Læknablaðið - 01.04.1973, Síða 37
LÆKNABLAÐIÐ
65
uppi vegna ágreinings. Um hið nýja skipu-
lag heilbrgðismála, sem taka á gildi 1. jan.
1974, verður rætt síðar.
Lögin um dvalarheimili fyrir aldraða kveða
á um eftirlit með stofnun og rekstri slíkra
heimila, og um stjórn þeirra. Þá er gert ráð
fyrir, að ríkissjóður taki að styrkja sveitar-
félög til byggingar slíkra heimila, sem nemi
30% af byggingarkostnaði. Með reglugerð er
gert ráð fyrir, að settar verði lágmarkskröf-
ur um aðbúnað vistmanna, starfslið o. fl.
Lögin um vátryggingastarfsemi gera ráð
fyrir mjög auknu eftirliti með starfsemi vá-
tryggingafélaga og gerðar eru meiri kröfur
um starfsleyfi en nú er. Þá verður ekki leyft
að sama félag reki mismunandi tegundir
vátrygginga. Með lagasetningunni er stefnt
að því, að tryggingafélögum fækki og þau
verði öflugri en nú er og öryggi tryggingar-
taka vaxi að sama skapi.
Um var að ræða heildarendurskoðun á
lögum um atvinnuleysistryggingar og voru
gerðar á lögunum margar minniháttar breyt-
ingar, en í heild að því stefnt, að mun fleiri
eignist bótarétt en áður og bótaupphæðir
haldist í svipuðum upphæðum og lágmarks-
laun eru fyrir verkamannavinnu á hverjum
tíma.
Lagafrumvörpin um lyfjamál voru samin
og flutt í samræmi við stjórnarsáttmálann.
Frumvarpið um lyfjastofnun ríkisins gerir
ráð fyrir einkarétti ríkisins til innflutnings
og heildsölu lyfja svipað og nú er um áfengi
og tóbak. Frumvarpið um lyfjaframleiðslu
gerði ráð fyrir stofnun öflugs lyfjafram-
leiðslufyrirtækis, sem væri að hálfu eign
ríkisins, en að hálfu eign lyfsala og lyfja-
fræðinga. Gert var ráð fyrir, að þetta fyrir-
tæki starfaði við hlið annarra framleiðslu-
fyrirtækja í lyfjaiðnaði, ef þau vildu ekki
sameinast í þessu stóra fyrirtæki.
Enn hefur ekki verið fullsamið lagafrum-
varp um lyfjasmásölu, en þess er að vænta,
að það verði fullbúið fyrir haustið.
Önnur lagafrumvörp, sem sennilega verða
lögð fyrir þing næsta haust, eru um fóstur-
eyðingar, afkynjanir og vananir, um Ijósmæð-
ur, um tannlækningar og sennilega breyt-
ingar á iæknalögum.
3. Útgáfustarfsemi ráðuneytis oir land-
Iæknisembættis
í ráðuneytinu eru jafnan til sölu sérprent-
anir nýrra laga og reglugerða og einnig nokk-
uð upplag eldri laga, er snerta heilbrigðis-
og tryggingamál. í þessu sambandi má sér-
staklega benda á Heilbrigðisreglugerð fyrir
allt landið ásamt fylgiskjölum, sem út kom
á liðnu ári og er mjög gagnlegt rit öllum
héraðslæknum og þeim, er starfa að heil-
brigðiseftirliti.
Lyfjamáladeild ráðuneytisins sér nú um
útgáfu lyfjaskrár, og er hún jafnan til þar
ásamt áorðnum breytingum. Lyf á íslandi
komu í nýrri útgáfu á liðnu ári og eru seld
í ráðuneytinu.
Á þessu ári hafa komið út á vegum ráðu-
neytisins tvö fjölrituð rit. Annað fjallar um
athugun á hagræðingu í rekstri Trygginga-
stofnunar ríkisins og er unnin af Flagvangi
h/f, hitt fjallar um lyfjaframleiðslu og lyfja-
heildsölu og er nokkurs konar fylgirit með
þeim lyfjafrumvörpum, sem fyrr er um get-
ið. Það er samið af dr. Kjartani Jóhannssyni.
Ráðgert er, að í næsta mánuði komi út
rit um athuganir á vistunarrýmisþörf heil-
brigðisstofnana I landinu og síðar á vorinu
byggingaforsögn fyrir sjúkrahús á Akureyri.
Skýrslur af þessu tagi er ráðgert að fjöl-
rita eða prenta framvegis í nokkru upplagi
og bjóða til kaups.
Embætti landlæknis sér eins og áður um
útgáfu heilbrigðisskýrslna, læknaskrár og
dánarmeinaskrár og fást þessi rit á skrif-
stofu embættisins.
4, Bólusetning og ónæmisaðgerðir
Dagana 14.-17. marz síðastliðinn var hald-
in í Monaco alþjóðleg ráðstefna um ónæmis-
aðgerðir vegna smitsjúkdóma. Jnternational
Association of Biological Standardization"
stóð fyrir ráðstefnunni, en að þeim félags-
skap standa aðallega vísinda- og rannsókna-
menn á þessu sviði. Á ráðstefnunni I Mon-
aco var brugðið út af venju um þátttakend-
ur og boðið til ráðstefnunnar fulltrúum heii-
brigðisstjórna ýmissa landa í þeim tilgangi
að fá fram umræður um fyrirkomulag ónæm-
isaðgerða. Alls tóku 130 fulltrúar frá 30
þjóðum þátt í ráðstefnunni og hafði 17 þjóð-
um verið boðið sérstaklega að senda full-
trúa til að kynna framkvæmd ónæmisað-
gerða í löndum sínum. Páll Sigurðsson tók
þátt í ráðstefnunni af íslands hálfu og flutti
erindi um fyrirkomulag og skipulag þessara
mála hér.