Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1976, Síða 20

Læknablaðið - 01.04.1976, Síða 20
62 LÆKNABLAÐIÐ hjúkrun þyrfti að endurskipuleggja jafn- hliða uppbyggingu væntanlegra heilsu- gæzlustöðva. Heimahjúkrun getur ekki rneð góðu móti starfað ein og sér, hún verður að vera í nánum tengslum við aðra heilbrigðis- og félagsmálaþjónustu. Sigríð- ur sagði, að nauðsynlegt væri að koma á fót hjúkrunardeildum fyrir fárveik gamal- menni og langlegusjúklinga, en ekki virð- ist hylla undir lausn þessa vandamáls — það versta er að allir vísa frá sér þegar vandamálið ber á góma. Sigríður taldi eðlilegast að heimahjúkrun, sem rekin er af Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og heim- ilishjálp, sem rekin er af Félagsmálastofn- uninni, yrði sameinuð undir einni yfir- stjórn og um leið þyrfti að auka og bæta báða þætti hennar. Sigríður sagði orðrétt: „Æskilegt væri að koma sem fyrst á vaktaþjónustu í heimahjúkruninni a. m. k. kvöldvakt. Veita þyrfti sjúklingum í heima- húsum sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og fót- snyrtingu. Athuga þarf hvernig bezt verður hagað útvegun og útlánum á hjúkrunargögnum og hjálpartækjum. Sú þjónusta er nú á vegum Rauða kross íslands og Sjálfsbjarg- ar. Samstarf þarf að bæta milli allra þátta heilbrigðis- og félagsmálaþjónustu. í Hafnarfirði er verið að byggja upp heimahjúkrun og heimilishjálp á sam- vinnugrundvelli, sem virðist vera til fyrir- myndar, og væri æskilegt að hafa það fyrirkomulag til hliðsjónar við endurskipu- lagningu heimahjúkrunarinnar hér í Reykjavík.“ „MUNDI MINNKA RÚMDÝRKUN“ Ólafur Mixa, læknir, kom víða við í erindi sínu. Hann sagði m. a., að hug- myndir um bætta aðstöðu og breytt skipu- lag almennrar læknisþjónustu í Reykja- vík væru alls ekki nýjar af nálinni, og hefðu í höfuðatriðum notið yfirlýsts stuðn- ings læknasamtakanna. Þó hefði gengið illa að vinna hugmyndum þessum stuðning á borði — „hafa ýmsir einkum séð í þeim útvíkkun kotbúskapar núverandi heimilis læknakerfis." Ólafur drap á nokkur grundvallaratriði heilsugæzlu, sem hann taidi að ætti að taka mið af við starfrækslu heilsugæzlu- stöðvanna. Hann lagði áherzlu á, að í heilsugæzlustöðvunum yrði stunduð heilsu- gæzla á sem víðtækustu sviði og með nánu samstarfi við íbúa á viðkomandi svæði, „svo að íbúarnir geti átt sem hægast með að sjá í stöðinni vettvang fyrir öll sín vandkvæði, smá og stór . . . “ Þá ræddi Ólafur um þjónustutíma stöðv- anna og hvernig ætti t. d. að sinna sjúkling- um að næturlagi. Lokaorð Ólafs voru þessi: „Hér hafa aðeins verið viðraðir lauslegir þankar um heilsugæzlu utan sjúkrahúsa. Aðalatriðið í minum augum er, að þessi grein heilbrigðisþjónustu, sem annast 85% heilsukvilla við núverandi skoðanir varð- andi heilbrigði og raunar mun meira, þeg- ar hugsað er um ný viðhorf um víðtækustu heilsugæzlu, fái að þróast í nútímahorf með hópstarfi margra aðilja. Slíkt mundi minnka álag á sjúkrahúsum, leiða til hag- ræðingar og samræmingar, gera þessum þætti heilbrigðisumsjár jafn hátt undir höfði og öðrum, gefa tækifæri til að sinna fræðilegum grundvelli fagsins með til- hlýðilegri rannsóknaaðstöðu. Það mundi minnka rúmdýrkun, en auka áherzlu á viðhald heilbrigðis.“ GÖNGUDEILDIR OG HEILSUGÆZLU- STÖÐVAR Ólafur Örn Arnarson, læknir, ræddi um göngudeildir og verkefni þeirra. Hann sagði m. a. að göngudeildir við sjúkrahús- in í Reykjavík ættu ekki að vera opnar móttökur heldur taka aðeins við sjúkling- um eftir tilvísun frá lækni, t. d. heimilis- lækni eða sérfræðingi, því að reynslan með öðrum þjóðum hefur víða orðið sú, að starfsemin hefur farið úr öllum bönd- um, hún hefur orðið ópersónulegri, þjón- ustan lélegri og afköstin minni og dýrari, þar sem göngudeildarstarfsemi hafa engar skorður verið settar. Lokaðar göngudeildir og hálfopnar eru þegar reknar hér við sjúkrahúsin, og er nauðsynlegt að halda þeirri starfsemi áfram, en í nánum tengsl- um við heimilislækna og heilsugæzlustöðv- ar. Ólafur Örn benti á, að sums staðar hefði orðið fráhvarf frá mikilli göngu- deildarstarfsemi, og hölluðust menn frekar að því að efla læknisþjónustuna utan sjúkrahúsa með stofnun heilsugæzlustöðva

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.