Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Síða 66

Fréttatíminn - 26.08.2011, Síða 66
 „Ódýrasti nagla- skólinn á landinu“ Þú tekur námið á þínum hraða Við kennum einnig víða um land t.d. Akureyri, Egilstöðum, Selfossi og Vestmannaeyjum Kennum einnig augnháralengingar og airbrushtækni. Þú finnur okkur líka á facebook Upplýsingar í síma 8202188 og á www.hafnarsport.is 52 tíska Helgin 26.-28. ágúst 2011 Gleraugnalína í anda sjöunda áratugarins S ala á nýjustu gleraugnalínu hönnuðarins Stellu McCartney hófst í vikunni og hefur að sjálf- sögðu rokið út. Línan er fjölbreyti- leg og er þemað helst gleraugu í anda sjöunda áratugarins sem tröllríður hausttískunni í ár og sést víða hjá helstu hönnuðum heims. Þegar Stella frumsýndi nýju lín- una hafði hún orð á því að nauðsyn- legt væri fyrir allar konur að eiga tvö sett af sólgleraugum. Annars vegar klassísk og þægileg sem end- ast manni alla ævi og hins vegar fjörugri gleraugu, í takt við tískuna. N ýgifta ofurfyrirsætan Kate Moss ákvað á dög- unum að selja ónotaðar flíkur úr fataskáp sínum á nýja fata- vefnum hardlyeverwornit.com. Fyrirsætan hefur alltaf haft flottan stíl og þar af leiðandi mikið vald á tískunni. Allt sem hún klæðist verður vinsælt. Því geta áhugasamar stelpur um tísku deilt fatnaði með fyrirsætunni og liðið eins og ofurstjörnu. Flíkurnar fara á uppboð á síðunni á næstu dög- um og verður byrjunarverðið gríðarlega hátt. Það má segja að þessi nýja uppboðssíða verði þróaðri og flottari gerð af eBay þar sem aðeins vandaðar og dýrar flíkur verða seldar á háu verði. Einnig munu frægar stjörnur stoppa við og selja flíkur sínar, líkt og Kate ætlar að gera á næstunni. Kate Moss selur ónotaðar flíkur P antið árhifin er hugmynda-fræðilegur veitingastaður þar sem réttirnir eru pantaðir út frá áhrifum þeirra á líkamann en ekki út frá innihaldi,“ segir Auður. „Við hugsum réttina ekki aðeins sem bragðgóða magafylli heldur upplifun og nýja nálgun á korn og grænmeti. Hugmyndafræðin snýst um tilraunagleði, rekjanleika og ný- sköpun á, að okkar mati, vannýttri auðlind, íslenska grænmetinu. Mat- ur er lífsnauðsyn og við neytum hans oft á dag. Okkur þykir mikil- vægt að vekja athygli á þeim áhrifa- mætti sem í fæðunni býr því matur seður ekki aðeins hungur heldur getur bæði verið fyrirbyggjandi fyrir sjúkdóma, græðandi og haft áhrif á andlega heilsu okkar. Við byrjuðum á að skrá matjurtir og kornmeti hér á landi, bæði villt og rækað, og kort- lögðum svo áhrif þeirra á líkamann. Grænkál hefur til að mynda jákvæð áhrif á minnið og bankabygg bæt- ir meltinguna. Hráefni með sömu verkun eða sameiginlega eiginleika, til dæmis fyrir meltingu eða minni, voru valin saman í rétt.“ Staðurinn verður færanlegur Hugmyndafræði staðarins nær allt frá byggingu hans til framreiðslu réttanna. Staðurinn sjálfur er byggður úr timbri úr Hallormsstað- arskógi, réttirnir eru gerðir úr inn- lendu gæða hráefni sem að lokum er eldað á íslensku metangasi. „Staðurinn verður færanlegur, sem gerir okkur kleift að ná til sem flestra,“ segir Auður. „Stefnan er að staðurinn verði notaður við hvers kyns hátíðahöld og menningarvið- burði svo að allir sem hafa áhuga fái að njóta hans. Staðurinn pakkast saman í kassa sem rúmar allt sem þarf til veitingareksturs. Þegar á áfangastað er komið er kassinn opn- aður og 30 fermetra tjald myndar staðinn með húsgögnum og eldun- arbúnaði. Verkefnið komið á fram- kvæmdastig Hugmyndin að veitingastaðnum kviknaði í Listaháskóla Íslands í áfanganum Stefnumót hönnuða og bænda. Í áfanganum vinna vöru- hönnunarnemar og íslenskir bænd- ur saman í hópum að nýsköpun og verðmætaaukningu íslensks land- búnaðar. Margar vörur hafa orðið til upp úr þessu þverfaglega sam- starfi, svo sem skyrkonfektið frá Erpsstöðum og rabarbarakara- mellan frá Löngumýri. Við unnum með Eymundi bónda í Vallanesi sem sérhæfir sig í framleiðslu lífrænna matjurta. Hugmyndin hefur þróast og stækkað mikið síðan þá og verk- efnið er nú komið á framkvæmda- stig og bíður þess að fara í fram- leiðslu. Næsta skref er svo bara að finna réttan rekstraraðila fyrir veit- ingastaðinn.“ -kp Fílefling, Minnisverður og Glaður í bragði eru réttir á matseðli veitingastaðarins Pantið áhrifin. Fjórir ungir vöruhönnuðir standa að baki hugmyndinni; Auður Ösp Guðmundsdóttir og Embla Vigfúsdóttir, sem eru útskrifaðar frá Listaháskóla Íslands, og skiptinemarnir Katharina Lötzsch og Robert Pe- tersen. Hönnuðurnir fengu nýverið Nýsköpunarverðlaun Forseta íslands og í dag, föstudag, klukkan 15.20 mun Auður kynna verkefnið á ráðstefnunni Nýr farvegur sem haldin er í Hörpu. Miklu meira en bragðgóð magafylli

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.