Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ 63 og hópstarfi, í þeirri trú að þar verði sam- band milli heimilislæknis og sjúklings nán- ara og þjónustan hagkvæm og ódýrari. Ólafur Örn tók fram að lokum, að þó ekki yrði komizt hjá göngudeildarstarf- semi að einhverju marki, þá bæri að stefna að því að sem mest af heilbrigðis- vandamálum fólksins yrði leyst utan sjúkrahúsa og utan göngudeilda, svo lengi sem hægt er að sýna fram á, að sú þjón- usta sé ekki lakari en á sjúkrahúsum og göngudeildum þeirra. STÖRF SÉRFRÆÐINGA Á HEILSU- GÆZLUSTÖÐ Giuðmundur Jóhannesson, læknir, ræddi um störf sérfræðinga á heilsugæzlustöðv- um, skipulega sjúkdómaleit og tengsl sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðva. Guð- mundur tók sem dæmi heilsugæzlustöð eins og þá, sem ráðgert er að reisa í Breiðholti, og benti á hugsanlega þrjá valkosti: „1. Að 2-3 sérfræðingar í stærstu sér- greinum hefðu sína móttöku á heilsugæzlu- stöð og gætu þannig þjónað ekki aðeins upptökusvæði slíkrar heilsugæzlustöðvar, heldur kæmu til þeirra sjúklingar annars staðar frá. Með því móti væru viðk-om- andi sérfræðingar tiltækir á staðnum dag- lega. Ef sett verður upp heilsugæzlustöð hér í Domus Medica yrðu hér tilsvarandi aðstæður. 2. Að sérfræðingar hinna ýmsu sér- greina skiftust á um móttökur ákveðna daga í heilsugæzlustöðinni, en væru ráð- gefandi, ef með þyrfti fyrir heimilislækna stöðvarinnar þess á milli. Þetta fyrirkomu- lag mundi væntanlega henta bezt við okk- ar aðstæður og tryggja betri nýtingu lækn- anna og þess húsnæðis og aðstoðar, sem nauðsynleg er í þessu sambandi. Með þessu móti myndi sú sérfræðiþjónusta, sem hægt væri að fá, dreifast á fleiri sérgreinar. Og yrði þannig til meiri hægðarauka fyrir fólkið, sem síður þyrfti að leita út fyrir stöðina eftir nauðsynleigri læknisþjónustu. 3. Sambland af tveimur síðastnefndu valkostunum, þ. e. a. s. einn eða fleiri sér- fræðingar stöðugt vinnandi á heilsugæzlu- stöð, en aðrir sérfræðingar til skiftis (rot- erandi).“ Varðandi skipulega sjúkdómaleit í tengslum við heilsugæzlustöðvar fjallaði Guðmundur einkum um mæðravernd og hópskoðanir kvenna vegna illkynja sjúk- dóma. Hann taldi aðkallandi að endur- skipuleggja og samhæfa mæðravernd á Reykjavíkursvæðinu, og dreifa mæðra- verndarskoðunum til þeirra heilsugæzlu stöðva, sem reistar kunna að verða á næstunni. Yfirumsjón með allri mæðra- vernd á höfuðborgarsvæðinu ætti að heyra undir þá stofnun, sem mesta ábyrgð ber á fæðingarhjálp á þessu svæði. Heppilegast væri að á heilsuverndarstöð annaðist heim- ilislæknir ásamt ljósmóður mæðravernd, en sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæð- ingarhjálp hafi ákveðna skoðunardaga á heilsugæzlustöðinni og til hans aðeins vís- að þeim konum, sem eitthvað þarf að at- huga nánar, eða eru taldar til áhættuhóps vegna slæmrar forsögu. Á heilsugæzlustöð er æskilegt að hafa starfandi ljósmóður, sem veitir eftir fæðingu leiðbeiningar og aðstcð um meðferð brjósta. Guðmundur sagði, að regluleg krabba- meinsleit hjá konum hefði verið fram- kvæmd í heilsugæzlustöðinni á Selfossi síð- an 1971 og hefði það gefið góða raun. Hann taldi ekki ástæðu til að koma upp föstum hópskoðunum víðar á sjálfu Reykjavíkur- svæðinu, en hins vegar væri nauðsynleg' náin samvinna leitarstöðva krabbameins- félaganna og verðandi heilsugæzlustöðva. Guðmundur ræddi því næst um sam- band sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðva, og benti á eftirfarandi leiðir til að tryggja sem beztan árangur læknisþjónustu í Reykjavík: „1 Þeir sérfræðingar, sem vinna á heilsugæzlustöð, séu jafnframt starfandi á einhverju sjúkrahúsa borgarinnar. 2. Gott samband frá sjúkrahúsunum til heilsugæzlustöðvar ekki aðeins með lækna- bréfum, heldur einnig viðræðum varðandi þá sjúklinga, sem útskrifast, þar sem lælkni heilsugæzlustöðvar er ætlað að sjá um eftirmeðferð. 3. Að læknum heilsugæzlustöðvanna verði tryggðar tímabundnar stöður á sjúkrahúsunum. 4. Að göngudeildir sjúkrahúsanna verði opnaðar fyrir bráða læknisþjónustu. Þann- ig sé heimilislækni heimilt að senda sjúkl- ing til skyndiathugunar, án þess að sjúkra- húsvist sé fyrirfram ákveðin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.