Læknablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ
13
Ólafur Þ. Jónsson
AFBRIGÐILEGIR CHOLINESTERASAR SEM ORSÖK
FYFIR LANGVARANDI APNEA
Suxamethonium er stuttverkandi vöðva-
slappandi lyf, sem byrjað var að nota við
svæfingar árið 1952. Efnið er brotið niður
í líkamanum tfyrir áhrif cholinesterasa,
sem framleiddir eru í lifrinni.
Fljótlega var því veitt athygli, að ein-
staka sjúklingar fengu langvarandi apnea
eftir notkun lyfsins. Margir þessara sjúkl-
inga virtust alveg heilbrigðir og litlir
skammtar höfðu verið notaðir. Var í fyrstu
álitið að orsökin væri skortur á cholin-
esterösum.
Árið 1958 uppgötvaðist, að um tvenns
konar cholinesterasa í serum væri að ræða,
annars vegar venjulega, sem brjóta niður
suxamethonium mjög hratt og hins vegar
afbrigðilega (atypiska), sem brjóta það
niður mjög hægt. Eftir suxamethonium-
notkun verður þá um langvarandi apnea
að ræða hjá þeim sjúklingum, sem hafa
afbrigðilega cholinesterasa.
Hér verður sagt frá einu slíku tilfelli.
SJÚKRASAGA
56 ára gömul kona var tekin til aðgerðar
vegna brots á ökkla. Hún hafði verið
hraust að öðru leyti en því, að í nokkur
ár hafði mælzt af hár blóðþrýstingur og
hafði hún notað við því Centyltöflur. Hún
hafði aldrei verið vistuð á sjúkrahúsi áð-
ur. Við skoðun var almennt ástand gott,
hjarta- og lungnahlustun eðlileg, blóð-
þrýstingur 140/80. Blóðhagur eðlilegur,
sömuleiðis hjartarafrit og röntgenmynd af
lungum.
í lyfjaforgjöf fékk hún pethidine 50 mg.,
Phenergan 25 mg. og atropin 0,5 mg., sem
gefið var í vöðva tveimur stundum áður
en svæfing hófst. Hún var svæ-fð með 300
mg. 2,5% penthotal í æð og síðan gefið 75
mg. af suxamethonium í æð til slöppunar
áður en barkarenna var lögð. Svæfingu
var síðan haldið við með halothane 1,5-
0,3%, glaðlofti 3 1. og súrefni 3 1. Notað
var hringrásarkerfi með kalki.
Fljótlega var Ijóst, að sjúklingurinn and-
aði ekki sjálfur og varð því að stjórna
öndun meðan á aðgerð stóð. í lok aðgerðar
var sjálfstæð öndun þó byrjuð, en mjög
veikluð. 20 mínútum síðar var öndun það
góð, að talið var óhætt að taka barkarenn-
una. Um það bil tveimur stundum eftir lok
aðgerðar var öndun orðin eðlileg og sömu-
leiðis líkamskraftar. Voru þá liðnar rúmar
3 klst. frá því að svæfing hófst. Útilokað-
ar voru ýmsar algengar ástæður til lang-
varandi apnea í sambandi við svæfingar.
Var því tekið blóðsýni, sem rannsakað var
á vegum Erfðafræðinefndar Háskólans og
kom í ljós, að um afbrigðilega cholinester-
asa var að ræða.
UMRÆÐA
Suxamethonium er mikið notað sem
hjálparlyf við svæfingar, einkum til stuttr-
ar afslöppunar, þannig að auðveldara sé að
setja niður barkarennu. Verkun þess var-
ir yfirleitt skemur en 2 mín., þegar venju-
legur skammtur er notaður, (50-70 mg. hjá
fullorðnum). Talið er að meirihluti efnis-
ins sé brotinn niður á einni mínútu og
verður það fyrir áhrif cholinesterasa. Það
klofnar fyrst í succinylmonocholine og
choline. Síðan breytist succinylmonochol-
ine í succinsýru og choline.
Eins og að framan greinir eru cholin-
esterasar framleiddir í lifrinni. Þegar um
lifrarsjúkdóma er að ræða, getur því orð-
ið skortur, sömuleiðis við langvarandi nær-
ingarskort. Hiá slíkum sjúklingum má bú-
ast við nokkurri seinkun á niðurbroti
suxamethonium.
Afbrieðilegir cholinesterasar orsakast af
afbrigðilegum genum, sem ganga að erfð-
um. Ekki verður nánar farið út í erfða-
fræðileg atriði eða rannsóknaraðferðir, en