Læknablaðið - 01.04.1965, Síða 47
LÆKNABLAÐIÐ
71
þvi, að BHM fengi samnings-
rétt, og þegar af þeirri ástæðu
taldi hann rétt, að L.í. segði
sig úr B.S.R.B.
Gunnlaugur Snædal og Óskar
Þórðarson tóku til máls að
nýju.
Heimir Bjarnason kvaddi sér
hljóðs og skýrði ályktun Lækna-
félags Austurlands, sem var
svohljóðandi:
„Fundurinn lítur svo á, að úr-
sögn L. í. úr B.S.R.B. komi ekki
til greina, nema samningsréttur
félagsins sé tryggður á öðrum
vettvangi.“
Kristján Thorlacius tók að
síðustu til máls. Hann taldi, að
tilvist BIIM liefði hafl mikil á-
lirif á samningagerð fyrir hönd
opinberra starfsmanna, og áleit,
að kjarabaráttan yrði árangurs-
ríkari, ef BIIM og B.S.R.B.hefðu
samtök sín á milli. Benti hann
á þá leið, að BHM yrði sérsam-
band innan B.S.R.B.
Ei' liér var komið, var fundi
frestað og einnig atkvæða-
greiðslu um úrsögn úr B.S.B.B.
Fundur var ákveðinn að nýju
næsta dag kl. 8.30.
Formaður lcvaddi sér hljóðs
og bauð fulltrúum B.S.R.B. til
kvöldverðar með læknum kl.
19.30.
Kvöldverður liófst með sam-
drykkju. Formaður stjórnaði
liófinu og bauð gesti velkomna.
Jón Straumfjörð flutti ávarp
og kveðjur frá The American
Medical Association. Guðmund-
ur Ivarl Pétursson flutti ræðu
um skógrækt og konur. Dansað
var fram eftir nóttu.
Fundur var settur að nýju
liinn 26. júlí, laust eftir kl. 8.30.
Allir fulltrúar voru komnir til
fundar. Tekið var til við mál
það, er frestað var frá degin-
um áður, þ.e. úrsögn L.I.úr B.S.
B.B. Umræðum var lokið, en
atkvæðagreiðsla eftir. Tillagan
var samþykkt með 11 atkv.
Einn var á móti, og einn sat
hjá.
Reikningar og skýrsla frá
stjórn Domus Medica. Bjarni
Bjarnason las reikninga Domus
Medica og' skýrði frá byggingu
lmssins. Hann skýrði einnig frá
því, er hann hefði gert til að
hindra tortímingu Nesstofu.
Fundarstjóri þakkaði Bjarna
Bjarnasyni margra ára ötult og
óeigingjarnt starf i þágu Domus
Medica og taldi byggingu þess
fyrst og fremst að þákka
Bjarna, sem ætíð hefði barizt
fyrir málinu af stórhug og
framsýni.
Ólafur Björnsson tók lil máls
og þakkaði Bjarna sérstaklega
starf hans til verndar Nesstofu.
Reikningar Domus Medica
voru siðan bornir upp og sam-
þykktir.
Lagðar voru fram tillögur
laganefndar um breytingar á
lögum félagsins og Codex Etlii-
cus. Laganefndina skipuðu Ósk-