Læknablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 66
84
LÆKNABLAÐIÐ
MENXTra ^ÉRFRÆÐIXGA
A AORÐURI ÖADIM.
Á 10. þingi Norræna ráðsins
var samþykkt ályktun um að
beina þeim tilmælum til ríkis-
stjórna Norðurlanda að reyna
að samræma reglur um kröfur
til sérfræðingsmenntunar á
Norðurlöndum, og á fundi Nor-
rænna heilbrigðismálaráðherra
í Kaupmannahöfn í febrúar
1963 var skipuð samvinnunefnd
frá Danmörku, Finnlandi, Nor-
egi og Svíþjóð til að gera tillög-
ur þar að lútandi. Formaður
þessarar nefndar var Bror
Rexed, jjrófessor í Uppsölum,
en nefndarmenn munu hafa
verið þrír frá liverju Norður-
landanna, nema frá Islandi, en
þaðan var enginn nefndarmað-
ur tilnefndur.
Þessi nefnd hefur nýlega skil-
að tillögum til samkomulags
milli Danmerkur, Finnlands,
Noregs og Svíþjóðar um sam-
lnisin um slíkt fyrirkomulag,
þar eð þau fengju mun betri
starfskrafta með þessu móti.
Möguleikar á sérbæfingu yrðu
að vera fyrir hendi með nægi-
lega langri ráðningu. Sérstök
kennsluáætlun á sjúkrahúsun-
um er auðvitað skilyrði fyrir
því, að þetta komi að því gagni,
sem ætlað er.
ræmingu á reglum um sérfræð-
ingsmenntun lækna. Fara þess-
ar tillögur hér á eftir í heild.
Tillögum þessum fylgir ýtarleg
greinargerð, og er hér á eftir
stutt samantekt:
Undanfari starfs þessarar
nefndar er langvarandi sam-
vinna og viðræður norrænu
læknafélaganna um sameiginleg-
an vinnumarkað lækna og ým-
is vandamál í sambandi við sér-
fræðingsmenntun þeirra ásamt
ákveðnum tillögum Norræna
ráðsins í þá átt frá 1959. 1 til-
lögum þeim, sem þessi norræna
samvinnunefnd leggur fyrir, er
ekki á þessu stigi leitazt við að
mæla með nákvændega ein-
hliða sérfræðingsmenntuninnan
Norðurlanda. Nefndin leggur til,
að ákveðin mörk verði sett fyr-
ir sérfræðingsmenntunina, sem
tryggi jafnræði, hvað gæði
snertir. Innan þessara marka
gætu hins vegar hin einstöku
lönd, sem að samkomulaginu
stæðu, hagað reglum sínum, og
væri þannig unnt að taka tals-
vert tillit til aðstæðna og sjónar-
miða, sem sérstök væru í hverju
landi. Nefndin leggur því á-
herzlu á, að i beinu framhaldi
af þessum tillögum verði gerðar
athuganir innan hinna einstöku
landa, og mælir með því, að