Læknablaðið - 01.10.1966, Síða 73
LÆKNABLAÐIÐ
233
starfa fyrir ríki og bæ. Þetta snertir að sjálfsögðu launakjör lækna
almennt, en um þau verður nánar fjallað síðar.
í samræmi við tillögu, er samþykkt var á síðasta aðalfunöi, þar
sem stjórninni var falið að kanna eða hlutast til um könnun á fyrir-
komulagi læknastöðva í nágrannalöndunum með tilliti til endurskipu-
lagningar læknisþjónustu í dreifbýli og þéttbýli hérlendis, var nefnd
manna send utan í þeim erindum. í nefndina var einn maður tilnefndur
og kostaður af L. í., annar af L. R. og hinn þriðji af læknisþjónustu-
nefnd Reykjavíkurborgar. Stjórn L. í. tilnefndi Þórarin Guðnason, L. R.
Arinbjörn Kolbeinsson og læknisþjónustunefnd Pál Sigurðsson. Þeir
ferðuðust um Danmörku, Svíþjóð, Finnland og Bretland og eftir heim-
komuna skýrðu þeir frá athugunum sínum á almennum fundi í L. R.,
en skýrsla um ferð þeirra hefur birzt í Læknablaðinu, svo sem kunnugt
er.
Tillögur voru samþykktar á síðasta aðalfundi, sem snerta ráðningu
staðgengla fyrir héraðslækna. Formaður Félags læknanema mætti á
fundi með stjórn L. f. til að ræða það mál. Var ákveðið, að skrifstofa
L. í. annaðist upplýsingar um staðgengla og aðstoðaði við útvegun
þeirra. Stjórnin hefur hins vegar ekki tekið upp beinar samningavið-
ræður við stjórn Félags læknanema um kjör staðgengla, og er það álit
stjórnarinnar, að æskilegast sé að fela slíka samninga nefnd, sem væri
skipuð fulltrúum frá héraðslæknum og einum úr stjórn L. í. Tillaga
varðandi þetta mál verður lögð fram síðar á fundinum. Stjórnin skrif-
aði héraðslæknum bréf og óskaði álits þeirra á núverandi taxta Félags
læknanema. Nokkur svör hafa borizt, en æskilegt væri, að sem flestir
létu í ljós álit sitt á þessu hér á fundinum.
í samræmi við tillögu frá Lf. Mið-Vesturlands, sem samþykkt var
á aðalfundinum, skrifaði stjórn L. í. læknadeild og lagði til, að athug-
aðir væru möguleikar á því að stofna kennaraembætti í almennum
lækningum við Háskóla íslands. Mál þetta mun enn vera í athugun í
læknadeild. Heilbrigðismálaráðuneytið hefur einnig skrifað læknadeild-
inni og lagt til, að slíkt kennaraembætti verði stofnað.
2. Samband við inn- Á síðastliðnu ári hefur verið alináið samstarf
lend og erlend lækna- milli stjórnar L. í. og stjórnar L. R., og hafa
félög og aðra aðila. stjórnirnar setið nokkra sameiginlega fundi, þar
sem rædd hafa verið mikilvæg sameiginleg
vandamál. Stjórn L. í hefur hlutazt til um, að send væru út fréttabréf
varðandi ýmis félags- og fagmál, eins og mönnum er kunnugt. Núver-
andi stjórn L. í. er þess fullviss, að náið samstarf milli aðalstjórr.ar og
aðildarfélaganna sé nauðsynlegt og styrkur læknasamtökunum í heild.
Samstarfsnefnd L. í., sbr. 12. gr. félagslaga, sat fyrsta fund sinn
11 /2 ’66. Nefndin hefur hins vegar lítið starfað, og er það miður. Eftir
síðasta aðalfund L. R. í marz sl. voru nýir menn tilnefndir í nefndina,
en hún kom saman fyrir nokkru og kaus sér formann, og varð Sigmund-
ur Magnússon fyrir valinu. Nefnd þessi hefur mikilvægu hlutverki að
gegna, þar sem er að vinna að samræmingu á launakjörum lækna hvar-
vetna á landinu.
Allnáið samband hefur verið við heildarsamtök lækna á hinum