Læknablaðið - 01.02.1974, Page 77
LÆKNABLAÐIÐ
43
NORMAL
m
IV
(BROAD^ )
»1« mmm
vmmm matöMm 'MtiWXf/JÍMÍi
i
r* 17 17 1 mmm wmm
< CHYLOS
< PRE ‘JQ
■< eC
Mynd 4.
Flokkun á hyperlipoproteinemium, sem kennd er við Frederickson, byggist á rafdrætti
á lipoproteinum í serum, eins og bessi teikning sýnir. Slíkur rafdráttur er aðeins „semi-
quantitativur“ og kemur því ekki í stað mæ'inga á kélesteróli og þríglyseríðum, heldur
er aðeins stuðningsrannsókn til að finna í hvaða lipoproteini aukningin á kólesteróli
og þríglyseríðum sé.
Allt að þriðjungur sykursjúkra hefur
hækkaða þríglyseríða við greiningu, en
ekki er fyllilega vitað hvers vegna sumir
hafa það, en aðrir ekki. Því hefur verið
haldið fram, að hækkun á þríglyseríðum
sé tengiliðurinn milli sykursýki og æða-
kölkunar.20
Það er vel þekkt, að hypothyroidismus
getur valdið hækkun á kólesteróli, líklega
vegna minnkaðs útskilnaðar í formi gall-
salta, en getur einnig valdið hækkun á þrí-
glyseríðum. Skiptar skoðanir eru um,
hvort og hversu oft „subcliniskur hypo-
thyroidismus“ sé orsök hækkaðrar blóð-
fitu. í þessum sjúklingum finnst hækkað
TSH (thyroid stimulerandi hormón), en
önnur skjaldkirtilspróf eru eðlileg, en jafn-
íramt finnst hækkað kólesteról. Víðtækar
rannsóknir eru nú í gangi til að kanna
hversu algeng þessi sjúkdómsmynd er.
Ofnotkun áfengis er algeng orsök hækk-
aðra þríglyseríða, líklega vegna aukinnar
framleiðslu lifrar á VLDL.10 Þegar þrí-
glyseríðar eru mjög háir getur það valdið
endurteknum verkjaköstum í kvið, líklega
vegna briskirtilsbólgu, enda þótt amylasar
séu ekki alltaf hækkaðir. Þetta skyldi því
hafa í huga við mismunagreiningu á kvið-
verkjum, ef um mikla áfengissögu er að
ræða.
Þriðjungur sjúklinga með þvagsýrugigt
hefur hækkaða þríglyseríða, en ekki er
vitað, hvað er orsök og hvað er afleiðing,
því að þvagsýrulækkandi meðferð leiðir
ekki til lækkunar á þríglyseríðum.7 Fram-
inghamrannsóknin sýndi, að hækkun þvag-
sýru er áhættuþáttur fyrir kransæðasjúk-
dómi. Ef til vill er það vegna samfara
hækkunar á þríglyseríðum, en þeir voru
því miður ekki mældir í þessari rannsókn.
Nýrnabilun, af hvaða orsök sem er, get-
ur valdið hækkun á kól. og þrígl., og get-
ur orðið klíniskt vandamál nú, þegar ævi-
skeið þessara sjúklinga hefur verið lengt
verulega.
Getnaðarvarnatöflur hækka að jafnaði
þríglyseríða í blóði, en oftast ekki meir en
svo, að þeir haldist innan eðlilegra marka.
Það virðist vera östrogenhlutinn, sem veld-
ur hækkuninni með því að auka lifrar-
framleiðsluna á VLDL. Sjaldnar hækkar
kólesteról, og þeirri hækkun veldur pro-
gestogenhlutinn.31 Um meðgöngutímann
verður oft nokkur hækkun á blóðfitunni,
væntanlega af svipuðum uppruna.
Hækkað kólesteról finnst oft í „obstruc-