Læknablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ
83
um saman og reisa lækninga-
stöð við Domus Medica, sem
verður vonandi vísir að hóp-
vinnu lækna. Þar eð nú fyrst
örlar á stétt „hreinna“ heimilis-
lækna hér í borg, ættu þeir
fljótt að bætast í hópinn. Síðan
kemur til mála að koma upp
fleiri slíkum stöðvum íborginni,
og verður L. R. að hafa for-
göngu í þeim efnum. Góð sam-
vinna lækna og heilbrigðisyfir-
valda er skilyrði fyrir heilla-
vænlegri þróun þessara móla.
Dti um land eru víða skil-
yrði fyrir hópvinnu lækna og
reyndar knýjandi nauðsyn að
koma henni á. L. I. ber að hafa
forgöngu á þeim vettvangi.
Skipulag læknisþjónustu ó
sjúkrahúsum okkar er að úr-
eltri danskri fyrirmynd. Sjúkra-
húslögin kveða svo á, að sér-
stakur sjúkrahúslæknir eða yf-
irlæknir skuli vera við hvert
sjúkrahús eða deild. Samkvæmt
lögum á hann að annast öll
læknisstörf eða hafa yfirumsjón
með þeim og hafa lækniseftirlit
með rekstri sjúkrahússins og
vera til andsvara heilbrigðisyf-
irvöldum.
Er þvi augljóst, að yfirlæknir
á stóru sjúkrahúsi eða deild
verður fyrst og fremst að vera
stjórnandi (administrator) og
læknisstörfin hvíla að verulegu
leyti á herðum annarra. Þróun
læknisfræðinnar, með kröfu um
æ meiri sérhæfingu og um leið
samvinnu sérfræðinga (team-
work), hefur algjörlega kippt
fótum undan hinum gamla, al-
máttuga, germanska yfirlækni.
Sjúkrahúsin þurfa á fleiri sér-
fræðingum að halda, sem vilja
og geta unnið saman. Þeir eru
til, en þekking þeirra og starfs-
kraftar eru ekki nýttir sem
skyldi vegna úrelts skipulags,
sem þarfnast endurskoðunar.
Aðstoðarlækna- og náms-
kandídatakerfið þarf einnig að
endurskoða. „Túrnuskandídat-
inn“ var á sínum tíma fenginn
að láni hjá Dönum, sem eru
loksins að losa sig við þetta
fyrirkomulag, þar eð fæstir
læknar láta sér nægja svo lítið
og lélegt framhaldsnóm. Reynsla
annarra þjóða hefur leitt í ljós,
að allt framhaldsnám er gagns-
lítið, ef það er bútað niður í
minna en liálft ár á hverri deild.
Okkur ber því að afnema náms-
kandídatakerfið. 1 staðinn eiga
að koma hálfs til eins árs að-
stoðarlæknisstöður á hinum
ýmsu deildum með möguleikum
á framlengingu.
Læknafélögin þurfa svo að
gera innanfélagssamþykktir,
þar sem kveðið sé á um, að eng-
inn læknir megi hefja sjálfstætt
læknisstarf fyrr en að loknu
einhverju lágmarks-framhalds-
námi, t. d. þremur árum á til-
teknum spítaladeildum. Sænska
læknafélagið hefur þegar gert
slíka samþykkt.
Auðvelt ætti að vera að kom-
ast að samkomulagi við sjúkra-