Læknablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 68
LÆKNABLAÐIÐ
38
Þessar tryggingar eru aðskildar, en flestir taka bæði líf- og slysa-
tryggingu. Iðgjöld fyrir báðar tryggingarnar eru 360 krónur á ári.
í sjúkratryggingunni eru greiddar 900 krónur á mánuði, en mán-
aðarbiðtími er, áður en greiðslur hefjast. Iðgjald er 185 krónur á ári.
Um 90% sænskra lækna hafa ábyrgðartryggingar vegna skaða-
bótaskyldu í starfi. Kandídatar taka einnig slíkar tryggingar hjá fé-
laginu, þar eð þeir bera ábyrgð á þeim störfum, er þeim er ætlað að
leysa af hendi.
Allir sjóðir tryggingafélagsins nema nú um 75 milljónum krór.a.
Sparis'jóðurinn annast venjuleg lánsviðskipti til lækna í sambandi
við byggingar, lækningastofur, áhöld til reksturs og þvíumlíkt. Há-
markslán, sem'hver læknir getur fengið, er 40 þús. krónur. Lengstu
lánin eru til 12 ára og útlánsvextir V\—¥2% lægri en hjá öðrum lána:
stofnunum.
Tryggingaiðgjöld þessa félags eru yfirleitt 10% lægri en annarra
tryggingafélaga.
Selefa. Að lokum skoðuðum við svo Sveriges Lákarförbunds För-
sáljnings A/B, Selefa. Það er innkaupasamband læknanna og
hittum við forstjórann, Karl Esbjörnsson, og skoðuðum húsnæði og
birgðastöð.
Félagið sér um að útvega læknum hvaðeina, sem þeir þarfnast
til starfa sinna, frá eyðublöðum til húsgagna á lækningastofur. Allt
hneigist meir í þá átt að kaupa ódýr áhöld, sem aðeins eru notuð einu
sinni. Sænskir læknar láta fyrirtækið sjá um mikið af innkaupum
fyrir sig. Auk þess hefur fyrirtækið ávallt birgðir af venjulegum
rekstrarvörum. Veltan er nú um 6—7 milljónir á ári.
Öll skipulagning sænska læknafélagsins á móttöku okkar og öll
fyrirgreiðsla félagsins við okkur var frábær, og lögðu þeir kapp á að
kynna okkur á þessum stutta tíma sem flesta þætti starfsemi sinnar,
en fleira verður ekki rakið hér.
ENGLAND.
Til London komum við svo 17. nóvember um kvöldið og fórum
morguninn eftir til Harlow, sem er iðnaðarbær nokkurn veginn miðja
vega milli London og Cambridge.
Borg í Harlow er ný borg. Árið 1947 var sett á laggirnar nefnd
smíðum. til að gera áætlun um byggingu hennar. Hún átti að vera
sjálfstæður bær, aðgreindur frá nálægum borgum, og há-
mark íbúatölunnar 80 þúsund. Borginni er skipt í sex einingar, og
liggja aðalumferðagöturnar milli þessara svæða. í hverri einingu er
verzlunarhverfi, skóli og heilsugæzlustöð (Health Center). í þessum
stöðvum vinna almennir læknar, sem auk lækninganna sjá um heilsu-