Læknablaðið - 01.06.1969, Page 70
112
LÆKNABLAÐIÐ
ar auðveldar í framkvæmd og dánartala við aðgerð tiltölulega
lág, eða 3—6%.
Eftir aðgerð Vinebergs og „pexi-aðgerðir“ er talið, að sjúkl-
ingum skáni að meira eða minna leyti í 60—75% tilfella.
Árangur eða ekki?
Frá því að handlæknisaðgerðir við hjartakveisu hófust. hafa
læknar ekki verið á einu máli um gagnsemi þeirra. Andstæðine:-
ar, sem einkum eru lyflæknar, álíta, að einungis sé um sýndar-
bata að ræða, ef sjúklingi hefur skánað eftir aðgerð. Þeir færa
það meðal annars máli sínu til sönnunar, að skurðaðgerð geri að
verkum, að sjúklingi finnst eitthvað hafi verið gert til að hjálna
h'onum, og skurðlæknar, sem mæla með og framkvæma aðeerð-
irnar, séu oft bjartsýnir og lofi öllu fögru eins og verzlunarmað-
ur með vöru sinni.
Á flestum sjúkrahúsum, þar sem slíkar aðgerðir eru reynd-
ar, er því leitazt við að gera rannsóknir fyrir og eftir aðgerð,
sem bendi til hins rétta í þessu máli.