Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Page 18

Fréttatíminn - 26.08.2011, Page 18
4342 117116 8786 Í vikunni kom út merkileg ljósmyndabók sem hefur að geyma 140 ára sögu ís- lenskrar landslagsljósmyndunar. Bókin heitir Ný náttúra – Myndir frá Íslandi og er gefin út samhliða sýningu á verkum íslenskra samtímaljósmyndara og samtímalistamanna sem nota ljósmyndir í verkum sínum, í Frankfurter Kunstverein í Frankfurt am Main í Þýskalandi. Sýningin er hluti af menningar- kynningu sem fram fer í tengslum við þátttöku Íslands í bókakaupstefnunni í Frankfurt haustið 2011. Í bókinni er teflt saman nýjum og nýlegum myndum við eldri úr stokki ís- lenskra ljósmyndara. Afraksturinn er einhver athyglisverðasta og skemmti- legasta ljósmyndabók sem hér hefur verið gefin út. Kunnugleg minni úr ljós- myndasögu landsins, eftir okkar þekktustu ljósmyndara, birtast hér í bland við óvænta ramma eftir lítt þekkta myndasmiði, sem myndritstjóri bókarinn- ar hefur grafið upp úr íslenskum ljósmyndasöfnum. Myndavalið var í höndum Celina Lunsford, sem hefur verið listrænn stjórnandi Fotografie Forum Frankfurt frá 1992 og hefur auga gestsins greinilega nýst henni vel við þá vinnu. Celina vann bókina þó ekki alfarið ein heldur í samstarfi við Ingu Láru Baldvinsdóttur, fagstjóra Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni, og Maríu Karen Sigurðardóttur, safnstjóra Ljós- myndasafns Reykjavíkur. Inngang um íslenska náttúruljósmyndun skrifar Christiane Stahl, forstöðukona Alfred Ehrhardt Stiftung í Berlín, en hún hefur komið við sögu við útgáfu íslenskra ljósmyndabóka. Ensk/þýsk útgáfa bókarinnar er unnin í samstarfi við þýsku bókaútgáf- una Kehrer Verlag, sem er ein virtasta útgáfa ljósmynda- og listaverkabóka í Þýskalandi. Íslensk landslags- ljósmyndun í 140 ár Jónsmessunótt á Gróttu, 1993 – Einar Falur Ingólfsson, f. 1966.Úr myndröðinni Hvergiog, 2010 – Katrín Elvarsdóttir, f. 1964. Til vinstri: Úr myndröðinni Bensín, 1999 – Spessi, f. 1956. Til hægri: Bensínstöðin Bifröst, Reykjavík, 1930 – Magnús Ólafsson, 1862-1937. Til vinstri: Tvö hús í Reykjavík 1920-1930 – Haraldur Sigurðs- son, 1894-1987. Til hægri: Breiðholt, 2008 – Guðmundur Ingólfsson, f. 1946. 16 ljósmyndir Helgin 26.-28. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.