Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 42
M eðal nýjunga hjá Baðhúsinu í vetur er að bjóða upp á fleiri styttri æfingatíma. „Það þarf ekki að taka langan tíma í að æfa og það er líklegra að maður komi reglulega árið um kring ef æfingin rennur þægilega inn í dag- inn,“ segir Kristjana Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá fyrirtækinu. til dæmis er boðið upp á CX Worx sem er einungis hálftími. Þar eru gerðar æfingar eins og hjá einkaþjálfara; þær eru hægar og djúpar, að sögn Kristjönu, og henta vel þeim sem vilja hugsa um heilsuna en hafa lítinn tíma aflögu. „Við bjóðum upp á svo mikið úrval af mislöngum tímum að tímaleysi á alls ekki að vera afsökun lengur. Það ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi í Baðhúsinu. Mikilvægi þess að hreyfa sig reglu- lega er löngu sannað. Verkefnið er óendanlegt en við erum í stöðugri leit að nýjum leiðum til að auka áhugahvöt viðskiptavina okkar til að langa að koma og hreyfa sig. Það er hægt að velja tíma frá sex á morgnana og alveg fram á kvöld,“ segir Kristjana. Æft með hálfum bolta Hún nefnir til að mynda nýja og skemmtilega tíma sem taka 50 mínútur og heita „Bosu balance“. Þar eru æfingar gerðar á hálfum bolta. Þeir eru flatir öðrum megin, og svo kemur kúla upp. Hugmyndin er að æfa á óstöðugu undirlagi. Á boltanum hálfa eru gerðar æfingar til að byggja upp þol og styrk. „Það reynir á djúpu vöðvana og jafnvægi líkamans,“ segir Kristjana. „Þetta eru ekki rólegir tímar,“ segir hún. Mörgum konum þykir gaman að dansa og hefur Baðhúsið lengi boð- ið upp á alls kyns danstíma. „Það er alltaf mikið fjör í zumba, salsa-leik- fimi og afró-tímunum okkar; þeir allir með dansívafi og það er oft skemmtileg stemning,“ segir Krist- jana. Í afró-dansinn mætir bongó- trommari og lemur húðir á meðan konurnar dansa. „Það skapar sér- staklega skemmtilega stemningu að vera með alvöru trommara á staðnum,“ segir hún. Flakkað á milli tíma „Það er samt svo misjafnt hvað konum þykir gaman. Svo eru þær sem finnst gaman í öðrum tímum sem við bjóðum upp á, eins og til dæmis Pump, Tabata og Tæbox-tím- um. Ein af ástæðunum fyrir því að konur velja Baðhúsið er að þær geta flakkað á milli tími frá degi til dags en þurfa ekki endilega að festa þig á einu námskeiði,“ segir hún. Heilbrigt og gott mataræðið skiptir einnig miklu máli fyrir fólk sem vill huga vel að heilsunni. Í haust býður Baðhúsið upp á nám- skeiðið Heilsuátak Lene Hansson. Hún er danskur næringarþerpisti og byggist námskeiðið á bók hennar Léttara og betra líf – átta vikna heilsuáætlun, sem kom út síðast- liðið vor á íslensku. „Við viljum ekki vera staður fyrir stutt stopp heldur vettvangur lang- ferðar í gegnum lífið,“ segir Krist- jana og nefnir að Baðhúsið bjóði ekki einungis upp á æfingaaðstöðu, heldur er þar líka snyrtistofa, nudd, gufa og fleira. „Það er gaman að fylgjast með þeim konum sem hafa verið með Baðhúsinu frá upphafi og eldast svo vel með okkur. Einnig er gaman að hitta nýja kynslóð af stelpum sem voru um það bil að fæðast þegar Baðhúsið var stofnað,“ segir Kristjana. 6 heilsa Helgin 26.