Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1976, Page 17

Læknablaðið - 01.04.1976, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 59 MENN í FLESTUM ATRIÐUM SAMMÁLA Matthías Bjarnason, ráðherra, ræddi í ávarpi í upphafi ráðstefnunnar almennt um markmið heilbrigðisþjónustu og fyrir- komulag hennar. „Af umræðum síðustu ára um þessi mál hefur orðið ljóst,“ sagði ráðherra, „að menn eru í flestum atriðum sammála um hvaða leiðir skuli fara og að hverju beri að stefna. Verkefni næstu ára verður því ekki að deila um leiðir, heldur sameinast um það að koma málum fram . . . Ég vona, að þessi ráðstefna verði árang- ursrík og að menn komi af henni sam- mála og fullir bjartsýni um það, að við séum á réttri leið í sambandi við upp- byggingu heilbrigðisþjónustunnar, og að jafnvel verði bent á nýjar leiðir til þess að markmiðunum verði náð hraðar en þeir sem bjartastar hafa vonirnar geta eygt í dag. Við í Heilbrigðisráðuneytinu óskum þess að sem allra mest og bezt samvinna sé við læknastéttina og hina ýmsu starfs- hópa heilbrigðismálanna almennt. Með samvinnu og skilningi milli allra þessara aðila náum við betri árangri að því marki sem við keppum — að bæta og gera full- komnari heilbrigðisþjónustuna í öllum byggðarlögum lands okkar.“ VANDAMÁLIN SVIPUÐ í KANADA Gestur ráðstefnunnar, dr. Donald J. Rice, framkvæmdastjóri Félags heimilislækna í Kanada, flutti tvö erindi á ráðstefnunni er báru yfirskriftina „Primary care and the family physician“ og „Community health centers“. í fyrra erindinu fjallaði höfundur um stöðu og framtíðarhorfur heimilislækninga í Kanada, en vandamálin virðast í aðal- atriðum þau sömu og hér. Á allra síðustu árum hefur aukizt mjög áhugi almennings og stjórnvalda á eflingu heimilislækninga. og að gera þær virkari með betri tengingu við aðrar heilbrigðisstéttir. Almenningur hefur kvartað undan hinni oft á tíðum ópersónulegu sérfræðiþjónustu, og yfirvöld vilja halda heilsugæzlukostnaði sem mest í skefjum. Þarafleiðandi hafa þau áhuga á sem beztri nýtingu lækna og hjúkrunai- liðs. Höfundur segir í lok erindisins: ,, . . . these are exciting ana challenging days for family physicians. Following a course that many described as headed for certain extinction, the family doctor is once again coming into his own. Trained by design, rather than by default, and constantly sensitive to the changing needs of the community for his services, I have great confidence that by working more closely with other health professionals in a coordinated health care system — his contribution to an improved system will remain unchallenged." f síðara erindinu segir höfundur, að hann hafi tekið þátt í mörgum fundum og ráðstefnum um heilsugæzlustöðvar. Hann bendir á, að margir læknar telji heilsu- gæzlustöðvar ekkert nýtt fyrirbrigði, þar sem læknar hafa víða náið samstarf. Það er aftur á móti hjúkrunarfólk, sálfræð- ingar, félagsráðgjafar og aðrir sem starfa að heilbrigðismálum, sem hafa öllu meiri áhuga á heilsugæzlustöðvum, m. a. vegna þess að með tilkomu þeirra séu aðrar heil- brigðisstéttir nær læknunum stöðulega. Þá er greinilegt að stjórnmálamenn hallast fremur að því að veita fé til heilsugæzlu- stöðva en til einkaaðila á sviði heilsu- gæzlu. Höfundur rekur síðan rök með og á móti heUsugæzlustöðvum. Það kemur skýrt fram að hann er hlynntur breytingum á núverandi kerfi í heimalandi sínu. Hann telur eftirfarandi þrjár meginástæður fyr- ir stuðningi sínum við heilsugæzlustöðvar: 1. To control or reduce the rapidly es- calating costs for health services, by overcoming much of the fragmentation and duplication of services that exists within the present system. 2. To reduce the in-hospital portion of total health care services, in belief that by so doing costs would be con- trolled. 3. To provide more ready access by a larger number of people to complete health services — not only those ser- vices that are medically oriented, but those that have major social and economic overtones. NÍU HEILSUGÆZLUUMDÆMI Skúli G. Johnsen, borgarlæknir, ræddi um heilsugæzluumdæmi Reykjavíkur og svæðaskiptingu borgarinnar. Hann benti á, að með lögum um heilbrigðisþjónustu frá

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.