Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1976, Page 49

Læknablaðið - 01.04.1976, Page 49
LÆKNABLAÐIÐ 81 Frá Læknafélagi Norðvesturlands: Friðrik J. Friðriksson. Frá Læknafélagi Akureyrar: Erlendur Kon- ráðsson og Brynjólfur Ingvarsson. Auk áðurnefndra fulltrúa sátu fundinn Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri og Bjarni Bjarna- son. Fundarstjóri gaf formanni L.Í., Snorra P. Snorrasyni, orðið. Rakti formaður helztu atriði skýrslu stjórnarinnar, er dreift hafði verið meðal fundarmanna og send út til allra félags- manna. Laganýmœli og lög í undirbúningi Páll Sigurðsson ræddi í fyrstu um helztu ný- mæli í löggjöf á sviði heilbrigðismála og ýmis konar löggjöf, er í undirbúningi væri. Minnt- ist hann m.a. á frumvarp um fóstureyðingar, en þar hafði að verulegu leyti verið tekið tillit til skoðana L.I. við endanlega afgreiðslu þess frumvarps. Þá höfðu á síðasta þingi verið sett lög um félagsráðgjöf, sem m.a. kvað á um starfsréttindi félagsráðgjafa, en félagsráðgjaf- ar höfðu ieitað til annarra ráðuneyta fyrst um flutning slíks frumvarps og hefði það komið í hlut heilbrigðisráðuneytisins að hafa forgöngu um þessa lagasetningu. Einnig minntist hann á nýmæli í hjúkrunarlöggjöf, svo sem um breyt- ingu á starfsheiti hjúkrunarkvenna, þar sem gert er ráð fyrir, að heiti þeirra verði hjúkr- unarfræðingar. Þá minntist ráðuneytisstjóri á frumvarp um lyfjaframleiðslu. Það var ekki afgreitt á síðasta þingi, en ráðuneytisstjóri taldi, að það yrði flutt á næsta þingi. Um framkvæmdir á sviði heilbrigðismála upplýsti ráðuneytisstjóri, að ekki hefðu verið kostir fyrir ráðuneytið til þess að fylgja eftir áskorun aðalfundar L.í. á Hallormsstað um auknar fjárveitingar til framkvæmda á sviði heilbrigðismála. Sagði hann, að það hefði verið stefna ráðherra við undirbúning fjárlaga árs- ins 1975 að ljúka stærri verkefnum, en fjár- veitinganefnd Alþingis hefði að verulegu leyti breytt þeirri fyrirætlan og tekið inn fjárveit- ingar til mun fleiri verkefna en ráðuneytið hefði gert ráð fyrir. Endanlega hefði í fjárlögum verið gert ráð fyrir rúmum milljarði til framkvæmda á sviði Reilbrigðismála, en sú upphæð hefði síðar á ár- inu verið skorin niður um 117 milljónir króna. Þá gerði ráðuneytisstjóri að umtalsefni, að heilbrigðisráðuneytið missti að verulegu leyti umsjón með framkvæmdum á sviði heilbrigðis- mála, sem hafnar væru, þar sem framkvæmda- deild Innkaupastofnunar ríkisins hefði Þær með höndum. Sagði ráðuneytisstjóri, að ráðuneytið fengi ekki í hendur þá mánaðarlegu skýrslu um gang framkvæmda, sem framkvæmdadeild- in ætti að skila til ráðuneytisins reglum sam- kvæmt. Taldi hann, að núverandi skipulag á ákvarðanatöku og umsjón með framkvæmdum ríkisins skv. lögum um skipan opinberra fram- kvæmda væri að ýmsu ieyti gallað og hefði reynzt mjög svifaseint. Þá sagði ráðuneytisstjóri frá þeirri ákvörðun núverandi heilbrigðisráðherra að fela Guðjóni Hansen, tryggingafræðingi, að gera heildar- endurskoðun á tryggingalöggjöfinni og mundi skýrsla hans vera væntanleg í septembermán- uði. Þá ræddi ráðuneytisstjóri um gæzluvistar- sjóð og fjáröflun hans, svo og sjóð til stofnana vangefinna, er báðir hefðu ákveðna tekju- stofna. Þá skýrði hann frá stofnun sjúkraliða- skóla á vegum ráðuneytisins, er mundi skipu- leggja bóklegt nám sjúkraliða, svo og verklegt nám þeirra, er færi fram á spítölunum. Að síðustu gat ráðuneytisstjóri þess, að um þessar mundir ætti heilbrigðisráðuneytið 5 ára afmæli og minntist þess, að læknasamtökin hefðu átt stóra þátt í, að því ráðuneyti var komið á fót. Taldi hann sig ekki geta dæmt um, hversu til hefði tekizt með stofnun ráðu- neytisins né hvað liði framgangi heilbrigðis- mála eftir stofnun þess og taldi aðra verða að dæma þar um. Sagði ráðuneytisstjóri, að ráðu- neytinu hefði vaxið mjög fiskur um hrygg, en ennþá væri þó tilfinnanlegur skortur á sér- menntuðu starfsliði. Góöur ImgnaÖur af rekstri félagslieimilis Niðurstöðutölur efnahagsreiknings voru kr. 13.468.069 og niðurstöðutölur rekstrarreiknings voru kr. 3.944.374. Hagnaður af rekstri félags- heimilis var kr. 2.807.707. Bjarni ræddi ýmis málefni viðvíkjandi Dom- us Medica og upplýsti, að nú væru skuldir sjálfseignarfélagsins að mestu greiddar og taldi, að eðlilegt væri, að gerðar yrðu fyrir- ætlanir um frekari framkvæmdir, svo sem byggingu þakhýsis fyrir lækna, þar sem kom- ið yrði fyrir almennum samkomustað lækna til að auka á kynni og almenn samskipti. Þá gat Bjarni þess, að enn skorti ákvörðun skipulags- yfirvalda borgarinnar um lóðamörk kringum Domus Medica og m.a. af þeirri ástæðu hefði ekki verið hægt að ganga frá bifreiðastæðum og lóðinni að öðru leyti. Að lokum minntist Bjarni sérstaklega þess góða stuðnings, er Magnús Jónsson, banka- stjóri, þáverandi fjármálaráðherra, hefði veitt Domus Medica og lagði til, að fundurinn sendi honum sérstakar þakkir. Ýmsar tillögur „Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn í Reykjavík dagana 4.—6. sept. 1975 vill ítreka áskorun sína til ríkisstjórnar og borgaryfir- valda, að hafnar verði þegar framkvæmdir við byggingu sjúkradeildar fyrir langlegusjúklinga við sjúkrahúsin í Reykjavík." „Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn í Reykjavík dagana 4.—6. sept. 1975 skorar á heilbrigðisyfirvöld að hefja hið bráðasta rekst- ur svonefndra heilsugæzlustöðva á Stór- Reykjavíkursvæðinu og bæta þannig heilsu- gæzlu og Iæknisþjónustu við íbúa þessa svæð- is.‘‘ „Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn i Reykjavik dagana 4.—6. sept. 1975 felur stjórn L.I. að taka til rækilegrar endurskoðunar út-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.