Læknablaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 48
80
LÆKNABLAÐIÐ
og innleiddi Snorri P. Snorrason umræður
um B.H.M. og þátttöku L.I. í þeim samtökum.
Umræður gengu aðallega út á það að út-
skýra hin nýju lög um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna, en L.I. er skylt að eiga
aðild að B.H.M., ella úrskurðar ráðherra um
kjör þeirra, sem utan heildarsamtaka eru.
Guðmundur Oddsson lagði fram eftirfarandi
tillögu:
„Aðalfundur L.I. 1974 fer fram á við stjórn
L.I., að hún sæki til B.H.M. um undanþágu til
samninga vegna lausráðinna lækna við næstu
kjarasamninga, sbr. lög um kjarasamninga op-
inberra samninga frá 15. júlí 1973, 4. mgr. 3.
gr.“
Tekinn fyrir H. liður 8. töluliðs, er fjallar
um samskipti við fjölmiðla. Snorri P. Snorrason
reifaði málið og ræddi m.a. um tilhneigingu
vissra dagblaða til að gera sér mat úr ýmsu
varðandi starf lækna í æsifregnastil.
Brynleifur Steingrímsson nefndi nýlegt
dæmi, þar sem læknir hafði berum orðum verið
sakaður um vanrækslu i blaðagrein og engin
grein verið gerð fyrir tilvikinu af hálfu lækn-
isins eða læknasamtakanna.
Skúli Johnsen skýrði þetta tilfelli og kvað
væntanlega leiðréttingu frá lækninum og við-
komandi stofnun.
Heimir Bjarnason bar fram tillögu um, að
Bjarna Bjarnasyni, lækni, sem nú var fjarver-
andi frá aðalfundi L.I. sökum veikinda, yrði
sent skeyti, þar sem honum væru þökkuð störf
i þágu læknasamtakanna. Var þetta samþykkt
samhljóða.
Kosningar
Fulltrúar í B.H.M.: Arinbjörn Kolbeinsson,
Grétar Ólafsson, Magnús Karl Pétursson og
Skúli G. Johnsen. Varamenn: Bjarki Magnús-
son, Friðrik Sveinsson, Guðmundur Oddsson og
Víkingur H. Arnórsson.
2 menn í kjararáð og 2 til vara: Gunnar
Guðmundsson og Konráð Sigurðsson og til vara
Sigmundur Magnússon og Friðrik Sveinsson.
2 menn í gerðardóm og 2 til vara: Gunnlaug-
ur Snædal og Þóroddur Jónasson og til vara
Víkingur H. Arnórsson og Þorsteinn Sigurðs-
son.
Kjörnir skyldu til 2ja ára varaformaður, rit-
ari og meðstjórnandi. Formaður lagði til, að
varaformaður og ritari yrðu endurkjörnir.
Ekki komu fram fleiri tillögur. Grímur Jóns-
son hafði beðist undan endurkosningu og var
Isleifur Halldórsson kjörinn meðstjórnandi.
Síðasti liður á dagskrá aðalfundar L.I. 1974
var erindi úr sögu læknisfræði á Islandi í 1100
ár.
Til fundarins hafði verið boðið Jóni Steffen-
sen, prófessor emeriti, til að halda fyrirlestur
um bólusótt á Islandi. Flutti fyrirlesari ítar-
legt erindi um efnið og gaf yfirlit um bólu-
sóttarfaraldra á Islandi og tímasetningu þeirra.
Snorri P. Snorrason þakkaði fundarmönnum
fundarsetuna, lýsti ánægju sinni með störf
fundarins og óskaði mönnum góðrar heimferð-
ar. Því næst sleit hann aðalfundi Læknafélags
íslands 1974.
Aðalfundurinn 1975
Fundur var settur fimmtudaginn 4. sept. 1975
kl. 9.00 í Domus Medica af formanni L.I.,
Snorra P. Snorrasyni. Bauð hann fulltrúa vel-
komna. Sérstaklega bauð hann velkomna á
fundinn heilbrigðisráðherra, Matthias Bjarna-
son og ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytis,
Pál Sigurðsson, sem sýndu félaginu þá vinsemd
að vera viðstaddir setningu fundarins, en hinn
síðarnefndi sat allan fundinn.
Þá minntist formaður með nokkrum orðum
þeirra félaga, er látizt höfðu frá síðasta aðal-
fundi, en þeir voru:
Jóhann J. Kristjánsson, f. 7/6 98, d. 3/10 7/f.
Pétur H. J. Jakobsson, f. 13/11 05, d. 8/3 75.
Halldór Hansen, sr., f. 25/1 89, d. 11/5 75.
Þóróur Möller, f. 13/1 17, d. 2/8 75.
Formaður skýrði frá aðalviðfangsefni aðal-
fundar og læknaþings, sem verða: „Framhalds-
menntun lækna og atvinnuhorfur yngri lækna
á Islandi".
Formaður skipaði Guðmund Oddsson fund-
arstjóra og Skúla G. Johnsen fundarritara og
Gísla Auðunsson, vararitara.
Næst ávarpaði heilbrigðisráðherra Matthías
Bjarnason fundinn. Hann þakkaði vinsemd, sem
fælist í boði félagsins til sín, að sitja og ávarpa
fundinn. I ávarpi sínu gerði ráðherra að um-
talsefni tengslin milli heilbrigðis- og félags-
málastarfs og nauðsyn samræmingar aðgerða
stjórnvalda á því sviði. Skýrði hann frá um-
ræðum um heilbrigðis- og félagsmál í þessa
veru á fundi heilbrigðis- og félagsmálaráð-
herra á Norðurlöndum í Árósum nýverið. Drap
ráðherra sérstaklega á aðstæður barna fyrir
skólaaldur og aldraða.
Niðurstaða ráðherra var sú, að stefna fram-
tíðarinnar væri að leggja miklu meiri áherzlu
á fyrirbyggjandi starf og beita víðtækum lækn-
isfræðilegum og félagslegum aðgerðum í þessu
skyni.
Frá Læknafélagi Reykjavíkur höfðu þessir
fulltrúar verið kosnir: Guðmundur Oddsson,
Guðmundur Jóhannesson, Hreggvdður Her-
mannsson, Jóhann L. Jónéisson, var aðalfulltrúi
skv. kjörbré_fi, en Tómas Á. Jónasson, varamað-
ur hans, mætti í hans stað, Jóhannes Berg-
sveinsson, Sigurður Sigurðsson, Skúli G. John-
sen, Snorri P. Snorrason og Örn Bjarnason.
Frá Læknafélagi Austurlands: Daníel Daní-
elsson og Jón Aðalsteinsson til vara.
Frá Læknafélagi Suðurlands: Brynleifur
Steingrímsson.
Frá Læknafélagi Norðurlands: Gísli G. Auð-
unsson, sem var varamaður Ingimars Hjálm-
arssonar, aðalfulltrúa, er ekki gat mætt til
fundar.
Frá Félagi ísl. lækna í Bretlandi. Eyjólfur
Haraldsson.
Frá Læknafélagi Vesturlands: Guðjón Guð-
mundsson.