Læknablaðið - 01.04.1965, Side 36
62
LÆKNABLAÐIÐ
Krafan um orlofsfé er byggð á
því, að héraðslæknar geti sér að
skaðlausu staðið undir kostnaði af
staðgengli, þegar þeir eru í leyfum.
Héraðslæknar taka nú embættis-
laun samkvæmt fimm flokkum
launastigadóms Kjaradóms frá 3.7.
1963, þannig að þeim hefur verið
raðað í 17.—21. flokk launastigans.
Þegar héraðslæknum var raðað í
svona tiltölulega lága flokka, var
höfð hliðsjón af því, að þeir hefðu
möguleika á því að afla sér auka-
tekna fyrir önnur læknisverk en
þau, sem tilheyra embættisstörfum
þeirra. Greiðslur í lífeyrissjóð
starfsmanna rikisins fara eftir
föstu laununum. Vegna þess, sem
að ofan groinir um hin lágu föstu
laun héraðslækna, greiðist minna
þeirra vegna í lífeyrissjóð en vegna
annarra lækna í þjónustu ríkisins.
Á þessu er byggð krafan um
greiðslu í tryggingasjóð.
1 reglum fyrir námssjóð sjúkra-
samlagslækna í Reykjavík er gert
ráð fyrir þvi, að sjúkrasamlög utan
Reykjavíkur geti gerzt aðilar að
þeim sjóði. Héraðslæknum er nauð-
syn, ekki síður en öðrum læknum, að
eiga þess kost að endurnýja og auka
við þekkingu sína, auk þess sem
slíkt er sjálfsögð þjónusta við sjúkl-
ingana. Þetta réttlætir kröfuna um
það, að héraðslæknar eigi greiðan
aðgang að námssjóði.
Það, sem hér er farið fram á,
er það, að héraðslæknar njóti svip-
aðra hlunninda og réttinda og aðr-
ir læknar i þessum efnum.
F. h. stjórnar L.l.
Óskar Þórðarson, form.
Heilbrigðismálaráðuneytið
hafnaði kröfunni um greiðslu
í tryggingasjóð og námssjóð á
sömu forsendum og Trygginga-
stofnun ríkisins hafði gert. Hins
vegar féllst ráðuneytið á, að
samkvæmt 16. gr. laga, nr. 38,
1954, um réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna, ættu
héraðslæknar rétt á orlofi. Mun
ráðuneytið hér eftir greiða
staðgengli liéraðslæknis hin
föstu mánaðarlaun, en um aðr-
ar greiðslur verður héraðslækn-
ir að semja við viðkomandi
staðgengil. Taki héraðslæknir
ekki orlof, fær hann greill or-
lofsfé, sem nemur einurn mán-
aðarlaunum umfram liin föstu
árslaun. Samkvæmt sömu lög-
um getur héraðslæknir frestað
því að taka orlof í eitt ár eða
fleiri. Getur liann þá með sam-
þykki landlæknis fengið leyfi
frá störfum jafnlangan tíma,
sem nemur því orlofi, er hann
hefur ekki notað, á fullum laun-
um.
Samningum fyrir praktíser-
andi lækna utan Reykjavíkur,
sem vinna eftir númeragjaldi,
og fyrir sérfræðinga utan
Reykjavíkur hefur ekki tekizl
að Ijúka enn þá. Ástæðan til
þessa er sú, að viðræður um
þessa samninga gátu ekki haf-
izt, fyrr en samningum var lok-
ið við Sjúkrasamlag Reykjavík-
ur. Þeir samningar voru ekki
undirritaðir fyrr en i byrjun
þessa mánaðar, en síðan hefur
ekki verið unnt að ná til manna
vegna sumarleyfa.
Endanleg lausn á kjaramál-
um vfirlækna við ríkisstofnanir
er ekki enn þá fengin. Þegar