-28. ágúst 2011  Baðhúsið býður upp á fleiri styttri æfingatíMa KYNNiNG Þarf ekki að taka langan tíma að æfa vel Alvöru bongótrommari mætir í afró-danstímana. Tjútt Salsa Break Street Mambó Hip Hop Freestyle Brúðarvals Barnadansar Ballroomdansar Suður-amerískir dansar Sérnámskeið fyrir hópa Börn – Unglingar – Fullorðnir Innritun og upplýsingar á dansskoli.is eða í síma 553 6645 b rian Gerke frá Bandaríkj-unum byrjaði með fram-haldsnemendurna í fyrra og til liðs við hann kemur Brogan Davison frá Englandi og sér um grunninn. Brian kennir raunar líka við Listaháskólann og Listdansskóla Íslands. Brogan útskrifaðist með BA- gráðu úr Laban-dansskólanum fyrir ári. Í skólanum voru íslenskar stúlkur sem hún kom að heim- sækja í fyrrasumar. „Ég ætlaði bara að vera í sex vikur,“ sagði hún en hefur greinilega eitthvað ílengst. Þetta er fimmta ár Brians hér á landi. Hann hefur verið á flakki um heiminn að dansa ásamt dans- félaga sínum, Steinunni Ketilsdótt- ur. Hann segir að Steinunn hafi einmitt byrjað að dansa í Kramhús- inu. Á undanförnum þremur árum hafa þau ferðast til á þriðja tug borga í Evrópu til að sýna dans, auk ferða til New York og Montana í Bandaríkjunum. Á ferðalagi í Ísra- el hitti hann þrjá sem höfðu séð hann dansa en hann segir blaða- manni að hér á landi þekki hann ekki margir; því hafi hann ákveðið að ferðast minna í ár og sinna Ís- landi betur. Hann ólst upp í borg sem er álíka stór og Reykjavík, og kann því vel við sig hér. Hann hefur þegar skipulagt dansferðir til Gautaborgar, New York, Montana og þaðan liggur leiðin aftur til Sví- þjóðar. Lífleg danssena Honum þykir danssenan hér líf- legt, einkum í ljósi stærðarinnar. Brogan segir að Íslendingar taki útlendum listamönnum sem vilja vinna hér opnum örmum. Hún segir að Íslendingar séu reiðu- búnir að leggja mikið á sig fyrir listina. Hún segir t.d. að Reykjavik Dance Festival, sem haldið verður í september, hafi litla fjármuni úr að moða en að allir sem komi að há- tíðinni vinni mikla sjálfboðavinnu og það myndist skemmtilegur andi meðal fólksins. Brogan kemur að tveimur verkefnum á hátíðinni. Hún er í danshópnum Raven sem hefur búsetu hérna á Íslandi og saman- stendur af dönsurum og tónlistar- mönnum víðsvegar um heiminn. Einnig hefur hún skapað verk með nemendum úr Danslistarskóla JSB sem sýnt verður víða um Reykjavík á hátíðinni. Þetta er í fyrsta skipti sem nemendur taka þátt í hátíð- inni. Hún kemur að fleiri verkefn- um því hún tók nýverið að sér að vera listrænn stjórnandi Spiral- dansflokksins. Námskeið Brogan í Kramhúsinu er fyrir byrjendur. Hún segir að kennslan litist af vist sinni í Laban- dansskólanum. Kennslan snúist meðal annars um að vera meðvit- aður um líkama sinn, spuna og að reyna á líkamann. „Það er ótrúlega gaman að kenna í Kramhúsinu því andinn þar er svo góður,“ segir hún. Brian kennir námskeið fyrir lengra komna. Hann segir að andinn á námskeiðnu sé góður því allir séu komnir til að hafa gaman af. Nemendur hafi margir æft dans þegar þeir voru yngri, af mikilli ástríðu og lagt mikið á sig, en nú sé aðalmarkmiðið að skemmta sér. „Ég elska að kenna dans, ég upplifi þetta ekki sem vinnu!“  saMtíMadans Vinsældir hafa aukist Mikið KYNNiNG Kramhúsið kraumar í vetur Erlendur danskennari segir að Íslendingar taki erlendum listamönnum fangnandi. Kristjana Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri líkamsræktar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.