Læknablaðið - 01.02.1966, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS
O G LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: Ólafur Jensson. Meðritstjórar: Magnús Ólafsson og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Árni Björnsson og Ásmundur Brekkan (L.R.)
52. ÁRG. REYKJAVÍK, FEBRÚAR 1966 1. HEFTI
ÓLAFUR GEIRSSON
IUIMMIIMG
Ólafur Geirsson, aðstoðaryfirlæknir við Vífilsstaðahæli,
andaðist úr heilablóðfalli að morgni dags h. 22. júli sl. Kom
þetta því meira á óvart öllum hans nánustu, þar eð hann
hafði dvalið í vinahópi og að því er virtist alheill fram yfir
miðnætti jtetla kveld. Þegar liann var genginn til náða, kvart-
aði hann, er leið á nóttina, um liöfuðverk, sem ágerðist svo,
að hann varð skjótlega rænulaus. Var hann í því ástandi
fluttur á lyflæknisdeild Landspitalans, þar sem hann lézt
þremur klukkustundum eftir að fyrstu sjúkdómseinkenni
kömu i ljós.
Ólafur var fæddur 27. maí 1909 að Efri Brúnavöllum á
Skeiðum, sonur lijónanna Geirs Halldórssonar hónda ])ar, síð-
ar kaupmanns i Reykjavík, og konu hans, Guðbjargar Gísla-
dóttur. Hann varð stúdenl frá Menntaskólanum i Reykjavík
árið 1929 og kandídat í læknisfræði frá Háskóla íslands 1935.
Er Ólafur hafði lokið námskandídatsstörfum við Land-
spitalann, sigldi hann til Danmerkur lil framhaldsnáms í
herldasjúkdómum. Dvaldist hann þar við nám á berklahælum
á Jótlandi og sjúkrahúsum i Kaupmannahöfn. Eftir þriggja
ára dvöl í Danmörku kom hann heim og var þá ])egar ráð-
inn aðstoðarlæknir herklayfirlæknis og gegndi því starfi þar
lil 1942, að hann var ráðinn deildarlæknir við Vífilsstaða-
hælið og aðstoðaryfirlæknir þar 1961. Árin 1939 til 1943 starf-
aði Ólafur jafnframt á Berklavarnarstöð Reykjavíkur. Hann