Læknablaðið - 01.06.1966, Blaðsíða 31
LÆKN ABLAÐIÐ
107
2. tafla
Akureyrarveiki árin 1955 og 195C.
1955 1956
Lamaðir Ólamaðir Lamaðir Ólamaðir Alls
Patreksfjörður .... 19 G4 8 44 135
Þingeyri 46 46
Bolungarvík 19 19
Þórshöfn 1 10 17 86 114
Samtáls bxði árin: LamaSir 45
Ólamaðir 269
Reykjavik ræktuðust mænusóttarveirur af ætt I úr sex af sjö
sjúklingum, sem reynt var að rækta frá í faraldrinum 1955. Cr
sjúklingum frá Patreksfirði óx ekkert með sömu ræktunarað-
ferðum, og enginn þeirra, sem athugaður var (8 sjúklingar),
reyndist hækka að mótefnum gegn ætl I, eins og Reykjavíkur-
sjúldingarnir gerðu. Sömu niðurstöður og frá Patreksíirði urðu,
3. tafla
Niðurstöður mælinga á mótefnum gegn mænusótt i blóði reykviskra
barna teknu fyrir mænusóttarfaraldurinn 1955. Nefnari brotsins sýnir,
hve mörg börn voru prófuð, en teljarinn, hve mörg þeirra höfðu mótefni.
Mótefni gegn
Ætt I Ætt II Ætt III
Börn 3—8 ára 0/13 3/12 11/13
Börn 10—13 ára 12/14 5/14 9/14
er 16 sjúklingar frá Þingeyri voru rannsakaðir. 1 Bolungarvík voru
ekki gerðar mótefnamælingar eða ræktanir, en þar var greinilega
á ferðinni sama klíniska sjúkdómsmyndin og á Patreksfirði og
Þingeyri. Rannsóknir á Þórshöfn leiddu í ljós, að þangað hafði
ætl I alls ekki komið (I. mynd), og mjög lítil mótefni var þar
að finna gegn ættum II og III (4. og 5. lafla).
Frá því í nóvember 1955 þar til í janúar 1956 voru skráðir
30 mænusóttarsjúklingar í Sauðárkrókshéraði, þar af fjórir lam-