Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.09.1963, Side 71

Læknablaðið - 01.09.1963, Side 71
LÆKNABLAÐIÐ 135 nieð skýlausum heimildum. Við- hrögð manna við valdboði eru oft og tíðum ekki á þann veg, sem til er ætlazt, ekki sízl meðal einstaklingshyggjumanna eins og Islendinga. Þess vegna ber að leggja áherzlu á það sjónarmið, að vald til að stjórna sé ekki drottnun eins yfir öðr- um, lieldur að stjórnað sé í krafti nauðsynjar, ekki persónu- legra duttlunga. Miklu varðar, að öll skipti á upplýsingum og tilkynningum innan kerfisins séu greið og ó- tvíræð á báða bóga milli æðri og lægri stiga og liinna ýmsu aðilja stjórnsýslunnar. Ölluni þarf að vera sem ljósast, livað gera þarf og livað gera skal hverju sinni og helzl hvers vegna. Æskilegt er, að starfs- menn æðra stjórnsýslustigs kynni sér sem rækilegast fram- kvæmdir og aðstæður á lægra stigi með eigin augum. Stjórnsýsla heilbrigðismála deilist á stjórnsýslustig, sem hér á landi eru tvö, yfirstig- og hér- aðsstig. Hjá stærri þjóðum er skotið inn millistigi. Iléraðs- stigið greinist i stjórnsýsluein- ingar, héruð, sem af hentisemi- ástæðum eru látin samsvara st j ór nsýslueiningum f él a gs- mála. Áhéraðsstiginu er yfirleitt ein- ungis veitt sú heilbrigðisþjón- usta, sem telst hafa undirstöðu- þýðingu, svonefnd frumþjón- usta. Vík égnánaraðhenni síðar. Þeir, sem með stjórnsýslu fara á þessu sligi, liafa frjálsar hend- ur lil lieilbrigðisframkvæmda að þvi marki, sem lieilbrigðis- yfirvöld og lagaákvæði setja. Nær þetta fyrst og fremst til embættislækna. Þeir hafa víð- ast sér við hlið nefndir og starfsmenn til ýmissa lieil- brigðisframkvæmda. Víðast livar erlendis er nú slefnt að því að fela allmikið af þeirri frum- þjónustu, sem héraðslæknum er einum ætluð hér á landi, sér- liæfðu starfsliði (health team), sem hafi minni háttar heilsu- verndarstöð lil umráða, enda er þá miðað við meiri fólks- fjölda í liéraði en hér er. A yfirstjórnsýslustiginu eru gerðar áætlanir um samræmdar heilbrigðisframkvæmdir í ein- stökum héruðum og fyrir landið allt, lögð á ráð,þegar þess er ósk- að, heilbrigðislöggjöf framfvlgt o. s. frv. Eitt megiríhlutvérk vfirstjórnsýslustigsins er að sjá um, að stefna og starfsemi ein- stakra lieilda innan stjórnsýslu- kerfisins brjóti ekki í bága við þá meginstefnu, sem mörkuð er hverju sinni. Sú skipan er nefnd „centralisation“. Eins og fyrr var sagt, verður þó að jafna niður ábyrgð og um leið meira eða minna l'rjálsræði lil fram- taks á hið lægra stig — de- centralisera eftir því, sem hentast þykir. Hér er raunar vandsigll milli skers og háru. Margar menningarþjóðir hallast

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.