Læknablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 64
82
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNABLAÐIÐ
49. árg. Apríl 1965
Aðalritsíjóri: Ólafur Bjarnason.
Meðritstjórar: Magnús Ólafsson
og Þorkell Jóhannesson (L. ÍJ,
Ólafur Gcirsson og Ásmundur
Brekkan (L. R.)
SKIPULAG
LÆKNIS-
ÞJÓNUSTUNNAR.
Þrátt fyrir stórstígar fram-
farir i læknisfræði og þar með
breytt viðhorf, hafa allt of litlar
breytingar orðið á starfsbáttum
lækna hérlendis. Flestir prakt-
íserandi læknar hokra enn þá
einir á stofum sínum við frum-
stæðustu skilyrði, og vinnuað-
staðan á sjúkrahúsunum er víð-
ast hvar litlu betri enn sem
komið er. Einangrun lækna,
bæði utan sjúkrahúsa og innan,
og ekki sízt ófullnægjandi sam-
starf sjúkrahúsa og sjúkrahús-
deilda, stendur í vegi fyrir
bættri læknisþjónustu og rýrir
þá möguleika til viðhaldsmennt-
unar, sem náið samstarf veitir.
Islenzkum læknum lier lögum
samkvæmt að halda þekkingu
sinni sem bezt við. Það gerum
við með lestri bóka og tímarita,
með því að sækja fyrirlestra
og námskeið og sækja heim
sjúkrahús og heilbrigðisstofn-
anir erlendis og að einhverju
leyti hér heima. Þróunin í þess-
um efinim er elcki hagstæð.
Læknabókasafn er ekki til.
Fræðslufundir L. R. og nám-
skeið L. I. hafa í seinni tíð verið
sorglega illa sótt. liinn nýstofn-
aði námssjóður lækna er lofs-
verð tilraun til úrbóta, en nær
skammt, ef annað þrýtur.
Það er reynsla annarra þjóða,
að viðhaldsmenntun almennra
lækna sé bezt borgið með sem
nánustu samstarfi innbyrðis og
með því, að þeir starfi að ein-
hverju leyti inni á sjúkrahús-
um.
Yíða erlendis hafa læknafé-
lögin gengið fram fyrir skjöldu
til að l'inna leiðir til úrbóta.
Brezka læknafélagið hefur í
samvinnu við brezku heilbrigð-
isstjórnina nýlega skilað áliti
um starfssvið heimilislækna
(Annis Gillie’s Report: „The
Field of Work of the Family
Doctor“) og læknisþjónustu
sjúkrahúsa (Platt Committee:
„Medical Staffing Structure in
the Hospital Service"). Þar er
lögð áherzla á að rjúfa einangr-
un lækna með samvinnu (group-
practice) og „part-time“ vinnu
á sjúkrahúsum. Sænska lækna-
félagið skipuleggur og reisir
læknahús um alla Svíþjóð og
hyggst með því stórbæta læknis-
þjónustuna í landinu.
Reykvískir læknar, aðallega
sérfræðingar, hafa tekið hönd-