Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.1976, Qupperneq 19

Læknablaðið - 01.04.1976, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ 61 holti III með íbúafjölda um 12.000 manns. Að lokum þetta: Skipulag heimilislækn- inga í Reykjavík hefur nú um nokkurt ára- bil þarfnazt verulegra breytinga. Mark- setning sérhverrar viðleitni til breytinga á þessu skipulagi felur í sér tvöfalt mark- mið: að læknum, sem við heimilislækning- ar starfa, verði veitt sú fullnægja í starfi, sem þeir sækjast eftir, og að þjónustan við fólkið verði sem mest og bezt innan veggja þeirra stofnana, sem með tímanum munu rísa í hinum ýmsu hverfum borgarinnar." HLUTVERK HEILSUVERNDARHJÚKRUNARKONU Pálína Sigurjónsdóttir, hjúkrunarkona, ræddi um menntun og starfssvið heilsu- verndarhjúkrunarkonu á heilsugæzlustöð. Hún sagði að heilsuverndarhjúkrunarkona ætti almennt talað að vera fær um að leiðbeina og kenna almenningi hvernig bezt megi koma í veg fyrir sjúkdóma og auka líkamlega, andlega og félagslega vellíðan almennings. Hér eru nokkur dæmi er Pálína nefndi um starfsvettvang heilsuverndarhjúkrun- arkonu: „f mæðravernd væri aðallega um að ræða leiðbeiningarstarf í sambandi við hollustuhætti og heilbrigt líferni og upp- lýsingar um þá þjónustu, sem stendur verðandi mæðrum til boða. Ungbarna- og smábarnavernd. Heilsu- verndarhjúkrunarkona fylgist með líkam- legum og andlegum þroska barna og fé- lagslegri aðbúð, er fjölskyldunni til leið- beiningar og stuðnings í sambandi við meðferð og uppeldi. Hefur eftirlit með að börn komi reglulega til skoðunar í heilsugæzlustöðina og fái ónæmisaðgerðir eftir settum reglum. Heilsugæzlu í skólum á heilsuverndar- hjúkrunarkona að annast. Hafa jafnt og vakandi eftirlit með heilsu, þroska og félagslegri aðbúð nemenda (jafnt í skól- um sem á heimilum). Sjá um að þær læknisskoðanir, eftirlit og ónæmisaðgerð- ir, sem boðaðar eru af heilbrigðisyfirvöld- um, fari fram og annast það ýmist sjálf eða í samvinnu við skólalækni. Berklavarnir á heilsuverndarhjúkrunar- kona að annast, eftir þeim reglum, sem gilda hverju sinni, m. a. framkvæmir hún berklapróf og berklabólusetningar. Heimahjúkrun og hjúkrun aldraðra. Hún skipuleggur eftirlit og hjúkrun aldraðra í heimahúsum og sér um að fyrirmælum lækna sé framfylgt.“ ÞJÓNUSTAN ÞARF AÐ VERA SEM FJÖLBREYTTUST Sævar Guðbergsson, félagsráðgjafi, gerði í fyrstu grein fyrir sögu félagsráðgjafar, starfssviði og markmiðum. Hann taldi eðli- legt að félagsráðgjafi á heilsugæzlustöð væri jafnframt starfsmaður félagsmála- stofnunar eða félagsmálaráðs. Sæivar sagði í lok erindis síns: ,,Það hlýtur að vera æskilegt fyrir þá einstaklinga, eða aðra þá, er þurfa að leita til heilsugæzlustöðvar, að geta fengið þar eins fjölbreytta þjónustu og frekast er hægt að veita. Það er vert að hafa í huga, að heilbrigði samanstendur af þrem meginþáttum, þ. e. líkamlegum, and- legum, geðrænum eða tilfinningalegum og félagslegum þætti. Þjóðfélagið hlýtur því að bera ábyrgð á að stuðla að því, að allir þessir þættir fái notið þeirrar verndar og umönnunar, sem þörf er, til þess að þeir geti þróazt eðlilega og á heilbrigðan hátt. Þar af leiðandi tel ég eðlilegt, að heilsu- gæzlustöð sé fær um að veita alhliða þjón- ustu á öllum þessum sviðum og eins breið- um grundvelli og mögulegt er. Með því að sameina, eða a. m. k. að mynda mjög náið samstarf beint og milliliðalaust á milli þessara þátta, tel ég að bezt verði mætt þörfum einstaklingsins, en jafnframt gætt hagsmuna þjóðfélagsins á þann hátt, að þeir starfskraftar, sem þarna eru til staðar. muni nýtast til muna betur, heldur en ef þarna væri um að ræða tvær aðskildar stofnanir, eins og er í dag. Reynslan hefur sýnt hér, þann tíma sem Félagsmálastofn un Reykjavíkurborgar hefur starfað, að henni er brýn nauðsyn á að hafa miklu nánara samstarf við aðrar stofnanir, sem sinna heilbrigðismálum, heldur en verið hefur til þessa.“ „ALLIR VÍSA FRÁ SÉR“ Sigríður Jakobsdóttir, heilsuverndar- hjúkrunarkona, ræddi um heimahjúkrun og heimilisþjónustu í Reykjavík, sem á sér alllanga sögu. Sigríður sagði, að heima-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.