Læknablaðið - 01.04.1973, Side 47
LÆKNABLAÐIÐ
69
með því að varpa á skerminn öll-
um lyfjagjöfum liðins tímabils. Yrði
þá að benda með svokölluðum ljós-
penna á þau atriði á skerminum,
sem ekki er búið að framkvæma, og
e. t. v. ástæðu þess.
— um leið og staðfesting um lyfjagjöf
er fengin, bókast lyfjagjafirnar á
sjúkraskrá einstaklings og magn
þeirra lyfja dregst sjálfkrafa frá
lyfjabirgðatalningu, sem tölvan held-
ur.
— ef birgðir þessa lyfs ná ákveðnu lág-
marki, gæti athugasemd um það
prentast á endastoð deildarinnar eða
innkaupastjóra eða prentast einu
sinni á dag á hraðgengnum prentara
í tölvudeild.
— einnig yrði vitneskju um veitt lyfja-
magn safnað í tölvu til þess að útbúa
með reglulegu millibili, t. d. mánað-
arlega, yfirlit yfir lyfjanotkun hverr-
ar deildar.
3. Á endastöð déildarinnar er sett inn
beiðni um maga-röntgenmynd. Eftirfar-
andi keðja er sett af stað:
— tölvan athugar, hvenær hægt sé að
framkvæma þessa rannsókn með til-
liti til undirbúningstíma sjúklings,
lauss tíma á röntgendeild og hugsan-
legra árekstra við aðra meðferð eða
rannsókn á þessum sjúklingi. Þegar
tölvan finnur hagstæðan tíma, sýnir
hún tíma eða úrval tveggja eða
þriggja tíma á skermi. Val tímans
er svo í höndum umsækjanda, sem
þarf aðeins að benda á skerminn á
viðkomandi stað til að staðfesta tím-
ann.
-—- kvöldið áður en rannsóknin fer
fram, prentast á endastöð röntgen-
deildar:
a) tímaáætlun fyrir næsta dag
handa starfsfólki við móttöku.
b) vinnulistar fyrir allar vinnustof-
ur á röngendeildinni.
— kvöldið áður en rannsókn fer fram
,,man“ tölvan að prenta á endastöð
eldhússins að senda skuli léttan
kvöldmat handa þessum sjúklingi.
Tölvan ,,man“ einnig eftir að draga
einn skammt frá máltíðafjölda
næsta morguns. Þegar röntgendeild-
in tilkynnir, að myndatöku sé lok-
ið með árangri, endurnýjar tölvan
fyrri matarreglur sjúklings gagn-
vaft eldhúsinu.
— tölvan bætir sjálfkrafa á skipunar-
skrá beiðni um skuggaefni, sem
prentast svo á réttum tíma á enda-
stöð deildarinnar og bókast á sjúkra-
skrá sjúklings í tölvunni.
— morguninn, sem myndataka á að
fara fram, prentast á endastöð
deildarinnar minnisblað um, að það
eigi að flytja sjúklinginn kl. xx.xx í
myndatöku.
— svar um myndatoku er sett inn í
endastöð röntgendeildar og prentast
nær samtímis á deildinni.
Þessi þrjú dæmi sýna möguleika slíkra
kerfa. Fá sjúkrahús samræma starfsemi
sína á svo víðtækan hátt. Mörg eru þó
sjúkrahúsin, sem beita hluta slíkra sam-
ræmdra kerfa með góðum árangri og nota
til þess margvísleg tæki og aðferðir.
Það er sameiginlegt samræmdum kerf-
um, að:
1. Stjórnendur viðkomandi sjúkrahúsa
Íéggja áherzlu á að samræma vinnu
sjúkrahúsdeilda til þess að hlúa bet-
ur að sjúklingum, minnka tafir í með-
höndlun þeirra og stytta þannig legu-
tíma í sjúkrahúsinu.5
2. Kliniskar deildir hafa samfelldan að-
gang að tölvu.r> 18
3. Kjarni upplýsingakerfisins er sjúkl-
ingaskrá (Patient Master Record),
sem geymd er í aðgengilegu formi í
tölvu.r> :!4
Þau atriði, sem frábrugðin eru frá ein-
um stað til annars, eru m. a.:
1. Tegund endastöðva: Endastöðvar eru
yfirleitt fitvélar og skermár28 34 éða rit-
vélar með viðtengdum takkaborð-
um,1118 33 sem eru notuð með götuðum
plastþynnum (grímum), sem á eru
prentuð lyfjanöfn, rannsóknarheiti o. fl.
2. Staðsetning endastöðva:5
Algengt er, að endastöðvar séu staðsett-
ar á vaktherbergjum kliniskra deilda
og á þjónustudeildum. Önnur lausn,
sem virðist ná útbreiðslu, ér, að nokkraf
endástöðvar séu staðsettar saman í einu
herbergi og vinna þá sérþjálfaðir rit