Læknablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ
39
Mynd 1.
Aðalflokkar lipoproteina: Chylomicron, VLDL eða prebeta, LDL eða beta og HDL eða
alpha lipoprotein. Þau innihalda mismikið magn af fitu og proteinum og eru því mis-
eðlislétt. Frjálsar fitusýrur eru bundnar albumeni, en eru venjulega ekki taldar með
lipoproteinum. Þar sem kólesterol og þríglyseríðar er,u bundin proteinum, verður að
taka blóðsýnið án þess að nota „stasa“, sem ella leiddi til hækkaðs gildis.
er auk þess stofnefni í myndun stera og
gallsýra. Þríglyseríðar eru meginuppistað-
an í forðafitu líkamans. Þeir eru sambönd
fitusýra og glyseróls, og eru þrjár fitu-
sýrur bundnar einni glyserólsameind, og
er nafngiftin af því dregin. Frjálsar fitu-
sýrur (FFA) eru meginorkugjafinn í föstu.
Þær eru í stöðugri tilfærzlu milli forða-
fitunnar og vefjanna, sem brenna þeim,
og hafa þær mjög stutta viðstöðu í blóð-
inu. Fosfólípíðar gegna mjög mikilsverðu
hlutverki í frumuhimnum og víðar. I
þessu yfirliti verður einkum fjallað um
kclesteról og þríglyseríða.
Fitan er að sjálfsögðu óuppleysanleg í
blóðvökvanum, en er bundin sérstökum
proteinum, sem starfa sem nokkurs kon-
ar bátar til að halda fitunni á floti. Þess
vegna er talað um lipoprotein, sem inni-
halda bæði fitu- og proteinhluta (apo-
protein). Aðalgreiningaraðferðirnar á lipo-
proteinum eru rafdráttur og hraðskilvinda
(ultracentrifugatio), og hvor um sig hefur
leitt til sérstakra nafngifta. (Sjá töflu I).
Samkvæmt þessari skiptingu eru því 4
aðalflokkar af lipoproteinum13 20 29 (sjá
mynd 1).
a) Chylomicron (a) eru svo eðlislétt,
eþ.<0.95, vegna þess, að þau samanstanda
meir en 95% af þríglyseríðum, en aðeins
1-2% af proteinum. Auk þess innihalda
þau lítið eitt af kólesteróli og fosfólípíðum.
Aukning á chylomicra í blóði veldur því
aðallega hækkun á þríglyseríðum, en í
mun minna mæli hækkun á kólesteróli.
Þau eru mynduð í garnaveggnum og gegna
því hlutverki að flytja þríglyseríða, kóle-
steról og fosfólípíða úr fæðunni eftir sog-
æðum (þaðan er nafnið dregið) og inn í
blóðið. í háræðaveggjunum er sérstakur
efnakljúfi, „lipoprotein lipasi“, sem klýf-
ur þríglyseríðana frá hinum hluta chylo-