Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 63

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 63
LÆKNABLAÐIÐ 107 Grétar Ólafsson og Arne Malm: * HANDLÆKNISAÐGERÐIR VIÐ HJARTAKVEISU Inngangur Meðal velmegunarþjóða hafa sjúkdómar í hjarta og æða- kerfi líkamans aukizt stöðugt. Meðferð þessara sjúkdóma hefur reynzt læknum erfið og er enn ófullnægjandi. Hagfræðilegar rannsóknir í Bandaríkjum Norður-Ameríku hafa leitt í ljós, að um það bil 50% íbúa deyr úr slíkum sjúkdómum. Þetta er svip- að meðal annarra velmegunarþjóða. Af áðurnefndum sjúkdómum er um það bil helmingur í krans- æðum hjartans. Þar af leiðandi deyr fjórði hver Bandaríkjamað- ur úr kransæðastíflu eða sjúkdómum, sem af henni leiðir. Má í stórum dráttum segja, að fjórði hver einstaklingur, sem fær kransæðastíflu, deyi strax eða fljótlega, og að fimm árum liðnum sé um það bil helmingur þessara sjúklinga látinn. Bata- horfur hafa þó skánað nokkuð síðari ár, og' er það ekki sízt að þakka nákvæmari gæzlu sjúklinganna og bættri tækni „Acute coronary care units“, „Defibrillator", „Pacemaker“ o. s. frv. Hjartavöðvinn starfar stöðugt, og þarf þess vegna á mikilli næringu og súrefni að halda, enda er blóðrásarkerfi hans í sam- ræmi við það. Hægt væri að álykta, að hluti þessa ríkulega æða- kerfis væri að nokkru leyti til vara, en rannsóknir hafa leitt í ljós, að svo er ekki. Blóðstreymi kransæðá og hjartavöðva er tíu sinnum meira en annarra hluta líkamans, þegar þyngd hjartans er borin sam- an við heildarþyngd líkamans. Komið hefur í ljós, þegar tekin hafa verið blóðsýni frá sinus coronarius, að hjartavöðvinn notar nánast allt súrefnið í kransæðablóðrásinni. önnur líffæri og lík- amshlutar nýta um það bil þriðjung súrefnis blóðsins. Af þessu má sjá, að hjartavöðvinn er mjög viðkvæmur fyrir súrefnisskorti og þrengingar eða hindrun í kransæðum valda súrefnisskorti (ischaemia) í hjartavöðva, með hjartakveisu (angina pectoris), og ef til vill hjartastíflu (infarctus cordis) sem afleiðingum. Fyrstur lækna að lýsa sjúkdómseinkenninu angina pectoris *) BrjóstholsskurSdeild Malmö Allmanna Sjukhus.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.