Læknablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 63
LÆ KNABLAÐIÐ
81
er augljós nauðsyn tveggja lækna,
ef halda á uppi fullnægjandi læknis-
þjónustu. Sums staðar gæti komið
til greina að hafa aðstoðarlækni
þann hluta ársins, sem annríkið er
mest. Þessir aðstoðarlæknar nytu
að sjálfsögðu fastra launa úr ríkis-
sjóði.
6. Meðan skortur er á héraðs-
læknum, verður það að teljast
furðuleg ráðstöfun sveitarfélaga að
skattleggja þá með hæstu aðstöðu-
gjöldum. Hæstu skattlagningu er
yfirleitt beitt á ýmsa óþarfa hluti
(lúxus), og verður helzt skilið, að
læknaþjónusta í dreifbýlinu falli
undir slíkt.
Álögð aðstöðugjöld leggjast á alla
útgjaldaliði, þar með talin laun
staðgengla (þann hluta, sem hér-
aðslæknirinn greiðir sjálfur), bif-
reiðakostnað o. s. frv., og virðist
með þessu stefnt að því, að hér-
aðslæknar leggi í sem minnstan
kostnað við starf sitt, en það hlyti
aftur að koma niður á þjónustu,
sem veitt er. Með þessu fyrirkomu-
lagi orkar það tvímælis, hvort svari
kostnaði fyrir lækna að leggja sér
til bifreiðar, sbr. 3. lið. Sama máli
gegnir um kaup á dýrum lækninga-
tækjum o. s. frv.
7. Það virðist ofur eðlileg krafa
af hendi héraðslækna, að ríkissjóð-
ur greiði allan embættiskostnað
þeirra, þ.e.a.s. beinan kostnað, svo
sem prentun og pappír, afnotagjald
af síma og annan þann kostnað, sem
eðlilegur rekstur embættanna
krefst.
11. Halldór Guðnason og
Lárus Jónsson skiluðu áliti um
símaviðtalstíma. Var eftirfar-
andi tillaga þeirra samþvkkt:
„Aðalfundur L.N.V. sam-
þykkir einróma tilmæli til hér-
aðslækna að taka upp sérstak-
an símaviðtalstíma,hálfa til eina
klst. fyrir liádegi hvern virkan
dag, fyrir viðtöl og vitjana-
beiðnir. — Jafnframt sé lækn-
um óskvlt að sinna símaviðtöl-
um á öðrum tímum, eða á
venjulegum viðtalstíma, nenia
um aðkallandi tilfclli sé að
ræða.“
12. Eflirfarandi tillaga var
einnig samþykkt vegna Jiess,
liversu illa gengur að innheimta
orlof héraðslækna:
„Aðalfundur L.N.V., lialdinn
á Blönduósi 21/G 1964, beinir
þeim tilmælum til Læknafélags
Islands, að lögfræðingi félags-
ins verði falið að kanna, hvort
læknum úti um land heri ekki
orlof á þær greiðslur, sem þeir
taka frá sjúkrasamlögum.“
13. Stjórnarkjör. Stjórnin
var öll endurkjörin.
14. Fleira var ekki fyrir tek-
ið. Fundarstjóri þakkaði mönn-
um góða fundarsókn. Sérstak-
lega þakkaði hann Sigurði Sam-
úelssyni próf. fyrir komuna og
hið góða erindi hans. Sagði
hann siðan fundi slitið.
A eftir var setzt að kaffiborði
hjá læknishjónunum á Blöndu-
ósi. Var setið þar og spjallað
um stund, en síðan hélt liver
heim til sín.
Fulltrúi á aðalfund L.í. var
kosinn Sigursteinn Guðmunds-
son.
Sigursteinn Guðmundsson
(sign.).
Ólafur Sveinsson (sign.).“