leiðina, enda prestsemb-
ætti mörg', og flestir guðfræð-
ingar fengu von bráðar brauð
og gátu farið að vinna fyrir sér.