Læknablaðið - 01.06.1969, Page 68
110
LÆKNABLAÐIÐ
2. mynd. a) Æðasaumur, eftir að hindrun hefur verið numin burt.
b, c og d) „Patch-graft“.
innar (perifert) ; síðan var það skrúfað varlega í gegnum hana
og hindrunin og æðaþelið (intima) dregið út eins og tappi úr
flösku (1. mynd a og b). Longmire opnaði aftur á móti æðina
með iangskurði á þeim stað, sem hindrunin var, og tók hana og
æðaþelið burt. Opið var síðan saumað saman með æðasaum. Að-
gerð þessa gerði hann á 23 sjúklingum, en dánartala eftir að-
gerð (prim. mortalitet) var 35%. Þótti honum og öðrum þetta
of há tala, og var aðferðin því lögð niður.
Á þeim sjúkrahúsum, þar sem slíkar aðgerðir eru enn þá
framkvæmdar, er nú notuð svokölluð „Patch-graft“ aðferð, en
hún er fólgin í því, að tekinn er burt sjúkur hluti æðarinnar og
í staðinn sett ígræðsla úr plastefni eða „homograft", sem venju-
lega er tekið frá pericardium eða einhverri bláæð sjúklingsins
(2. mynd). Þetta hefur reynzt betur, en dánartala eftir aðgerð
er enn þá há, eða um það bil 25%.
Af aðgerðum, sem miðá að því að láta nýjar æðar vaxa inn
í hjartavöðvann, má fyrst nefna aðferð Vinebergs. Hún er fólgin
í þvL að önnur eða báðar arteria mammaria interna eru frílagð-