Fréttatíminn - 26.08.2011, Qupperneq 64
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið mitt
Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins
50 tíska Helgin 26.-28. ágúst 2011
Ný fatalína frá systrum
B reska tímaritið Grazia sagði frá því í vikunni að
hin nítján ára Natali Germa-
notta og eldri systir hennar
Lady GaGa ætluðu að taka
höndum saman og hanna nýja
fatalínu undir fjölskyldunafn-
inu. Natali, sem stundar hönn-
unarnám í New York, er sögð
vera gríðarlega hæfileikarík
og hefur meðal annars unnið
sem búningahönnuður við
nokkrar stórar Boradway-sýn-
ingar. Yngri systirin er þó ekki
eins frjálsleg í fatavali og sú
eldri og er stefnan að mætast á
miðri leið við gerð fatalínunnar
svo að hún verði klæðileg fyrir
almenning. Talsmaður söng-
konunnar segir að fatalínan sé
á algjöru byrjunarstigi og ekki
hægt að gefa upp hvenær hún
verði tilbúin.
Ný fatalína í anda
Mad Man
F atahönnuðurinn Janie Bryant, sem hefur verið aðalhönnuður sjónvarps-þáttanna Mad Men síðustu ár,
hefur nú sett á sölu nýju fatalínuna Mad
Men Collection ásamt fatafyrirtækinu
Banana Republic. Fatalínan sækir inn-
blástur til sjónvarpsþáttanna vinsælu
þar sem tíska frá sjöunda áratugn-
um er ríkjandi, og er hún hönnuð
fyrir bæði kynin. Línan er nú til
sölu á vefverslun Banana Repu-
blic og er verðlagið mjög sann-
gjarnt.
Sjónvarpsþættirnir hafa haft
mikil áhrif á tískuheiminn síðustu
misseri, og þá sérstaklega núna í byrj-
un hausts. Mörg fatafyrirtæki leggja
mikla áherslu á fatnað frá sjöunda
áratugnum; kvenleg, elegant og
hentug.
Feta í fótspor fremstu hönnuða heims
Systurnar Edda og Sólveig Guðmunds-
dætur, sem hanna undir nafninu Sha-
dow Creatures, voru meðal keppenda
í hönnunarkeppni Reykjavík Runway
sem fram fór í síðustu viku. Þær voru
valdar úr hópi keppenda til að hanna
nýja Coke Light-flösku sem verður
að öllum líkindum framleidd í millj-
ónum eintaka og eru þar með að feta
í fótspor nokkurra af fremstu hönn-
uðum heims á borð við Karl Lagerfeld,
Donatella Versace og Roberto Cavalli.
Ferlið er enn á byrjunarstigi en gert
er ráð fyrir að flöskurnar líti dagsins
ljós næsta vor, á sama tíma og þriðja
fatalína þeirra systra.
Flöskur hannaðar af Karl Lagerfeld. Flöskur hannaðar af Roberto Cavalli.Systurnar Edda og Sólveig.
ROSEBERRY
Nýtt og áhrifaríkt efni fyrir þvagfærin
ROSEBERRY inniheldur þykkni úr trönuberjum ásamt hibiscus
og C-vítamíni. Þessi þrívirka blanda hefur reynst vel við
þvagfæravandandamálum.
2-3 töflur á dag fyrir svefn
Fæst í apótekum heilsu-
búðum og heilsuhillum
stórmarkaðanna.
Innflutningsaðili:
Öflugt þrívirkt fæðubótarefni sem slegið hefur í
gegn á Norðurlöndunum
Ranka ráðagóða
Til þess að halda sér frá
þvagfæra-
vandamálum er m.a. gott
að drekka
nóg af vatni, hreyfa sig
reglulega,
þrífa sig vel eftir klóset
tferðir og
eftir samlíf.
KYNNINGARAFSLÁTTUR
til 31. ágúst nk.
20%
HELGARBLAÐ
Ókeypis alla föstudaga