Læknablaðið - 01.02.1966, Page 53
LÆKNABLAÐIÐ
23
fylgdi iðgjaldið a. m. k. betur verðbólgunni. Allir ræðumenn virtust
sammála um, að lífeyristryggingar, svo og hóp-slysatryggingar og hóp-
líftryggingar, væru nauðsynleg öryggisatriði fyrir lækna.
Um kvöldið var gestum boðið á tónleika í hljómleikasal háskól-
ans, en að þeim loknum hafði formaður finnska læknafélagsins, dr.
Karvonen, boð inni á heimili sínu í útjaðri Helsinki.
Hópsamvinna Laugardaginn 13. nóvember var rætt um hópsamstarf
lækna. lækna, og voru frummælendur dr. E. Riska og dr. K.
Hoppu. Annar frummælandinn skýrði frá hópstarfi
sérfræðinga í Helsinki, Dextra-lækningastöðinni, sem tók til starfa
fyrir rúmu ári. En dr. K. Hoppu skýrði frá samvinnu almennra lækna
í Vargás í Norður-Finnlandi.
Lækningastöðin í Helsinki var stofnuð með þeim hætti, að fjórir
iæknar keyptu húsnæði í smíðum, að stærð 350 m2, og létu innrétta
það sérstaklega fyrir lækningastarfsemi. Þar eru fjórar viðtals- og
skoðunarstofur, hver tólf fermetrar, einnig rúmgóð röntgendeild, rann-
sóknarstofur fyrir klíniska efnafræði og blóðfræði, lítil skrifstofa,
heldur minni en skoðunarstofurnar og einnig skrifstofa, sem annast
um móttöku sjúklinga. Biðrými er fremur lítið, aðeins í innri for-
stofu og gangi, enda ekki þörf á miklu slíku rúmi, því að allar mót-
tökur eru skv. fyrirfram gerðum tímapöntunum (sjá mynd á bls. 24).
Starfsliðið er 14 stúlkur, þar af fimm hjúkrunarkonur, tvær á
skurðstofu, tvær á rannsóknastofu og ein á röntgendeild, en auk þess
rannsóknakonur, afgreiðslustúlka og ritarar. Alls vinna þarna 17 lækn-
ar, sem allir eru sérfræðingar og flestir bundnir við önnur störf til kl.
15 á daginn. Hafa þeir því allir viðtalstíma síðdegis, sumir fjórum
sinnum í viku, aðrir þrisvar og nokkrir aðeins tvisvar sinnum. Að-
eins fjórir læknar starfa þarna samtímis, auk röntgenlæknanna.
Skiptingin milli sérgreina er þessi: þrír skurðlæknar, þrír kvenlæknar,
þrír lyflæknar, tveir barnalæknar, einn taugalæknir, einn háls-, nef-
og eyrnalæknir og fjórir röntgenlæknar. Röntgendeildin er opin fra
kl. 8 á morgnana til 20 á kvöldin, en lokuð á laugardögum.
Tekið var fram, að húsnæðið væri þarna illa nýtt, þar sem stof-
urnar væru auðar fyrri hluta dags, en hins vegar er röntgendeildin
og rannsóknastofurnar starfræktar allan daginn. Gert er ráð fyrir að
bæta við tveimur til þremur sérfræðingum með viðtalstíma að morgni
dags.
Taldi dr. Riska, að fyrirkomulag þetta hefði reynzt vel, það skap-
aði læknum betri skilyrði til rannsókna á sjúklingum, auðveldaði sam-
vinnu og hvetti lækna til þess að ráðgast hver við annan um vanda-
mál í starfinu. Flestir sjúklingar, sem þarna koma, leita þangað beint
án tilvísana frá öðrum læknum og panta viðtalstímana sjálfir, enda
eru almennir heimilisiæknar í Helsinki mjög fáir. Flestir sjúkrahús-
læknar vinna einhver störf utan sjúkrahúsanna, en þar fá læknar
ekki að annast einkasjúklinga, og utanspítalasjúklingar geta aðeins
leitað þar til hinnar almennu lækningastöðvar (poliklinik).
Allmikið var rætt um störf sérfræðinga og samvinnu þeirra við
almenna lækna, og voru allskiptar skoðanir um hlutverk sérfræðing-