Læknablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
61
ingum fvrir sína hönd, svo að
vel sé, án aðstoðar sérfróðra
manna. Við samningaborðið
eiga læknar i höggi við menn,
sem eru þaulvanir því að semja,
en þá reynslu hafa fæstir lækn-
ar; auk þess er samninganefnd
L.f. skipuð mönnum, sem húa
langt hver frá öðrum, þannig
að ógjörlegt hefur v.erið fyrir
þá að hittast nógu oft til þess
að ræða vandamálin sameigin-
lega. Stjórnin ákvað því að leita
aðstoðar þeirra Sigfúsar Gunn-
laugssonar viðskiptafræðings og
Guðmundar Ingva Sigurðssonar
lögfræðings, og hafa þeirséð um
hina tæknilegu hlið samninga,
en samninganefnd L.f. ogstjórn-
in liafa lagt þeim gögn í liend-
ur. Er enginn vafi á því, að
þetta fyrirkomulag er að öllu
leyti heppilegra.
Samningar fyrir liönd héraðs-
lækna og lækna utan Reykjavík-
ur, sem stunda almenn læknis-
störf, gengu úr gildi 1. apríl.
Samninganefnd setti fram eft-
irfarandi kröfur fvrir hönd hér-
aðslækna: 1) Að öllum héraðs-
læknum verði greitt orlofsfé ár-
lega, hvort sem þeir taka orlof
eða ekki. 2) Að hæði héraðs-
læknum og praktíserandi lækn-
um verði séð fyrir trygginga-
sjóði og námssjóði, þannig að
6,5% af þóknun fvrir læknis-
verk renni í trvggingasjóð og
4,5% af þóknun fyrir læknis-
verk renni í námssjóð.
Trvggingastofnun ríkisins vís-
aði þessum kröfum á bug á
þeim forsendum, að orlofsfé
embættislækna væri greitt af
föstum launum þeirra; enn
fremur, að þar sem samið hef-
ur verið um tryggingasjóðs-
gjald og námssjóðsgjald við
sjúkrasamlög, séu þessi gjöld
dregin af þeirri heildarupphæð,
sem samið hefur verið um.
Taldi Tryggingastofnunin það
ekki sitt hlutverk að annast inn-
heimtu á greiðslum í framan-
greinda sjóði. Yrðu læknar því
sjálfir að semja um það við hin
einstöku sjúkrasamlög,að gjald-
inu verði haldið eftir til greiðslu
i tryggingasjóð og námssjóð.
Stjórnin skrifaði landlækni
eftirfarandi bréf, sem var lagt
fyrir ráðuneytið.
Reykjavík, 2. maí 1964.
Hr. landlæknir
dr. med. Sigurður Sigurðsson,
Reykjavík.
Krafa héraöslœkna um greiösl-
ur orlofsfjár, greiöslu í trygg-
ingasjóö og námssjóö.
Samkvæmt beiðni yðar, hr. land-
læknir, í samtali við launamála-
nefnd L.í. þann 30. apríl 1964 varð-
andi ofangreinda kröfu, leyfi ég
mér hér með að leggja fyrir yður
eftirfarandi kröfu f. h. héraðslækna
ásamt rökstuðningi.
Orlof: Að öllum héraðslæknum
verði greitt orlofsfé árlega,
hvort sem þeir taka orlof eða
ekki.
Tryggingasjóöur: Krafa um
6,5% af þóknun fyrir læknis-
verk.
Námssjóður: Krafa um 4,5%
af þóknun fyrir læknisverk.