Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 34

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 34
60 LÆKNABLAÐIÐ FUNDARGERÐ AÐALFUNDAR LÆKNAFÉLAGS ISLANDS 25.-26. júlí 1964. Aðalfundur Læknafélags Is- lands var settur i húsakynnum I.O.O.F. á Isafirði liinn 25. júlí 1964 kl. 9.00 árdegis af for- manni félagsins, Óskari Þórðar- syni. Formaður hauð fulltrúa velkomna og þakkaði Lækna- félagi Vestfjarða fyrir að hjóða til fundar. Hann kynnti fyrir fundarmönnum Jón Straum- fjörð, lækni frá Astoria i Oregon í Bandaríkjunum, Vestur-Is- lending, sem kom til fundarins sem sérlegur fulltrúi TheAmeri- can Medical Association. Formaður lagði til, að fundar- stjóri yrði Guðmundur Ivarl Pétursson og fundarritari Páll Sigurðsson, og tóku þeir þegar við starfi. Formaður kvaddi sér hljóðs og minntist tveggja félaga, er látizt höfðu á starfsárinu, þeirra Björns Sigurðssonar og Guð- mundar Tryggvasonar. Risu fundarmenn úr sætum lil virð- ingar hinum látnu. 1 kjörbréfanefnd voru kosnir, eftir uppástungu fundarstjóra, Páll Gíslason, Bjarni Bjarnason og Ragnar Asgeirsson. Nefndin skilaði þegar störfum og taldi kjörhréf allra fulltrúa lögmæt. Eftirtaldir fulltrúar sátu fund- inn: Frá Læknafélagi Reykja- víkur: Óskar Þórðarson, Ólaf- ur Bjarnason, Arinhjörn Ivol- heinsson, Gunnlaugur Snædal, Tómas A. Jónasson, Bjarni Bjarnason og Páll Signrðsson yngri. Frá Læknafélagi Mið- Vesturlands: Páll Gislason. Frá Læknafélagi Vestfjarða: Ragn- ar Ásgeirsson. Frá Læknafélagi Norðurlands: Sigursteinn Guð- niundsson. Frá Læknafélagi Akureyrar: Guðmundur Karl Pétursson. Frá Læknafélagi Austurlands: Heimir Bjarnason. Frá Læknafélagi Suðurlands: Ólafur Björnsson. Enginn full- trúi var væntanlegur frá Lækna- félagi Norð-Austurlands. Fundarstjóri gaf formanni orðið, og flutti hann ársskýrslu félagsstjórnar, sem fer hér á eftir: SKÝRSLA STJÓRNAR L. í. starfsárið 1963—1964. Þau verkefni, sem stjórnin hefur haft með höndum á þessu starfsári, hafa verið þau að sjá um framkvæmd samninga og samþykkta síðasta aðalfundar. Reynsla núverandi stjórnar hefur orðið sú, að það er erl'itt fyrir lækna að ganga frá samn-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.