Læknablaðið - 01.10.1966, Blaðsíða 83
I.ÆKNABLAÐIÐ
239
17. Lögð verði áherzla á að koma upp hjúkrunarspítölum, sem hafa
mundu í för með sér betri nýtingu Landspítalans. Enn fremur verði
athugað, hverjar aðrar breytingar á verkaskiptingu milli sjúkrahúsa
gætu orðið til að bæta rekstur þeirra og læknisþjónustu.
Reykjavík, 19. apríl 1966.
Guðjón Hansen (sign.) Jón Þorsteinsson (sign.)
Sigurður Samúelsson (sign.) Ólafur Bjarnason (sign.)
Árni Björnsson (sign.) Árni Þ. Árnason (sign.)
ritari nefndarinnar.
Samningarnir um launakjör sjúkrahúslækna verða raktir nánar af
Sigmundi Magnússyni, en segja má, að öll þessi samningagerð hafi
valdið byltingu í samningum sjúkrahúslækna við sína vinnuveitendur,
og gefst kostur á að ræða það mál síðar á fundinum.
Fyrrverandi stjórn L. í. kom því á, að greiðslur fyrir skólaskoðanir
voru samræmdar um land allt, og hafði um það samvinnu við mennta-
málaráðuneytið. Skömmu eftir að samkomulag þetta var gert, hækk-
uðu skólalæknar í Reykjavík taxta sinn fyrir skólaskoðanir og áttu í
samningum um það mál upp á eigin spýtur við yfirvöld borgarinnar
og án þess, að stjórn L. R. hefði þar nokkra aðild að eða íhlutun um.
Stjórn L. í. hefur lagt til við formenn svæðafélaga, að sama taxta yrði
fylgt úti á landsbyggðinni, án þess að um það hafi verið gert beint
samkomulag við menntamálaráðuneytið. Er hér verkefni fyrir sam-
starfsnefnd L. í. að taka til meðferðar.
Námssjóður sjúkrasamlagslækna er nú tekinn til starfa, svo sem
kunnugt er, og hafa allmörg sjúkrasamlög í kaupstöðum landsins greitt
til sjóðsins. Læknar utan Reykjavíkur eru þar með orðnir virkir aðilar
að sjóðnum. Hins vegar mun allmikið skorta á, að hin smærri sjúkra-
samlög víðs vegar um landið hafi innt af hendi greiðslur til sjóðsins.
Væri ástæða fyrir stjórnir svæðafélaga að fylgja því eftir, að slíkar
greiðslur væru inntar af hendi frá öllum sjúkrasamlögum.
Einn er sá flokkur samninga, sem enn hefur ekki tekizt að koma
á fastan grundvöll, en það eru samningar lækna, sem vinna við hin
smærri sjúkrahús úti um landið. Hér hefur enn vantað sameiginlegan
samningsaðila, sem læknasamtökin gætu snúið sér til, og er hér enn
eitt verkefni fyrir samstarfsnefnd L. í.
5. Héraðslækna- Skortur á héraðslæknum verður æ tilfinnanlegri,
vandamálið. sem kunnugt er. Stjórn L. í. drap nokkuð á þenn-
an vanda á ráðherrafundi í ágúst 1965, eins og
minnzt hefur verið á hér að framan. Hinn 2. júlí sl. kvaddi heilbrigðis-
málaráðherra stjórnina á sinn fund til að ræða þetta mál. Á þessum
fundi lagði stjórn L. í. til eftirfarandi:
1. Stofnað verði kennaraembætti í almennum lækningum við
læknadeildina og stúdentar skyldaðir til að taka virkan þátt í
almennu læknisstarfi í námi. Talið var æskilegt, að komið yrði
á fót framhaldsnámi í almennum lækningum eða heimilislækn-
ingum og fengju læknar þá eins konar sérfræðingsviðurkenn-
ingu í þeirri grein.