Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 44

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 44
LÆKNABLAÐIÐ 68 1964, felur stjórn félagsins að mótmæla lögum um launa- kjaradeilu verkfræðinga frá síð- asta Alþingi, ef tilmæli koma um það frá Bandalagi háskóla- manna, og vinna að því með öll- um tiltækum ráðum, að lög þessi verði afnumin liið fyrsta.“ Arinbjörn Kolbeinsson fylgdi tillögunni úr lilaði. Tillagan var samþykkt samhljóða. Þessu næst rakti formaður aðalatriði úr greinargerðum annarra svæðafélaga. Borizt liöfðu afrit af fundargerðum aðalfundar Læknafélags Mið- Vesturlands og aðalfundar Læknafélags Norð-Austur- lands.1 Eins höfðu fundargerð- ir borizt frá Læknafélagi Vest- fjarða og Læknafélagi Norð- Vesturlands.2 Tvær tillögur komu fram orð- aðar af fundarstjóra, en bvggð- ar á bréfi L.B. til stjórnar L.I. Fyrri tillagan var svohljóðandi: „Fundurinn telur æskilegt, að athugaðir verði möguleikar á stækkun Læknablaðsins í sex tölublöð á ári.“ Ólafur Bjarnason mælti með samþykkt tillögunnar og ræddi almennt um blaðið og taldi fjár- liag þess í ágætu lagi og áleit, að ekki myndi standa á efni í sex tölublöð á ári. 1) Hafa þær þegar birzt sérstak- ar í þessum árgangi Læknablaðs- ins, 47. og 48. bls. 2) Eru þær birtar sérstakar hér á eftir, 76.—81. bls. Tillagan var samþvkkt sam- hljóða. Síðari tillagan var svobljóð- andi: „Athugun fari fram á því, Iivort semja megi við flugfélög- in um farmiða á fundi lækna- samtakanna gegn föstum aug- lýsingum í Læknablaðinu.“ Arinbjörn Ivolbeinsson ræddi tillöguna og benti á, að hér væri eingöngu átt við þær ferðir, er læknafélögin ættu að kosta á fundi erlendra læknasamtaka. Tillagan var samþykkt sam- hljóða. Er hér var komið fundi, gengu i fundarsal fulltrúar frá B.S.B.B., þeir Kristján Thorla- cius og Haraldur Steinþórsson, og var þá tekið fyrir næsta mál, þ. e. úrsögn L.í. úr B.S.R.B. Formaður kvaddi sér bljóðs og rakti sögu þessa máls. Minnti hann á, að á aðalfundi L.I. 1962 befði verið samþykkt tillaga frá Ölafi Bjarnasyni þess efnis, að unnið yrði að því, að Bandalag háskólamanna fengi samnings- rétt fyrir aðildarfélög sín, en þá frestað að leysa L.í. úr B.S.B.B. Formaður gat þess, að mikið hefði verið unnið að því undanfarið að skapa BI4M samningsrétt að lögum og taldi eðlilegt, að háskólamenntaðir menn mynduðu sitt eigið kjara- málasamband fremur en til- heyra þeim ósamstæða hópi, sem B.S.B.B. óneitanlega væri. Taldi hann, að það myndi

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.